Fréttablaðið - 13.09.2013, Síða 38
FÓLK|HELGIN
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður aug lýsendum að kynna vörur og
þjónustu í formi viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýsingum. Blaðið
fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir
Sölumenn: Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434 Sverrir Birgir Sverrisson,
sverrirbs@365.is, s. 512 5432 Kolbeinn Kolbeinsson, kolli@365.is, s. 512-5447
Þeir sem þekkja japanska
matarhefð hafa eflaust prófað
tempura-grænmeti. Ýmiss
konar grænmeti er skorið niður,
dýft í deighjúp og djúpsteikt í
olíu. Grænmetið verður sérlega
stökkt og bragðgott með þessari
aðferð og hentar vel sem með-
læti eða nasl. Ýmsar sósur er
hægt að bera fram með græn-
metinu; sojasósu, sweet chili-
sósu eða aðrar eftir smekk.
Hægt er að djúpsteikja hvaða
grænmeti sem er og má þar
nefna, kúrbít, eggaldin, papriku,
gulrætur, sveppi, blómkál,
spergilkál og sætar kartöflur.
Auðvelt er að gera tempura
heima og um að gera að prófa
sig áfram.
DEIGIÐ
1 bolli hveiti
1/2 tsk. salt
1/2 tsk. sykur
1 tsk. lyftiduft
1 bolli kalt sódavatn
3 msk. grænmetisolía
Hrærið allt saman þar til
blandan er létt og meðfærileg.
Látið standa í ísskáp í 15 mínútur.
Skerið niður alls kyns grænmeti
í sneiðar. Hitið olíu til djúpsteik-
ingar í djúpri pönnu. Setjið græn-
metið í deigið og síðan í heita
olíuna. Steikið í um það bil þrjár
mínútur eða þar til grænmetið
verður stökkt og fallegt. Þerrið
á eldhúspappír en berið fram á
meðan það er enn heitt ásamt
sósum eftir smekk.
DJÚPSTEIKT GRÆNMETI
Gott um helgina.
FRÁBÆRT GRÆNMETI Hvernig væri
að breyta til um helgina og djúpsteikja
grænmeti? Hægt er að borða grænmetið
sem meðlæti, forrétt eða sem nasl með
góðum sósum.
Ég hef gert við leirmuni fyrir fólk í nokkur ár og hef safnað þeim sjálfur í þrjátíu ár. Þetta var orðið
það mikið að ég komst ekki fyrir á eld-
húsborðinu með þetta,“ segir Þor-
valdur Rúnar Jónasson, húsasmiður og
safnari með meiru.
Rúnar safnar íslenskum leirmunum
og á dágott safn af munum eftir Guð-
mund frá Miðdal, Fit og Funa og eftir
Sigurð Arnórsson. Hann flutti nýlega
viðgerðarverkstæðið af eldhúsborð-
inu heima hjá sér og niður á Kársnes-
braut 114 í Kópavogi og ákvað þá að
losa sig við eitthvað af munum. Rúnar
hefur nefnilega ekki bara safnað leir-
munum heldur á hann heljarinnar safn
af húsgögnum, húsbúnaði, málverkum
og fleiru. Hann opnar því verkstæði og
verslun á morgun.
„Það er ofboðslega mikið til af alls
konar hlutum, sem ég og fjölskyldan
höfum ekkert að gera við. Það þarf að
koma þessu út. Þetta hefur safnast að
mér úr ýmsum áttum og sumt hefur legið
í kössum í tuttugu ár. Mest eru þetta
leirmunirnir en ég hef keypt þá víða, í
Danmörku og Svíþjóð og úti í Banda-
ríkjunum. Svo veit fólk af þessum áhuga
mínum og kemur ýmsu til mín. Það er
gaman að stúdera þetta,“ segir Rúnar.
Íslenskir leirmunir eru talsvert í tísku
þessa dagana og segist Rúnar fá mikið
í viðgerð. „Unga fólkið er að koma með
gamla hluti í viðgerð, sem legið hafa í
geymslu í áratugi. Það er hægt að gera
við nánast hvað sem er. Það snýst bara
um þolinmæði,“ segir Rúnar.
En sér hann ekki eftir munum sem
hann hefur safnað að sér í tugi ára? „Ég
á svo mörg stykki af sama hlutnum.
Auðvitað er enginn hlutur eins af leir-
munum en ég sé ekkert eftir þeim. Svo
bætist alltaf aftur í hjá mér. Ef ég læt
einn þá fæ ég tvo til baka.“
Rúnar opnar formlega á laugar-
daginn milli klukkan 12 og 16. Eftir það
verður opið part úr degi þrisvar í viku
og verðu hægt að fylgjast með opnunar-
tímum á Facebook-síðunni: Hjá Rúnari –
sala á gömlum munum og leirmunavið-
gerðir. ■ heida@365.is
SAFNAÐ LEIR Í 30 ÁR
HELGIN Þorvaldur Rúnar Jónasson húsasmiður hefur safnað íslenskum
leirmunum í tugi ára og á heljarinnar safn af ýmiss konar gömlu dóti. Nú
segist hann þurfa að losa sig við það og opnar verkstæði og verslun.
SAFNAR ÍSLENSKUM
LEIR Þorvaldur Rúnar
Jónasson, húsasmiður
og safnari, hefur gert
við leirmuni undanfarin
ár. Hann hefur einnig
safnað íslenskum leir og
ýmiss konar gömlu dóti
í tugi ára og opnar verk-
stæði og verslun á Kárs-
nesbraut 114 í Kópavogi
á morgun. MYND/PJETUR
LEIRMUNIR Hjá Rúnari
er mikið magn leirmuna
að finna í hillum.
Smiðjuvegi 2, Kóp - S. 554 0400
Gasgrill
Kolagrill
Garðhúsgögn
Aukahlutir
Opið laugardag 11-16
Sunnudag 13-16
ÚTSÖLULOK
um helgina
Er frá Þýskalandi
KYMCO 2013!
Veglegur aukahlutapakki fylgir:
Öflugt spil, dráttarkúla, prófíl-
tengi, sæti og sætisbak fyrir
farþega, álfelgur og 26”
Maxxis Bighorn dekk.
Götuskráð hjól tilvalið
í leik eða starf.
Borgartún 36 • 105 Reykjavík
588 9747 • www.vdo.is
Enn betra og skemtilegra hjól hlaðið aukabúnaði
Save the Children á Íslandi
GEFÐU
HÆNU
gjofsemgefur.is
9O7 2OO3