Fréttablaðið - 13.09.2013, Blaðsíða 49
Kokteilum fylgir skemmtileg serimónía og
alltaf dálítið sparilegt að dreypa á fram-
andi kokteil og upplifa nýtt bragð,“ segir
Josué Martins, yfirþjónn á kokteil barnum
Loftinu, sem státar af stærsta kokteillista
landsins.
„Með tilkomu Loftsins hefur fæðst ný
og spennandi kokteilmenning sem margir
þekkja utan úr hinum stóra heimi. Allir
kokteilar Loftsins eru öðruvísi en það sem
gerist og gengur; ferskir, framsæknir og
unaðslega bragðgóðir. Þá eru barþjónar
Loftsins metnaðarfullir og framúrskar-
andi á sínu sviði og laga sjálfir mestallt
hráefni í kokteilana úr fersku, íslensku
hráefni,“ útskýrir Martins.
Barþjónar Loftsins fá mikils metinn
liðsauka frá 17. september til næstu mán-
aðamóta þegar franski kokteilbar þjónninn
Alexandre Lambert mætir til leiks en
hann er heimsfrægur fyrir tilkomumikla
koníakskokteila.
„Loftið býr yfir einstöku andrúmslofti
í sögufrægu húsi og á saumastofu Egils
Jacobsens þar sem upprunalegar innrétt-
ingar og andi liðinnar tíðar svífur yfir
vötnum. Þegar líður á kvöldið um helgar
koma sér fyrir á Loftinu DJ Anna Brá og
fleiri af hressustu plötusnúðum bæjar-
ins og heillandi partístemning tekur yfir
þegar gestir standa upp úr sætum sínum
og dilla sér um allt hús,“ segir Martins,
sem í kvöld verður gestgjafi í haustpartíi
Loftsins þar sem nýr kokteil- og matseðill
verða kynntir til sögunnar.
Gamaldags lystaukar með nýmóðins
yfirbragði
Jónas Oddur Björnsson er yfirmatreiðslu-
maður Loftsins og nýfluttur heim eftir sjö
ára búsetu víða um heim, þar sem hann
starfaði meðal annars á Michelin-stjörnu-
veitingastöðum í Frakklandi og Danmörku
og fyrir Walt Disney á fyrsta flokks veit-
ingastað á fyrsta farrými skemmtiferða-
skips.
„Vonandi færi ég Íslendingum eitthvað
alveg nýtt á matseðli Loftsins og þótt ég
beri á borð bragð af heiminum hef ég ís-
lenskt hráefni í hávegum,“ segir Jónas,
sem hefur útbúið ómótstæðilega smá-
rétti, lystauka og ábætisrétti fyrir gesti
Loftsins.
„Við lögðumst í mikla rannsóknarvinnu
í leit að landsins besta hráefni og heim-
sóttum bestu kjötiðnaðar- og pylsugerðar-
menn landsins. Til að mynda fundum við
Ítala á Hellu sem notar íslenskt hráefni
í sælkerapylsur sem eru á heimsmæli-
kvarða og unnar eftir ítalskri hefð. Þegar
líður á haustið bjóðum við upp á villi-
bráðar bakka og hangikjöt og höldum í
árstíðina með heimagerðum sultum með
óvenjulegu sniði, eins og rófusultu með
karamellu og blómkálssultu. Þá leikum við
okkur að gömlum, vinsælum réttum eins
og flamberuðum pönnukökum með Grand
Marnier og Baileys-rjóma og flamberuð-
um ostum sem eiga alltaf vel við með vín-
glasi,“ segir Jónas, sem á Loftinu mun
setja nýtt yfirbragð á gamla og ljúffenga
partírétti sem kitla bragðlaukana.
„Sælkeramatinn vinn ég frá grunni og
lofa lostætu snarli með vínglasinu. Ég
saltbaka til dæmis hnetur í íslenskum
sjó sem ég hef soðið og sigtað til að fá
hreinan og er einstök bragðupplifun,“
segir Jónas.
Loftið er nú opnað klukkan 14 á dag-
inn og hægt að fá sér dýrindis kaffi-
drykki, kokteila, sæta ábætisrétti og
lystaukandi snarlbakka til klukkan
22. Einnig geta gestir keypt flöskur af
sterku víni á borð sitt og blandað sér
drykk sjálfir með tilheyrandi söfum og
ávöxtum til skrauts.
Loftið Lounge er í Austurstræti 9.
Borðapantanir fyrir hópa og gestalista
eru í síma 551-9400. Aldurstakmark á
Loftinu er 25 ár og snyrtilegs klæðnaðar
krafist.
GRAND GOJI COLLINS
Blandaður í hátt vínglas með krömdum
ísmolum.
1 1/2 únsa Grand Marnier
1 únsa límónusafi
2 dass Orange Bitter
1 únsa vanillusíróp
granatepla- og gojiberja-safi
Fyllið upp með sódavatni og skreytið
með appelsínuberki.
BRAGÐ AF RJÓMA HEIMSINS Á LOFTINU
Loftið er kokteilbar í heimsklassa sem jafnast á við flottustu kokteilbari New York og annarra stórborga heimsins. Þar er nú hægt að njóta
freistandi smárétta, lystauka og eftirrétta með ferskum og framsæknum kokteilum í ómótstæðilegu andrúmslofti.
Drykkir Loftsins eru lagaðir úr gæðahráefnum og í
þá notaðar eingöngu fínni tegundir sterks víns, eins
og Tanqueray-gin og Ketel One-vodka sem búa yfir
mun meiri gæðum en sams konar vín.
Jónas Oddur Björnsson yfirmatreiðslumaður að flam-
bera pönnukökur úr Grand Marnier á franska vísu.
Á Loftinu framreiða metnaðarfullir barþjónar kokteila í heimsklassa og þar hefur fæðst kokteilmenning eins og hún þekkist best frá New York og öðrum heimsborgum. Hér má sjá Josué Martins, yfirbarþjón
Loftsins, að störfum. MYNDIR/BRYNJAR SNÆR
AUGLÝSING: LOFTIÐ KYNNIR