Fréttablaðið - 13.09.2013, Side 48

Fréttablaðið - 13.09.2013, Side 48
FRÉTTABLAÐIÐ Fröken Fix. Fataskápurinn og Innblástur. Helgarmaturinn og Spjörunum úr. 10 • LÍFIÐ 13. SEPTEMBER 2013 É g er búin að vera með þessa ráðgjafaþjónustu í fjöldamörg ár og lang- aði að setja þann fróðleik sem ég hef sankað að mér í gegnum tíðina í eina bók. Þegar ég fór síðan að ræða við útgef- andann hafði ég svo margar hug- myndir og því var ákveðið að gera bókaseríu sem nefnist Trix og mix frá Fröken Fix,“ segir Sesselja Thorberg, höfundur bók- arinnar „Skapaðu þinn heimilis- stíl“ sem kemur í verslanir í dag. Bókin er hönnunarhandbók þar sem stiklað er á stóru um upp- röðun, hönnun og hvernig hægt er að skapa heimili án þess að tæma seðlaveskið í leiðinni. Sess- elja segir marga eiga erfitt með að gera huggulegt í kringum sig en algengt vandamál sé of mörg húsgögn inni á heimilinu sem skapi ringulreið. Hægt sé að gera ýmis „trix“ til þess að blekkja augun með litum og speglum. Sesselja er menntuð sem vöru- hönnuður frá Listaháskóla Ís- lands og hefur sérhæft sig í innan hússráðgjöf undir nafn- inu Fröken Fix. Verkefnin hafa verið margvísleg, tengd innan- hússhönnun og ráðgjöf og einnig var hún umsjónar maður hönn- unar- og lífsstílsþátt- arins Innlit/útlit um tíma. „Það blundaði í mér að stofna mitt eigið því mér fannst vanta aðgengilegri og hag- kvæmari leið fyrir alla að betrum bæta heim- ili sitt. Þetta var bara ástríða mín. Svo vatt þetta upp á sig og svo hafa aðrir fylgt í kjöl- farið.“ Aðspurð segir hún heimilið sitt vera blöndu af gömlu og nýju en hún aðhyllist hluti sem hafa sál og hús- gögn sem segja einhverja sögu. BÓKIN ÉG VIL AÐ HÚSGÖGNIN HEIMA SEGI EINHVERJA SÖGU Fyrsta bók Sesselju Thorberg í bókaröðinni „Trix & mix frá Fröken Fix“ kemur út í dag. Heimili þar sem Sesselja hefur endurhannað rými, breytt litum og innrétt fyrir fyrir bókina sína. Sesselja Thorberg, sem kallar sig Fröken Fix, með bókina Skapaðu inn heimilisstíl. María Lovísa útskrifaðist frá Margaretha- hönnunarskólanum í Kaupmannahöfn árið 1979. Hönnun hennar er frumleg og hefur mikinn karakter og ávallt er lögð áhersla á kvenleg snið, enda á María Lovísa fjöl- marga fasta viðskiptavini. Hún opnaði fyrst verslunina Maríurnar á Klapparstíg árið 1983 en flutti sig yfir á Skólavörðu- stíg 6b fyrir tuttugu árum. María Lov- ísa hefur alltaf lagt mikla áherslu á ís- lensku ullina og peysurnar hennar hafa verið sérstaklega vinsælar bæði hjá ís- lenskum konum og erlendum. Hún framleiðir allar sínar vörur sjálf og þær eru saumaðar hér á landi. Þá notar hún mokkaskinn gjarnan í hönnun sinni, sem margir hafa fallið fyrir, sem og fiskroð. „Ég legg áherslu á dömu- legan fatnað með karakter í öllum stærðum,“ segir María Lovísa. „Ég vil hafa fatnaðinn tímalausan en margar konur hafa sagt mér að þær noti kjólana frá mér í mörg ár. Fötin eru klassísk og eru þess vegna alltaf í tísku,“ segir hún. María Lovísa sérsaumar einnig fyrir viðskipta- vininn og veitir persónulega þjónustu við val á sniði og efni. Það er um að gera að kíkja í versl- unina þessa dagana og nýta sér afmælisafslátt- inn. María Lovísa er með heimasíðuna marialov- isa.com og hún er einnig á Facebook. HÖNNUN MARÍU LOVÍSU Í ÞRJÁTÍU ÁR María Lovísa Ragnarsdóttir fatahönnuður heldur upp á þrjátíu ára afmæli verslunar sinnar þessa dagana og veitir af því tilefni 20% afslátt af nýju haustlínunni til 21. september. AUGLÝSING: MARÍA LOVÍSA KYNNIR María Lovísa notar meðal annars ís- lenska ull, gæru- skinn og mohair í hönnun sína. Hún leggur mikla áherslu á gæða- efni og vand- aða framleiðslu. Haustlínan er kvenleg og falleg og fæst núna með 20% afmælisaf- slætti.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.