Fréttablaðið - 13.09.2013, Page 21
FÖSTUDAGUR 13. september 2013 | SKOÐUN | 21
Karlmenn taka síður foreldra orlof
en konur. Þeir sem það þó gera virð-
ast svo líklegri til að lenda í vand-
ræðum út af því. Í grein minni
„Feður undir smásjá“ sem birtist í
Fréttablaðinu 7. júní vakti ég athygli
á því að árið 2012 hefðu 92,5% allra
mála sem enduðu fyrir kærunefnd
fæðingar- og foreldraorlofsmála
varðað karlmenn. Það þótti mér
athyglisverð tölfræði.
Auðvitað gætu verið aðrar skýr-
ingar á þessu en karla hatur sjóðs-
ins. Það gæti verið að karlmenn
kærðu frekar. Eða að þeir svindl-
uðu bara miklu meira. Tíu til tutt-
ugu sinnum meira.
Í vor sendi ég fyrirspurn á vel-
ferðarráðuneytið þar sem ég bað
um fjölda endurkröfumála vegna
fæðingarorlofs á árunum 2008-2012,
eftir kyni. Ég bað annars vegar um
a) fjölda þeirra skipta þar sem for-
eldrar fengu bréf um að mál þeirra
væru til athugunar og hins vegar
um b) fjölda endurkröfubeiðna sem
sendar voru út.
Um mitt sumar barst svar frá
ráðuneytinu. Þar var vísað í svar
Fæðingarorlofssjóðs þar sem kom
fram að gögnin lægju ekki fyrir og
„ljóst væri að talsverður tími og
vinna færi í slíka samantekt“. Þetta
ljósa mat má reyndar draga í efa en
geymum það að sinni.
Svöruðu einhverju
Ráðuneytið og sjóðurinn svöruðu þó
einhverju, þótt það væri ekki alveg
það sem spurt var um. Í bréfinu
segir: „samkvæmt […] samantekt
hafi á árinu 2011 verið send 2.329
bréf til foreldra þar sem tilkynnt
hafi verið um að rannsókn væri
hafin á því hvort hugsanlega hefði
verið um að ræða of háar greiðslur
úr Fæðingarorlofssjóði til viðkom-
andi foreldra í tengslum við fæðing-
arorlof þeirra.
Fram kemur að á árinu 2012 hafi
slík bréf hins vegar verið 2.528 tals-
ins. Jafnframt kemur fram að auk
framangreindra bréfa hafi Fæð-
ingarorlofssjóður sent bréf til 962
foreldra á árinu 2011 þar sem við-
komandi foreldrar hafi verið krafð-
ir um endurgreiðslu á fæðingaror-
lofsgreiðslum þar sem greiðslur úr
sjóðnum til þeirra í tengslum við
töku fæðingarorlofs hafi verið of
háar en á árinu 2012 hafi verið um
að ræða bréf til 1.354 foreldra vegna
sama efnis.“
Aðeins til að setja þetta í sam-
hengi: Það fæðast um 4,5 þúsund
börn á ári á Íslandi. Þau börn eiga
sér þá 9 þúsund foreldra. Rannsókn-
irnar eru 2,5 þúsund. Það er heljar-
innar hlutfall. Lendir fjórða hvert
foreldri í rannsókn?
Og það er vinna að lenda í rann-
sókn. Það þarf að safna saman gögn-
um, launaseðlum, skattskýrslum,
skrifa greinargerð með skýringum
og svo þarf að biðja vinnuveitand-
ann um skrifa skýrslu. Loks þarf
að prenta þetta út og senda þetta. Á
Hvammstanga.
Ber að veita upplýsingar
Nú geta menn spurt: „Er ekki eðli-
legt að menn skoði hvort fólk sé ekki
að svindla? Er ekki eðlilegt að menn
séu beðnir um skýringar ef eitthvað
lítur grunsamlega út?“ Vissulega.
En samt.
Það liggur fyrir að eitthvað er
brotið í kerfi þar sem fjórða hvert
foreldri lendir í rannsókn og sjö-
unda hvert lendir í innheimtu.
Opinberar stofnanir ættu að leitast
við að leiðbeina fólki svo það lendi
ekki í vandræðum að óþörfu. Það er
heilmikil, oft flókin, lagasetning í
kringum svona orlof og fæstir þurfa
að sökkva sér í hana oft á ævinni.
Þekkingin er öll hjá stofnuninni.
Lendir kannski annar hver karl-
maður sem tekur fæðingarorlof í
vandræðum? Ég veit það ekki. Ég
fékk engar upplýsingar varðandi
aðalfyrirspurn mína, sem snerist
um kynjaskiptingu meðal þeirra
sem Fæðingarorlofssjóður tekur til
skoðunar. Það má benda á að skv. 21.
gr. jafnréttislaga segir „Í opinberri
hagskýrslugerð um einstaklinga
og í viðtals- og skoðanakönnunum
skal greint á milli kynja við söfnun
gagna, úrvinnslu þeirra og birtingu
upplýsinga nema sérstakar ástæður,
svo sem persónuverndarhagsmunir,
mæli gegn því.“ Sjóðnum ber því að
halda utan um þessar upplýsingar
og honum ber einnig að veita þær,
sé um það beðið.
Það er erfitt að laga pott ef eng-
inn vill segja manni hversu brotinn
hann er.
Það liggur fyrir að eitthvað
er brotið í kerfi þar sem
fjórða hvert foreldri lendir í
rannsókn og sjöunda hvert
lendir í innheimtu.
Rannsóknarsjóður
fæðinga
Í DAG
Pawel Bartoszek
stærðfræðingur
Norðurlöndin hafa margt fram að
færa í samstarfi Sameinuðu þjóð-
anna, SÞ. Framlag þeirra til mann-
úðarstarfs SÞ er stórt, þau eru í for-
ystu í mannréttindamálum – ekki
síst stúlkna og kvenna – og þau
hafa gott orðspor. Margir Norð-
urlandabúar hafa, allt frá því að
Tryggvi Lie og Dag Hammarskjöld
voru framkvæmdastjórar SÞ, verið
í áberandi stöðum innan kerfis SÞ.
Martti Ahtisaari, fyrrverandi for-
seti Finnlands, hefur lagt mikið af
mörkum sem sáttasemjari á vegum
SÞ, hin danska Ellen Margrethe Løj
er sérstakur sendifulltrúi SÞ í Líb-
eríu og okkar eigin Vigdís Finn-
bogadóttir er velgjörðarsendiherra
Menningarmálastofnunar Samein-
uðu þjóðanna, UNESCO.
Á Norðurlöndunum er fyrir hendi
stofnanaþekking og drifkraftur
sem er þörf á til að endurbæta og
styrkja Sameinuðu þjóðirnar. Því
er óheppilegt hve áberandi fjar-
vera Norðurlandanna í valdamestu
stofnun SÞ, Öryggisráðinu, hefur
verið á síðustu árum. Ísland tap-
aði kosningum til Öryggisráðsins
2008 fyrir Austurríki og Tyrklandi
en litlu munaði að Finnland kæm-
ist inn síðasta haust þegar það atti
kappi við Ástralíu og Lúxemborg.
Á sama tíma mistókst Svíþjóð að ná
sæti í Mannréttindaráði SÞ.
Alþjóðlega friðarstofnunin, IPI,
lagði nýlega mat á framboð Finn-
lands til Öryggisráðsins. Í skýrslu
IPI er staðfest að orðstír Norður-
landanna sé góður og að þau séu
mikils metin innan SÞ. Það er að
hluta tengt ríkum vilja þeirra til
að leggja sitt af mörkum og því að
þau séu laus við dulda hagsmuni.
Norræna módelið skiptir verulega
miklu máli en þegar fleiri ríki og
samfélög keppa um athygli þarf
bæði pólitískan vilja og sjálfstraust
til að markaðssetja sig, segir IPI.
Mörg atriði sameina
Norðurlöndin hafa að einhverju
leyti ólíka nálgun í alþjóðasam-
starfi en mörg atriði sameina þau.
Þar á meðal er þróun alþjóðalaga,
jafnréttismál og viljinn til að koma
í veg fyrir átök. Sterk norræn gildi
eru verndun mannréttinda, sjálf-
bær þróun, straumlínulögun þró-
unarsamvinnu og aukin skilvirkni
og gegnsæi í starfi SÞ, svo dæmi
séu tekin. Norðurlöndin geta einn-
ig lagt af mörkum til nútímalegrar
þróunar á Öryggisráðinu og starfs-
háttum þess.
IPI ráðleggur Finnlandi að draga
ekki úr þátttöku sinni innan SÞ
eftir tapið í kosningum um sæti í
Öryggisráðinu, heldur þvert á móti
tvíeflast í t.d. samningaviðræðum
og við lausn átaka. Öll Norðurlönd-
in þurfa að beita sömu nálgun. IPI
undirstrikar einnig þörfina á að
koma betur á framfæri skuldbind-
ingum og árangri í alþjóðasam-
starfi, að setja skýrari markmið í
þróunarsamvinnu, byrja kosninga-
baráttu snemma og vera ákveðin.
Með því að leggja meira af mörk-
um til friðargæslu SÞ geta aðildar-
ríkin styrkt stöðu sína innan SÞ,
segir í skýrslunni. Norðurlöndin
hafa í dag einungis 288 manns í
friðargæsluaðgerðum sem leiddar
eru af Sameinuðu þjóðunum, þrátt
fyrir góðan orðstír í friðargæslu-
störfum. IPI leggur til að Finnland
leggi meira af mörkum til lausna
átaka í Afríku. Sama verkefni er á
dagskrá sænsku ríkisstjórnarinnar,
sem samþykkti nýlega að senda 70
friðargæsluliða til Malí. Því þyrfti
að fylgja eftir með enn frekara
frumkvæði.
Einmitt nú er mikið rætt um
mikilvægi þess að styrkja nor-
ræna samvinnu. Því eru ummæli
utanríkisráðherra Svíþjóðar,
Carls Bildt, um að hverfa eigi frá
norrænni samvinnu um málefni
SÞ og samræma þau heldur innan
ESB bæði órökrétt og óheppileg.
Með samstarfi um málefni SÞ taka
Norðurlöndin sýnilega ábyrgð á
störfum Sameinuðu þjóðanna. Það
er sérstaklega mikilvægt fyrir
Ísland og Noreg, sem eru ekki í
ESB.
IPI-skýrslan hringir bjöllum
á Norðurlöndum og er ákall um
endurnýjaðan stuðning við SÞ.
Sænska ríkisstjórnin tilkynnti
fyrir níu árum um framboð sitt í
sæti í Öryggisráðinu 2017-2018. Til
að standa undir slíku framboði þarf
fjármagn, mannafla og umfram allt
pólitískan vilja. Með afdráttarlaus-
um vilja, skýru upphafi á kosninga-
baráttu og stuðningi frá grannríkj-
unum gæti gilt fyrir Norðurlöndin
að allt er þegar þrennt er, varðandi
þátttöku í Öryggisráði SÞ.
Greinin birtist á Norðurlöndunum
í dag, föstudaginn 13. september
2013.
Eigum erindi á vettvangi SÞ
UTANRÍKISMÁL
Þröstur Freyr Gylfason
formaður Félags SÞ á Íslandi
Aleksander Gabelic
formaður Félags SÞ í Svíþjóð
Helga Hjetland
formaður Félags SÞ í Noregi
Jørgen Estrup
formaður Félags SÞ í Danmörku
Sofi a Vikman
formaður Félags SÞ í Finnlandi
www.saft.is
KOMDU UPPLÝSINGUM UM ÞAÐ SEM ÞÚ
TELUR ÓLÖGLEGT EFNI Á NETINU TIL
RÉTTRA YFIRVALDA
ATHUGANIR FÆÐINGARORLOFSSJÓÐS
Á MEINTUM OFGREIÐSLUM
5000
4000
3000
2000
1000
0
2011 2012
*Rannsókn gerð á því hvort hugsanlega hefði verið um að ræða of háar greiðslur
úr Fæðingarorlofssjóði til viðkomandi foreldra í tengslum við fæðingarorlof þeirra.
2329
2528
4492 4533Athuganir*
Fædd börn