Fréttablaðið - 16.08.2013, Side 44
KYNNING − AUGLÝSINGLíkamsrækt FÖSTUDAGUR 16. ÁGÚST 20138
Létt skokk getur aukið lífslíkur um sex ár hjá karl-
mönnum og fimm ár hjá konum að því er rann-
sókn sem gerð var af The Copenhagen City Heart
hefur upplýst. Rannsóknin var unnin markvisst frá
árinu 1976. Það er hægt að fullyrða að hreyfing
lengir lífið en góðu fréttirnar eru þær að ekki þarf
að hreyfa sig mjög mikið til að hún hafi áhrif, að
því er danski hjartalæknirinn Petur Schnohr segir
en hann hefur unnið að rannsókninni.
Þátttakendur voru spurðir um hreyfingu fjórum
sinnum, fyrst á milli 1976 og 1978, síðan aftur
1981-1983, 1991-1994 og loks 2001-2003. Þeir
sem skokkuðu frekar hægt en reglubundið lifa
lengur en þeir sem hlaupa mjög hratt eða sjaldan.
Þeir sem stóðu að rannsókninni hafa fylgst með
heilsu fólks á öllum aldri frá 1976, samtals um 20
þúsund manns. Í ljós kom að best er að skokka
í tvo og hálfan tíma á viku til að bæta heilsu og
lífsmöguleika.
Hreyfingin eykur súrefnisupptöku líkamans,
lækkar blóðþrýsting, styrkir hjarta og ónæmiskerfi
og kemur í veg fyrir offitu. Þá kom í ljós að þeir
sem skokka eru skapbetri og með betri andlega
líðan en þeir sem hreyfa sig ekki.
Þess má geta að önnur hreyfing en skokk hefur
sömu áhrif, til dæmis hjólreiðar, skíðaganga,
gönguferðir eða leikfimi.
HREYFING LENGIR LÍFIÐ
GOTT OG HOLLT
Flestir vita að betra er að borða
morgunverð en að sleppa honum.
Þeir sem vilja léttast ættu að hafa
hugfast að góður morgun matur
kemur í veg fyrir nart á milli mála.
100 g af hafragraut og eitt soðið
egg eru samanlagt 138 kaloríur.
Þetta er saðsamur og hollur
matur. Gott er að setja bláber eða
jarðarber í grautinn. Ef þú breytir
af vananum og tekur á þig rögg
með því að borða á morgnana er
hægt að minnka hádegismatinn
til muna. Slepptu brauði og borð-
aðu frekar hrökkbrauð til dæmis
með léttosti.
Salat í hádeginu með rækjum,
túnfiski eða kjúklingi er fullkomin
máltíð. Setjið gjarnan ávöxt, ber
og hnetur í salatið að auki. Til að
breyta til má gjarnan borða lax
með salatinu eða annan fisk. Lax
er talinn ofurfæða en hægt er
að matreiða hann á ýmsan hátt,
soðinn, grillaðan eða bakaðan.
Kvöldmatur getur verið magurt
kjöt og soðið grænmeti. Ef gerð
er sósa ætti að nota hreina jógúrt
og bragðbæta hana með ýmsu
góðu kryddi.
BREYTTUR LÍFSSTÍLL
Ef fólk vill létta sig þarf að breyta
hugsanagangi og lífsstíl til lengri
tíma. Hins vegar verður að gæta
þess að ein og sama aðferðin
gildir ekki endilega fyrir alla.
Fólk þarf að gera þetta á sínum
eigin forsendum en gott er að fá
ráðleggingar hjá sérfræðingum.
Allir vita að ofþyngd getur leitt til
ýmissa sjúkdóma og þess vegna
er mjög mikilvægt að halda sér
í réttri þyngd. Mataræðið skiptir
þar mestu máli þótt hreyfingin
hjálpi til. Ekki er gott að léttast
mjög hratt heldur hafa markmið
til lengri tíma, til dæmis hálft
kíló á viku. Ágætt er að búa til
mánaðarplan í einu með hjálp frá
næringarfræðingum eða líkams-
ræktarþjálfurum.
Margir byrja af miklum krafti í
líkamsrækt en gefast síðan upp.
Betra er að fara hægt af stað. Þá
er nauðsynlegt að finna hreyf-
ingu við hæfi. Það þarf sjálfsaga
til að ná árangri en markmiðið
verður að vera raunhæft. Ekki
neita þér um allt sem þér finnst
gott, minnkaðu frekar skammt-
ana. Gerðu innkaup fyrir nokkra
daga í stað þess að fara í mat-
vöruverslun daglega.
w w w. b a d h u s i d . i s
VETUR BREYTINGA
Komdu og hlúðu að líkama og sál með okkur í Baðhúsinu.
Með KK-Eðaláskrift hefurðu aðgang að því sem til þarf fyrir aðeins 8.890* á mánuði.
Með þátttöku í KK klúbbnum kemstu jafnt í opna sem LOKAÐA tíma.
KK klúbburinn er klárlega hagstæðasta leiðin.
Allt þetta er innifalið í Baðhúsinu fyrir aðeins kr. 8.890* á mánuði;
Nýr Technogym tækjasalur! Zumba. Body Pump. Nýjung! Gravity workout. Detox-jóga. Nýjung! Pilates. Evu jóga. Grit.
Nýjung! Power Spin&ABS. CxWorx. Hugleiðsla. Body Balance. Heitt jógaTóning. Djúpslökun. Salsa. Pallar. Leikfimi.
Hot Jóga. Body Combat. Nýjung! Streitulosun. Tækjakennsla. Stórátak. Nýjung! Heilsuátak. FlexiFit.
Hot BodyBalance. O. m. fl.
Auk þessa fylgja eftirfarandi fríðindi að verðmæti kr. 87.340;
- Árskort í Sundlaugar Reykjavíkur (ÍTR). - 2 tímar hjá einkaþjálfara. - Vikukort fyrir vinkonu.
- 5 stykkja booztkort. - Handklæði við hverja komu.
Og auðvitað hefurðu líka aðgang að heitri laug, vatnsgufu, sauna og notalegu hvíldarhreiðri.
Komdu í Baðhúsið, breyttu til og hlúðu að sjálfri þér.
Nánari upplýsingar á www.badhusid.is/kk
8.890* á mánuði í KK áskriftarklúbbnum, Eðaláskrift, lágmarkstími 12 mánuðir.
Aðrar áskriftarleiðir einnig í boði frá kr. 5.990 á mánuði.
Þær konur sem skrá sig í KK klúbbinn núna halda óbreyttu verði þegar Baðhúsið flytur í nýtt
og glæsilegt húsnæði í Smáralind í lok árs. Mánuðinn sem flutt er býðst öllum konum eins
mánaðar uppsögn í stað þriggja mánaða eins og samningar gera ráð fyrir. Þannig eru engar
konur bundnar flutningsmánuðinn sjálfan, telji þær nýju staðsetninguna ekki henta þeim.
Fy
rir
sæ
ta
L
in
da
P
ét
ur
sd
ót
tir
.
Lj
ós
m
yn
da
ri
Á
st
a
K
ris
tjá
ns
dó
tt
ir