Fréttablaðið - 16.08.2013, Blaðsíða 62
16. ágúst 2013 FÖSTUDAGUR| MENNING | 30
Berglind Sigmarsdóttir, höfundur
bókarinnar Heilsuréttir fjölskyld-
unnar, hefur gefið út aðra bók sem
heitir einfaldlega Nýir heilsuréttir
fjölskyldunnar.
„Í nýju bókinni fer ég á svipaðar
slóðir og í þeirri fyrri þar sem ég
legg áherslu á mikilvægi þess að
minnka sykurneyslu hjá börnum,“
segir Berglind. „Fyrri bókin mín
fékk frábærar viðtökur og ég fékk
margoft símtöl frá fólki sem vildi
vita meira um hvernig mataræði
getur breytt lífi fólks, þá sérstak-
lega hvaða áhrif kúamjólk, sykur
og glúten geta haft á líðan og ýmis
hegðunarvandamál barna. Ég fór
því að afla mér upplýsinga og áður
en ég vissi af var ég komin með efni
í nýja bók,“ segir hún. Aðspurð segir
Berglind að margar mæður hafi
óskað eftir upplýs ingum um tengsl
mataræðis við ýmsa sjúkdóma.
„Mér fannst það því viðeigandi
að fá mæður til þess að deila með
mér sögum um hvernig breytt
mataræði hafði áhrif á ýmsa
kvilla barna þeirra, eins og
ofvirkni og athyglisbrest. Ég er
ótrúlega þakklát þessum konum
sem vildu deila með mér reynslu
sinni. Bókin er full af girnilegum
og djúsí uppskriftum fyrir alla
fjölskylduna og fjalla ég einnig
um heilsubætandi krydd sem er
spennandi viðbót við fyrri bókina,“
segir hún að lokum.
Metsöluhöfundur gefur út nýja bók
Berglind Sigmardóttir hefur gefi ð út nýja matreiðslubók fyrir íslenskar fj ölskyldur.
METSÖLUHÖF-
UNDUR Berglind
Sigmarsdóttir
gerir nýja bók
um hollt og gott
mataræði. MYND/
GUNNAR KONRÁÐSSON
12.000
Heilsuréttir fj ölskyldunnar
hefur selst í tólf þúsund
eintökum.
Hljómsveitin Súellen frá Nes-
kaupstað hefur gefið út plötuna
Fram til fortíðar. Eitt lag af
henni, Vinir og blóð, er komið inn
á vinsældarlista Rásar 2.
Súellen átti sitt blómaskeið
frá 1987 til 1994 er hún lagðist í
dvala. Safnplatan Ferð án enda
kom út 2003 og árið eftir fóru
þeir félagar til Dallas og tóku
upp tvö lög. Síðan þá hefur hljóm-
sveitin komið fram á tyllidögum
og gefið út nokkur lög.
Flest lögin á nýju plötunni eru
eftir meðlimi Súellenar en auk
þess leggur Bjarni Tryggvason
textaskáld þeim lið. Eitt lag er
eftir Inga T. Lárusson og annað
eftir Ágúst Ármann Þorláksson.
Eiríkur Hauksson er gestasöngv-
ari í lagi Ágústs. - fb
Súellen mætt
með nýja plötu
SÚELLEN Fyrsta plata Súellenar í
langan tíma er komin út.
Gamanleikkonan Tina Fey, sem
slegið hefur rækilega í gegn sem
hin óborganlega Liz Lemon í sjón-
varpsþáttunum 30 Rock, vinnur
nú að gerð nýrra gamanþátta sem
verða í anda Cheers, eða Staupa-
steins. Fey mun taka sér hlé sem
leikkona en ætlar þess í stað að
framleiða þættina, sem kallaðir
eru „The Cheers Show“ þangað
til endanlegt nafn verður stað-
fest. Tökum á 30 Rock fer senn
að ljúka og er Fey að sögn himin-
lifandi yfir nýja hlutverkinu og
að fá smá hvíld frá leiklistinni í
leiðinni.
Tina Fey
í nýtt hlutverk
FYNDIN Tina Fey á bak við myndavél-
ina í nýju hlutverki sem framleiðandi.
utilif. is
Á
R
N
A
S
Y
N
IR
GLÆSIBÆ KRINGLUNNI SMÁRALIND
Farðu út!
Á
R
N
A
S
Y
N
IR
Fáðu aðstoð við valið á rétta útivistarbúnaðinum.
Starfsfólkið okkar þekkir vörurnar sem það selur.
svefnpokar
af hágæða útivistarvörum
Tjöld North face fatnaðurgönguskór
allt að 50% afsláttur