Fréttablaðið - 13.09.2013, Síða 72

Fréttablaðið - 13.09.2013, Síða 72
13. september 2013 FÖSTUDAGUR| MENNING | 28 Skaft ahlíð 24 | 105 Reykjavík | 512 5000 | Auglýsingar 512-5401 | visir.is HELGARBLAÐ FRÉTTABLAÐSINS Ómissandi hluti af góðri helgi FRÉTTABLAÐIÐ ER HELGARBLAÐIÐ DÁIST AÐ VIÐHORFI ÍSLENDINGA Sænski bóndasonurinn, þjálfarinn og þjóðhetjan Lars Lagerbäck hefur náð frábærum árangri með íslenska knattspyrnulandsliðið. Hann segir Íslend- inga vana því að taka ábyrgð í stað þess að bíða eftir hjálp. Hvað gerist þegar þú missir stjórnina? Harmsaga er fyrsta uppsetning leikstjórans Unu Þorleifs- dóttur í Þjóðleikhúsinu. Við þurfum að stokka upp í heilbrigðiskerfinu Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra vill auka heilbrigðis- þjónustu á kostnað umsvifa eftirlitsstofnana. Arkitektúrinn er lífsstíll Jórunn Ragnarsdóttir arkitekt sópar til sín verðlaunum í Þýskalandi. MENNING Það er auðvitað mikill heiður að hljóta þessi verðlaun hér á Spáni,“ segir Arnaldur Indriðason, sem í gær hlaut spænsku RBA-bók- menntaverðlaunin fyrir bók sína Skuggasund, sem kemur út samtím- is á íslensku og spænsku 1. nóvem- ber. „Þau hjá Forlaginu spurðu mig í vetur hvort ég ætti ekki eitthvað til að senda í þessa keppni og það vildi til að ég var einmitt að ljúka við Skuggasund. Hún var þýdd yfir á spænsku í snatri, send inn í keppnina og þetta er niðurstaðan.“ Þekktasta persóna Arnaldar, lög- reglumaðurinn Erlendur, er víðs fjarri í nýju bókinni og raunar allt hans lögregluteymi. „Þetta er alveg glæný persóna,“ segir Arnaldur. „Lögreglumaður á eftirlaunum sem fer að garfa í gömlu sakamáli frá 1944 þegar stúlka fannst myrt bak við Þjóðleikhúsið. Sagan fjallar um rannsókn málsins bæði á þeim tíma og í nútímanum.“ Byggir sagan þá á raunverulegu sakamáli? „Nei, nei, alls ekki, þetta er allt hreinn skáldskapur,“ segir Arnaldur. Bókin hefur enn sem komið er ekki verið seld til fleiri landa en væntanlega munu þessi verðlaun auka eftirspurnina. Arnaldur er til dæmis geysivinsæll í Frakk- landi þar sem bókaverslanir aug- lýsa hann sem konung glæpa- sögunnar, en hann segist aldrei hugsa um erlendan markað þegar hann skrifar. „Alls ekki, ég ein- beiti mér að því að skrifa íslenskar sögur fyrir Íslendinga, hitt er bara ánægjulegur fylgifiskur.“ RBA-bókmenntaverðlaunin eru ein þekktustu verðlaun heims í glæpasagnaheiminum, en þau eru veitt á hverju ári fyrir óútgefna glæpasögu. Samkeppnin var hörð því 183 handrit voru send inn í keppnina í ár, sem eru reyndar tíð- indi fyrir Arnald. Spurður hvort hann hafi átt von á því að sigra segir hann svo ekki hafa verið, þótt auðvitað hafi sá möguleiki hvarflað að honum. „Þetta er mjög ánægju- legt í alla staði og eins og ég segi mikill heiður,“ segir hann. - fsb Glæný aðalpersóna í verðlaunabók Arnaldar Arnaldur Indriðason hlaut í gær RBA-bókmennta- verðlaunin spænsku. Verðlaunin hlaut hann fyrir bókina Skuggasund þar sem glænýr lögreglumaður er kynntur til leiks. Bókin kemur út 1. nóvember. KÓNGURINN Arnaldur Indriðason kynnir nýjan lögreglumann til leiks í verðlaunabókinni Skuggasundi. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Fjölbreyttar listsýningar eru á dagskrá Listasafns Reykjavíkur í vetur. Á morgun, þann 14. septem- ber klukkan fjögur, verða opnaðar þrjár sýningar í Hafnar húsinu sem marka upphaf sýningatíma- bils vetrarins. Þetta eru sýningarnar Brunnar eftir litháíska listamanninn Zilvinas Kempinas, Vera eftir Tomas Martišauskis, sem einnig er frá Litháen, og sýningin Íslensk vídeólist frá 1975-1990 þar sem sýnd verða verk eftir á annan tug listamanna. „Á sýningunni er til dæmis að finna verk eftir Steinu Vasulka sem er meðal frumkvöðla á sviði vídeó listar á heimsvísu og myndband með Sykurmolunum,“ segir Berghildur Erla Bernharðsdóttir, kynningar- stjóri Listasafns Reykjavíkur. „Verkin voru flest sýnd í fyrsta skipti hér á landi á níunda áratug síðustu aldar. Fæst þeirra hafa verið sýnd hér síðan. Markmiðið með sýningunni er að draga fram verk sem sýna fyrstu tilraunir íslenskra listamanna til að nota vídeómiðilinn til listsköp- unar. Það gerist um svipað leyti og vídeóleigurnar héldu innreið sína í íslenskt menningarlíf og tón- listarmyndbönd urðu hluti af markaðssetningu nýrra hljómplatna,“ útskýrir Berghildur. Brunnar er staðbundin innsetning. „Segulbönd bylgjast í gusti frá tíu aflmiklum loftræstiblásurum og mynda þannig eins konar landslag. Litháíski lista- maðurinn Zilvinas Kempinas hefur nýtt sér segul- bönd úr VHS-spólum til að skapa verk sem virðast hafna upprunalegu hlutverki miðilsins. Verkin eru byggð á nýrri tækni og hafa löngum vakið nostalgíu hjá þeim sem voru vanir segul- og myndböndum,“ segir Berghildur Erla jafnframt. „Zilvinas Kemp- inas hefur haldið fjölda sýninga í Banda ríkjunum og víðar, hann var fulltrúi Litháens á Feneyja- tvíæringnum árið 2009 og hlaut Calder-verðlaunin frá Calder-stofnuninni árið 2007,“ bætir hún við. Vera er nýjasta sýning litháíska lista mannsins Tomas Martišauskis sem einnig verður opnuð á morgun. Tomas Martišauskis býr og starfar í Vilníus og hefur hingað til aðallega sýnt verk sín í Litháen. „Í þessu verki kemur fram póstmódernísk sýn á tengsl höggmynda og rýmis. Listamaðurinn um- breytir einstökum skúlptúr í form nútímamiðla og víkkar þannig út hugmyndir okkar um hefðbundna skúlptúra. Verkið og þrjár birtingarmyndir þess eru sýndar en þær koma fram í þrívíddarmynd, á mynd- bandi og í hljóðmynd. Hið mótsagnakennda samband milli verksins og afritanna sýnir ólíka þætti verks- ins: Innviði þess og ytra borð, hljóðheim og þrívídd í hreyfimynd og teikningu,“ segir Berghildur að lokum. olof@frettabladid.is Íslenskri vídeólist gerð skil í Hafnarhúsi Sýningarnar Brunnar eft ir Zilvinas Kempinas, Vera eft ir Tomas Martišauskis og Ís lensk vídeólist frá 1975-1990 verða opnaðar í Hafnarhúsinu á morgun klukkan fj ögur. Á ÍSLENSKRI VÍDEÓLIST ERU VERK EFTIR Á ANNAN TUG LISTAMANNA Hér má sjá verkið Allvision frá árinu 1976 eftir Steinu Vasulka. MYND/LISTASAFN REYKJAVÍKUR
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.