Fréttablaðið - 16.08.2013, Side 48
FRÉTTABLAÐIÐ Menning og tíska. Helgarmaturinn og Spjörunum úr.
10 • LÍFIÐ 16. ÁGÚST 2013
Tomoko Daimuru heillaðist af íslenskri hönnun og stofnaði Meeticeland.is.
É
g hef alltaf reynt að vera
sem mest í húsinu mínu á
Snæfellsnesinu þegar ég er
að skrifa en þar fæ ég svo
mikinn innblástur,“ segir
Snæfríður Ingadóttir blaðamaður
sem nýlega gaf út bókina The Ice-
landic Woman ásamt Þorvaldi Erni
Kristmundssyni. Þetta er fimmta
bókin sem þau vinna saman, en
fyrri bækur þeirra eru meðal ann-
ars 50 crazy romantic things to
do in Iceland og 50 crazy things
to taste in Iceland. „Við Þorvaldur
höfum verið að skrifa bækur fyrir
ferðamenn og efnið í þessa bók var
valið með það í huga að úr verði
áhugaverð lesning fyrir ferða-
menn.“
Bókin hefur bæði afþreying-
ar-og upplýsingagildi í máli og
myndum en tæpt er á sögu legum
staðreyndum og ýmsu öðru sem
tengist íslensku konunni á einn eða
annan hátt. Snæfríður hefur unnið
sem blaðamaður um nokkurt
skeið og segist ekki vera sérfræð-
ingur um íslensku konuna heldur
sé hún vön að vinna úr upplýs-
ingum og því hafi margt komið
henni á óvart við vinnslu bók-
arinnar. „Við erum með marg-
ar konur í háttsettum stöðum en
samt sem áður vantar svo mikið
upp á jafnréttisbarráttuna. Mér
fannst það vera það sem stóð
einna helst upp úr við gerð þess-
arar bókar.“ Aðspurð hvernig
hin raunverulega íslenska kona
sé segir Snæfríður að dæmigert
sé að íslenskar konur vinni mest
allra kvenna í Evrópu, eignist
samt sem áður flest börn og séu
mjög langlífar, sem á alls ekki við
um konur annarra landa.
ÍSLENSKA KONAN Í
MÁLI OG MYNDUM
Snæfríður Ingadóttir blaðamaður er konan á bak við bókina The Icelandic Woman.
Snæfríður Ingadóttir, blaðamaður og rithöfundur, ásamt börnum sínum. Hún er nú
búsett á Akureyri.
Íslenskar konur vinna mikið og eignast mörg börn. Þrátt fyrir það eru þær mjög langlífar.
„Ég þekkti ekki mikið til Íslands
en áður en ég vissi af var ég búin
að sækja um styrk til að koma til
landsins að læra íslensku. Ég sá
bíómynd um landið og fannst Ís-
land mjög spennandi en það voru
alls ekki margir sem sóttu um ís-
lensku styrkinn hjá utanríkis-
ráðuneytinu,“ segir Tomoko Da-
imuru glöð í bragði. Hún kynntist
Íslandi í fyrsta sinn árið 2003
þegar hún lærði íslensku í HÍ.
Eftir námsdvölina fór hún
aftur til Osaka í Japan til að klára
enskunám sitt en örlögin gripu
í taumana þegar henni bauðst
að flytjast til Íslands á ný til að
vinna í japanska sendiráðinu. Nú
eru sex ár síðan Tomoko flutti
aftur til landsins og er ekkert
að flytjast búferlum á næstunni.
Hún er gift íslenskum manni,
rekur fyrirtækið Little Viking og
fyrir stuttu opnaði hún japönsku
netverslunina MeetIceland.is sem
selur íslenska hönnun, meðal ann-
ars frá Stáss, Umemi, Hring eftir
Hring og Volki.
„Þegar ég byrjaði að vinna í
versluninni Aurum fór ég að hafa
áhuga á íslenskri hönnun og sá að
þrátt fyrir að menningar heimar
þessara tveggja landa séu ólíkir
virðist smekkur manna vera á
svipuðum nótum. Því ákvað ég
að opna netverslun svo ég gæti
kynnt íslenska hönnun fyrir Jap-
önum sem hafa verið mjög áhuga-
samir.“ Um þessar mundir er To-
moko að vinna víða um landið að
verkefni með þekktum japönsk-
um hönnuði þar sem íslensk nátt-
úra er miðpunkturinn. Tomoko
tekur einnig að sér ýmis verkefni
þar sem hún kynnir land og þjóð
fyrir japönskum fyrirtækjum,
sjónvarpsstöðvum, hönnuðum og
tískublöðum.
FÓLK ÍSLENSK
HÖNNUN Í JAPAN
Tomoko Daimuru hefur opnað japönsku netverslunina
Meet Iceland og selur einungis íslenska hönnun.