Fréttablaðið - 13.09.2013, Page 26

Fréttablaðið - 13.09.2013, Page 26
„Þegar við skrifuðum þættina veltum við því fyrir okkur hvar okkur fyndist eðlilegt að Ástríður væri stödd, hvaða veggi hún þyrfti að rekast á og bjuggum þá svo til. Ástríður hefur breyst. Hún hefur forherst eftir ástarsorg og tekur hlutina á hörkunni núna,“ segir Ilmur Kristjánsdóttir, leik- kona og handritshöfundur hinna vinsælu sjónvarpsþátta um Ástríði. Þegar sagan hefst í annarri þáttaröð er Ástríður orðin yfirmaður hóps starfs- manna í skilanefnd óskilgreinds banka og ekki alls kostar sátt við lífið. „Nei, Ástríður er frekar leiðinlegur yfirmaður,“ segir Ilmur. „Hún bannar til dæmis allt félagslíf í vinnunni og fleira. Undirmenn hennar geta lítið annað gert en tekið þessu. Nú er hún í aðstöðu til að reka fólk svo það þarf að vara sig á henni. Það má segja að hún sé á vondum stað.“ Í fyrstu þáttaröðinni var Ástríður nýr starfsmaður á nýjum vinnustað og hafði ekki mörg tækifæri til að gera gloríur. Aðrir starfsmenn sáu um gloríurnar þá en nú segir Ilmur komið að Ástríði. Fólk muni þó þekkja sína Ástríði aftur. „Já, já, við erum ekki að tala um pers- ónuleikabreytingar. En Ástríður þarf að þroskast og læra og það gerir hún í þessari seríu. Vonandi.“ Óþekktir örlagavaldar „Aðstæður Ástríðar hafa breyst, í starfi og lífi, þegar við hittum hana fyrir í annarri seríu. Það hefur ýmislegt gerst milli sería sem áhorfendur fá að finna út smám saman eftir því sem líður á,“ segir Silja Hauksdóttir leikstjóri. Upptökum á annarri seríunni af Ástríði er lokið og hefur þáttaröðin göngu sína á Stöð 2 á sunnu daginn. „Þetta gekk allt frábærlega vel. Allir vissu vel hvað þeir voru að gera og við vorum vel undirbúin. Í tökunum sjálfum vorum við bara að gera gott betra,“ segir Silja og lofar því að aðdáendur Ástríðar verða ekki sviknir. „Það svífur sama stemning yfir vötnum í nýju seríunni. Það er helst að gengið sé lengra í húmor og drama. Áhorfendur munu hitta allt sitt fólk aftur og gott betur því það koma fram nýjar persónur sem verða örlagavaldar. Okkar gömlu vinir eru samir við sig en margir þeirra þó að feta nýjar slóðir,“ segir Silja en fæst ekki til að ljóstra fleiru upp. Hún segir vel lík- legt að seríurnar um hina seinheppnu Ástríði verði fleiri. „Hún á allavega nóg inni hún Ástríður og er langt því frá orðin fullnuma í að skapa vandræði. Hún er bara mannleg og breysk eins og við öll. Það er Ástríður í okkur öllum.“ „Eins og endranær mega áhorfendur búast við ábyrgri en umfram allt þjóð- menningarlegri umfjöllun um menn og málefni,“ segir Karl Ágúst Úlfsson, spurður um komandi vetur hjá hinni einu sönnu Spaugstofu. „Við reiknum með að fá allar okkar húsnæðisskuldir felldar niður og munum greina nákvæmlega frá því jafnóðum og þær gufa upp. En þetta gerum við nú bara vegna þess að við kusum allir stjórnarflokkana. Að öðru leyti munum við áfram styðja kvóta- kerfið, orkusölu með botnlausu tapi og niðurfellingu svokallaðrar menn- ingar.“ Sem fyrr manna Spaugstofuna, auk Karls, þeir Sigurður Sigurjónsson, Pálmi Gestsson og Örn Árnason. Þar sem hlutverk þeirra hefur verið að gera grín að mönnum og málefnum hljóta efnistökin að ráðast af því hver situr við stjórnvölinn í landinu hverju sinni. Hvað gerðu þeir félagar við síðustu stjórnarskipti? Settust þeir niður og skiptu með sér hlutverkum hinna nýju ráðherra? „Nei, við fórum í bændaglímu. Sá sem felldi alla hina, helst á sniðglímu á lofti, fékk að velja sér tvö hlutverk, sem hann vill alls ekki leika. Við nefnum engin nöfn, en þeir tveir sem skíttöpuðu glímunni í ár verða látnir leika Bjarna Ben og Sig- mund Davíð í vetur. Enn hefur þó eng- inn tapað nógu stórt til að fá Vigdísi Hauksdóttur í sinn hlut,“ segir Karl Ágúst. En hverjum er skemmtilegast að herma eftir? „Hver öðrum. Sérstak- lega höfum við gaman af að herma eftir Pálma þegar hann er að herma eftir Ólafi Ragnari.“ „Það svífur sama stemning yfi r vötnum í nýju serí unni. Það er helst að gengið sé lengra í húmor og drama. Silja Hauksdóttir „ Þeir tveir sem töpuðu glímunni í ár verða látnir leika Bjarna Ben og Sigmund Davíð í vetur. 4 FÖSTUDAGUR 13. september 2013 Ábyrg umfjöllun um menn og málefni Spaugstofan Hefst á Stöð 2 28. september. Óþekktir örlagavaldar Ástríður 2 Hefst á Stöð 2 á sunnudaginn.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.