Fréttablaðið - 13.09.2013, Síða 58

Fréttablaðið - 13.09.2013, Síða 58
20 FÖSTUDAGUR 13. september 2013 „Þátturinn tekur á því helsta sem tengist heilsu og hreyfingu. Það hefur orðið mjög jákvæð heilsuvakning í þjóðfélaginu og fólk er orðið meðvitaðra um mikilvægi hreyfingar og mataræðis. Í þættinum ætla ég að kynna mér þær íþróttir sem fólk er helst að stunda og hvernig sé best að koma sér af stað í hverri íþrótt fyrir sig,“ segir Friðrika Hjördís Geirsdóttir, Rikka, sem vinnur nú að undirbúningi nýrra þátta um heilsu og hreyfingu, sem ætlaðir eru fyrir alla fjölskylduna og bara alla sem vilja standa upp úr sófanum. „Sem dæmi má nefna hlaupaíþróttina og leitast ég við að svara því hvernig er best að undirbúa sig fyrir lengri sem og styttri hlaup og hvaða búnaður er æski- legur. Einnig kem ég inn á mataræði og næringu, sem er grunnurinn að góðri heilsu. Markmiðið er að áhorfendur verði meðvitaðir um eigin heilsu og finni það hjá sér að huga að henni.“ Rikka segir að þættinum sé fyrst og fremst ætlað að virka hvetjandi en sé ekki hugsaður til að predika eitt eða neitt. „Þátturinn er fyrir alla fjölskylduna. Einn þátturinn kemur til með að fjalla um þær íþróttir sem öll fjölskyldan getur stundað saman enda byrjar gott hugarfar gagnvart hreyfingu og heilsu snemma. En það er heldur aldrei of seint að byrja að huga að heilsunni og ég hugsa að flestir vilji láta sér og öðrum líða örlítið betur.“ Fyrir alla fjölskylduna Rikka Hefst á Stöð 2 í janúar. „ Einn þátturinn kemur til með að fjalla um þær íþrótt ir sem öll fjölskyldan getur stundað saman. Friðrika Hjördís Geirsdóttir Stöð 2 leggur metnað sinn í að bjóða upp á hágæða íslenskt barnaefni í bland við talsettar teiknimyndir og kvikmyndir fyrir yngstu áhorf- endurna. Barnaefni er sýnt reglulega á Stöð 2 auk þess sem Krakkastöðin sýnir íslenskt og talsett barnaefni frá klukkan 7 á morgnana og fram eftir kvöldi. Krakkastöðin fylgir áskrift að Stöð 2. Glænýir þættir af Ávaxtakörfunni verða teknir til sýninga á Stöð 2 um helgina, en um er að ræða ellefu þætti sem framleiddir voru sam- hliða kvikmyndinni Ávaxtakarfan. Boðskap- urinn er góður, allir eiga að vera vinir og allir mega vera með. En það getur tekið tíma fyrir ávextina að læra þessi grunngildi. Kvikmyndin Ávaxtakarfan fékk Edduverðlaun fyrr á árinu sem besta barnaefnið. Þættirnir hefja göngu sína á morgun. Sveppi er langbesti vinur barnanna og hann heldur áfram að skemmta ungum sem öldnum í félagsskap Villa vinar síns. Þá er einnig væntan- leg þáttaröð um Ben 10, sem nú er talsett á íslensku. Góðkunningjarnir Dóra og Klossi, Diego, Svampur Sveinsson og Pétur, mörgæs- irnar frá Madagaskar, Doddi, Eyrnastór og allir hinir halda einnig áfram að gleðja börnin á hverjum degi á Stöð 2 og Krakkastöðinni. Bestu vinir barnanna Ávaxtakarfan Hefst á Stöð 2 14. september. „Glænýir þættir af Ávaxtakörfunni verða teknir til sýninga á Stöð 2 um helgina.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.