Fréttablaðið - 16.08.2013, Blaðsíða 66

Fréttablaðið - 16.08.2013, Blaðsíða 66
16. ágúst 2013 FÖSTUDAGUR| SPORT | 34 PEPSI KVENNA 2013 AFTURELDING-SELFOSS 0-2 0-1 Guðmunda Brynja Óladóttir (28.), 0-2 Guð- munda Brynja Óladóttir (38.). BREIÐABLIK-ÞRÓTTUR 5-0 1-0 Greta Mjöll Samúelsdóttir (25.), 2-0 Greta Mjöll Samúelsdóttir (45.), 3-0 Greta Mjöll Samú- elsdóttir (68). 4-0 Hildur Sif Hauksdóttir (77.), Greta Mjöll Samúelsdóttir (88.). STAÐAN Stjarnan 12 12 0 0 41-4 36 Valur 12 8 2 2 35-14 26 Breiðablik 12 8 1 3 30-13 25 ÍBV 12 7 1 4 30-20 22 Selfoss 12 6 2 4 17-17 20 Þór/KA 12 4 4 4 22-20 16 FH 12 3 4 5 24-29 13 Afturelding 12 2 1 9 7-29 7 HK/Víkingur 12 1 1 10 12-38 4 Þróttur R. 12 1 0 11 7-41 3 MARKAHÆSTAR Harpa Þorsteinsdóttir, Stjarnan 16 Guðmunda Brynja Óladóttir, Selfoss 13 Elín Metta Jensen, Valur 12 FRJÁLSAR Eini íslenski keppand- inn á HM í frjálsum íþróttum í Moskvu hefur keppni í dag. Spjót- kastarinn Ásdís Hjálmsdóttir hefur verið fastagestur á stór- mótum síðustu ár og vonast nú til þess að endurtaka leikinn frá því á Ólympíuleikunum í London þar sem hún fór alla leið í úrslitin. Þetta hefur verið ár breytinga hjá Ásdísi sem skipti um þjálfara í vetur. Írinn Terry McHugh tók við af Stefáni Jóhannssyni, auk þess sem Einar Vilhjálmsson aðstoðar hana hér á landi. Er alveg sultuslök „Þetta er búið að vera svolítið upp og niður hjá mér í sumar. Ég vissi það alveg fyrir fram. Það voru miklar breytingar hjá mér í vetur og ég vissi að þetta yrði millibilsár og að þetta gæti farið á hvorn veg- inn sem er. Ég er alveg sultuslök yfir því,“ segir Ásdís. Hún fór í úrslit á EM í Barcelona 2010 og svo á Ólympíu leikunum í London 2012. Besti árangur hennar á HM er 13. sætið á HM í Daegu 2011. „Ég gæti náð þrenn- unni. Ég er búin að fara í úrslit á EM og Ólympíuleikum en á HM eftir. Auðvitað stefni ég á það að fara í úrslit því annað væri metn- aðarleysi eftir síðasta ár,“ segir Ásdís en hún setti nýtt og glæsi- legt Íslandsmet í undankeppninni á síðustu Ólympíuleikum. Það er enn þá hennar besta kast. „Ég er í fínu formi en þetta er bara svo svakalega mikil tækni- grein að maður þarf að hafa smá heppni með sér líka. Það eru bara þrjú köst og það má lítið út af bregða. Vonandi verður bara smá heppni með mér. Ég er í fínu formi til að kasta langt og ég ætla að fara inn á leikvanginn á föstudaginn og njóta þess að vera þarna og hafa ógeðslega gaman af þessu,“ segir Ásdís sem er orðin mikil reynslu- bolti þegar kemur að stórmótum enda á sínu áttunda stórmóti á ferlinum. „Ég er búin að fara á öll stórmót síðan 2006 nema á HM 2007 þegar ég var meidd og það voru tvö stór- mót í fyrra. Það er ekkert sem er að koma manni á óvart lengur. Ég er komin með svaka reynslu af því að keppa á svona mótum og það er ekkert í umhverfinu að trufla mig lengur,“ segir Ásdís og bætir við: „Það getur tekið tíma fyrir fólk að læra að láta þetta umhverfi hjálpa sér og upplifa það ekki sem pressu heldur jákvæða hvatningu. Ég geri það alveg klárlega og það verður gaman að sjá hvort ég geti nýtt mér það til að kasta langt á föstudaginn og svo vonandi enn þá lengra á sunnudaginn,“ segir Ásdís í léttum tón. Ásdís segist ekki vera hjátrúar- full þegar kemur að keppni á mótum. „Það eina sem ég er með er að ég keppi alltaf með happa- hálsmenið mitt,“ segir Ásdís en hún bætti öðru hálsmeni við í aðdraganda leikanna í London með góðum árangri. Alltaf með Stúdentarósina „Það var alltaf eitt hálsmen. Ég setti fyrsta Íslandsmetið mitt í fullorðinsflokki á útskriftar- daginn minn þegar ég útskrif- aðist sem stúdent. Ég fékk Stúd- entarósina frá fjölskyldu minni í útskriftargjöf og hef alltaf keppt með hana síðan. Fyrir Ólympíu- leikana í fyrra þá fékk ég að gjöf Rúna-hálsmenið frá Álrúnu með tákninu fyrir styrk,“ segir Ásdís, sem var þá búin að vera næsta inn í úrslit á tveimur stórmótum í röð. „Ég var búin að enda í þrett- ánda sæti á bæði HM og EM og ef ég hefði lent í þrettánda sæti á Ólympíuleikunum hefði það örugglega verið einhvers konar heimsmet. Ég ætlaði ekki að láta það gerast og þurfti því á öllum þeim styrk að halda sem ég gat fengið. Ég gekk með þetta háls- men í mánuð fyrir leikana,“ segir Ásdís. „Þú getur verið í líkamlega full- komnu formi en það er rosalega auðvelt að láta hausinn skemma fyrir sér. Einbeitingin síðustu dagana fer í það að reyna að koma hausnum á réttan stað,“ segir Ásdís. „Ég er búin að breytast alveg gífurlega mikið frá því á fyrsta stórmótinu 2006. Á þessum tíma er ég búin að læra rosalega mikið inn á sjálfan mig, sportið og allt saman sem fylgir því að keppa á svona mótum. Þetta er búið að gefa manni alveg hrikalega mikið og það eru algjör forréttindi að fá að taka þátt í þessu,“ segir Ásdís klár í slaginn. ooj@frettabladid.is Happahálsmenið alltaf með Spjótkastarinn Ásdís Hjálmsdóttir er eini íslenski keppandinn á HM í Moskvu en hún stefnir á að fullkomna þrennuna með því að komast í úrslit á Heimsmeistaramóti. Ásdís hefur þegar komist í úrslit á EM og á ÓL. STÚDENTARÓSIN Á SÍNUM STAÐ Ásdís Hjálmsdóttir sést hér í keppni hér heima og happahálsmenið hennar er á sínum stað. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN KÖRFUBOLTI Íslenska körfuboltalandsliðið leikur í kvöld lokaleik sinn í sínum riðli í undankeppni EM 2015 þegar Rúmenar koma í Laugardalshöllina. Hefst leikurinn klukkan 19.15. Liðið var hársbreidd frá því að vinna Búlgara á þriðjudagskvöldið en Búlgarar tryggðu sér þar sæti í umspilinu. Ísland og Rúmenía spila hins vegar um annað sætið í riðlinum í kvöld, sem verður mikilvægt hvað varðar styrkleikaröðun fyrir næstu undankeppni haustið 2014. Jakob Örn Sigurðarson, bakvörður og lykilmaður í íslenska landsliðinu, á möguleika á því að ná flottum tímamótum á fjölum Hallarinnar í kvöld. Jakob skoraði tvær þriggja stiga körfur á móti Búlgaríu á þriðjudagskvöldið og hefur nú sett niður 99 þrista með A-landsliðinu. Jakob á möguleika á því að verða tíundi landsliðsmaðurinn sem nær því að setja niður hundrað þriggja stiga körfur fyrir ís- lenska landsliðið en einn leikmaður liðsins í dag er þegar í 100-þrista klúbbnum. Logi Gunnarsson er í 6. sætinu með 138 þriggja stiga körfur. Jakob hefur skorað 1,5 þrist að meðal- tali í leik í sínum 68 landsleikjum en hann hefur skorað nær helming þessara þriggja stiga karfa (47 af 99) eftir að Peter Öqvist tók við liðinu. Svíinn hefur einnig þjálfað Jakob hjá Sundsvall Dragons frá árinu 2009. - óój Dettur sá hundraðasti í Höllinni í kvöld? JAKOB ÖRN SIGURÐARSON Kemst hann í 100 þrista klúbbinn? FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI FÓTBOLTI Emil Atlason hefur farið á kostum með íslenska U-21 árs landsliðinu í undankeppni Evrópu- mótsins sem fram fer árið 2015 í Tékklandi. Leikmaðurinn hefur skorað sex af átta mörkum liðsins í fyrstu þremur leikjum riðilsins. Ísland er með fullt hús stiga í efsta sæti riðilsins. „Ég hef alltaf sagt að þetta er staðan hans,“ segir Atli Eðvalds- son, fyrrverandi landsliðsþjálfari Íslands en fyrst og fremst faðir leikmannsins, í samtali við Frétta- blaðið í gær. „Hann fær að spila alveg upp á topp með landsliðinu og þar líður honum best. Hann hefur hæfileika þessi strákur og það sést mest á hraða hans og styrk. Það þarf samt sem áður að vinna með þessa eigin- leika hjá honum. Ef það er unnið rétt með hann getur Emil kom- ist í fremstu röð en ef það er ekki gert geta hæfileikar hans fjarað út,“ segir Atli. Emil Atlason hefur mikið verið úti á kanti með félags- liði sínu KR í sumar og telur Atli að það sé ekki hans rétta staða. „Af tíu fyrirgjöfum sem koma inn í teig þá er þessi strákur að taka til sín svona sjö til átta. Hann á heima alveg fremst á vellinum. Það hafa ekkert margir þennan eiginleika að vera svona hávaxnir og með þennan gríðarlega hraða. Íslenska U-21 árs landsliðið er gríðarlega spennandi núna og verður gaman að fylgjast með því í þessari undankeppni. Margir þeirra verða bráðlega komnir í A- landsliðið.“ - sáp Atla fi nnst KR ekki nota Emil rétt Emil Atlason er að springa út hjá íslenska U-21 árs landsliðinu í knattspyrnu. SEX MÖRK Í ÞREMUR LEIKJUM Emil Atlason fagnar marki. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL TENNIS Það eru aðeins 40 dagar síðan Marion Bartoli náði hátindi ferilsins. Þá vann hún sigur á Wimbledon-mótinu í tennis en það er stærsta tennismót hvers árs. Nú er hún aftur á móti hætt. Hin 28 ára gamla Bartoli tilkynnti í gær að hún væri hætt og komu tíðindin vægast sagt á óvart. „Þetta er rétti tíminn fyrir mig til þess að hætta. Ég get ekki meira,“ sagði Bartoli en líkami hennar þolir ekki álagið lengur. Henni er sífellt illt í ökklunum, öxlunum, mjöðminni og bakinu. Hún segist ekki geta lagt meira á skrokkinn enda sé hún sárþjáð í hvert skipti sem hún spilar. „Þetta var alls ekki auðveld ákvörðun. Ég hef spilað tennis svo lengi. Minn stærsti draumur varð þó að veruleika,“ bætti Bartoli við og vísaði þar í sigur sinn á Wimbledon. - hbg Wimbledon-meistarinn hættir SJÓÐHEIT Guðmunda Brynja skoraði tvö mörk í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN SPORT BORGARTÚNI 12-14 - 105 REYKJAVÍK - SÍMI 411 1111 - MYNDSENDIR 411 3071 Kvosin Landsímareitur – breyting á deiliskipulagi Borgarráð Reykjavíkur staðfesti niðurstöðu umhverfis- og skipulagsráðs og samþykkti, tillögu um breytingu á á deiliskipulagi fyrir Kvosina – Landsímareit, á fundi sínum þann 25. júlí 2013. Deiliskipulagsbreytingin var kynnt í samræmi við 40. – 41. gr. Skipulagslaga. Tillagan var auglýst frá 10. apríl til og með 23. maí 2013, en á fundi umhverfis- og skipulagsráðs þann 22. maí var samþykkt að framlengja athugasemdafresti til 30. maí 2013. Alls bárust 214 athugasemdir/bréf og undirskriftalisti með 200 nöfnum vegna deiliskipulagsbreytingarinnar. Á fundi umhverfis- og skipulagsráðs þann 12. júlí 2013 var hin auglýsta tillaga lögð fram og samþykkt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 9. júlí 2013. Uppdráttum var breytt í samræmi við umsögn skipulagsfulltrúa og hefur erindi verið sent Skipulagsstofnun til staðfestingar. Umsögn skipulagsfulltrúa ásamt uppdráttum má nálgast á vefsíðunni skipbygg.is. Þeir sem óska nánari upplýsinga geta snúið sér til umhverfis- og skipulagssviðs, embættis skipulagsfulltrúa Reykjavíkurborgar, netfang er skipulag@reykjavik.is. Reykjavík 16. ágúst 2013 Skipulagsfulltrúi Reykjavíkur Reykjavíkurborg Umverfis- og skipulagssvið
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.