Fréttablaðið - 13.09.2013, Blaðsíða 12
13. september 2013 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 12
– fyrir lifandi heimili –
| REYKJAVÍK | AKUREYRI | REYKJAVÍK | AKUREYRI | REYKJAVÍK | AKUREYRI | REYKJAVÍK | AKUREYRI I | REYKJAVÍK | AKUREYRI | REYKJAVÍK | AKUREYRI | REYKJAVÍK |
SPRENGJA
HELGAR AÐEINS
Í FJÓRA DAGA
12.–15. SEPT
HELGAR-
SPRENGJA
149.990
FULLTVERÐ: 199.990
COSMO
Tungusófi
25% afsl.
COSMO Tungusófi.
Stærð 224 x 146 H: 86 cm.
Svart Bonded leður á slitflötum.
H Ú S G AG N A H Ö L L I N O P I Ð &
O P I Ð E I T T S Í M A N Ú M E R
Gæðaflísar á sanngjörnu verði
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
Kletthálsi 7, Rvk - Reykjanesbæ - Akureyri - Vestmannaeyjum
SÝRLAND Þeir John Kerry og
Sergei Lavrov, utanríkisráð-
herrar Bandaríkjanna og Rúss-
lands, ræddu Sýrlandsmálin á
fundi sínum í Genf í gær, þar sem
Kerry krafði Lavrov um skýring-
ar á því hvernig Rússar hugsuðu
sér að fá Sýrlandsstjórn til að láta
efnavopn sín af hendi.
Fundir þeirra halda áfram í
dag, en Lavrov hefur upplýst að
áætlun Rússa sé hugsuð í þremur
þrepum: fyrst undirriti Sýrlands-
stjórn alþjóðasamning um bann
við framleiðslu og notkun efna-
vopna, þá upplýsi Sýrlandsstjórn
um staðsetningu og skipulag allra
efnavopna í landinu og loks taki
sérfræðingar ákvörðun um það
hvað verði um þessi vopn.
Í gær lýsti Assad Sýrlands-
forseti því yfir að Sýrlendingar
myndu afhenda efnavopn sín mán-
uði eftir að þeir undirrita samn-
inginn. Hann sagði þó að þetta
gæti aðeins gengið upp ef Banda-
ríkin létu af stríðshótunum sínum.
Sýrlendingar hefðu fallist á hug-
myndir Rússa, ekki vegna þrýst-
ings frá Bandaríkjunum heldur
vegna þess að Rússar stungu upp
á þessum möguleika.
Í gærmorgun birtist í banda-
ríska dagblaðinu New York Times
grein eftir Vladimír Pútín Rúss-
landsforseta, þar sem hann segir
það vekja ugg hve algengt það sé
orðið að Bandaríkin beiti hernaði
til að grípa inn í átök í öðrum
ríkjum.
Hann hvetur Barack Obama til
að fara að alþjóðalögum og reyna
að leysa málin með friðsamlegum
hætti frekar en að nota „tungumál
valdsins“. Einnig varar hann við
því að Sameinuðu þjóðanna geti
beðið sömu örlög og Þjóðabanda-
lagsins, sem stofnað var árið
1919 en leið undir lok eftir seinni
heimsstyrjöldina.
„Þetta gæti gerst ef áhrifarík ríki
ganga fram hjá Sameinuðu þjóðun-
um og leggja út í hernað án sam-
þykkis Öryggisráðsins,“ segir Pútín.
Í gær bárust síðan fréttir af því
að Bandaríkjamenn séu byrjaðir
að koma vopnum til uppreisnar-
manna í Sýrlandi. - gb
Pútín hvetur Obama til að fara sér hægt en Bandaríkin eru byrjuð að fá uppreisnarmönnum vopn:
Sýrlandsforseti lofar að afhenda efnavopn
MÆTTUR TIL FUNDAR Í GENF Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, kemur
til fundar við John Kerry í Genf. NORDICPHOTOS/AFP
FÓLK„Tilfinningin var rosalega góð. Þetta var alveg yndislegt og fór
algjörlega fram úr mínum björtustu vonum,“ segir fótboltakempan fyrr-
verandi, Sigurður Hallvarðsson.
Hann afhenti í gær Ljósinu þær átta milljónir króna sem söfnuðust í
áheitagöngu hans hinn 30. ágúst.
Sigurður, sem barist hefur við heilakrabbamein frá árinu 2004, segir
Ljósið, endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð fyrir krabbameinsgreinda og
aðstandendur þeirra, hafa reynst sér gríðarlega vel.
„Allir sem voru viðstaddir afhendinguna voru rosalega ánægðir og það
var ánægjuleg stund að afhenda Ernu [Magnúsdóttur] ávísunina. Þetta
var góður dagur,“ segir Sigurður, sem gekk með hugmyndina að áheita-
göngunni í maganum í heilt ár.
Gengið var frá Hveragerði og að höfuðstöðvum Ljóssins og segir
Sigurður gönguna hafa verið bæði þægilega og skemmtilega.
„Þetta var engin áreynsla, menn voru að segja fimmaurabrandara og
að fíflast alla leiðina.“ - ka
Siggi Hallvarðs safnaði átta milljónum króna í göngu:
Afhenti Ljósinu átta milljónir
GÓÐ STUND Sigurður Hallvarðsson afhenti Ernu Magnúsdóttur, forstöðukonu Ljóssins,
átta milljónir króna sem söfnuðust í áheitagöngu hans. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
EGYPTALAND, AP Adlí Mansúr,
bráðabirgðaforseti Egyptalands,
hefur framlengt neyðarástand í
landinu um tvo mánuði, en það
átti að renna
út eftir nokkra
daga.
Neyðar-
ástandið, með
útgöngubanni
á næturnar í
flestum stærri
borgum lands-
ins, hefur verið
í gildi í tæpan
mánuð.
Því var komið á stuttu eftir að
stjórnvöld réðust til atlögu gegn
stuðningsmönnum Múhammeds
Morsís, fyrrverandi forseta,
en honum var steypt af stóli í
byrjun júlí.
Sú atlaga snerist upp í hörð
átök sem kostuðu nærri þúsund
manns lífið, en æ síðan hafa
stuðningsmenn Morsís komið
saman til mótmæla nær dag-
lega. - gb
Bráðabirgðastjórn Egypta:
Neyðarástand
í mánuði enn
ADLÍ MANSÚR