Fréttablaðið - 13.09.2013, Blaðsíða 74
13. september 2013 FÖSTUDAGUR| MENNING | 30
13. SEPTEMBER
Tónleikar
12.15 Hádegistónleikar Tríós
Reykjavíkur á Kjarvalsstöðum fara
fram í dag. Á efnisskránni verða verk
eftir þrjú tónskáld. Fyrst verður flutt
sónata fyrir 2 fiðlur eftir Jean Marie
Leclaire. Næst á eftir verða fluttir
tveir þættir úr tvíleiksverki fyrir fiðlu
og víólu eftir Wolfgang Amadeus
Mozart. Að lokum munu allir þrír
flytjendur sameinast í flutningi
á Terzetto eftir Antonin Dvorák.
Aðgangur er ókeypis og allir eru
velkomnir.
20.30 Tónelskir læknar munu troða
upp á Café Rósenberg í kvöld.
Meðal þeirra er fram koma eru
Eyjólfur Guðmundsson og hljóm-
sveitin Ómagar, Sindri Stefánsson
og Snæfríður Sól Snorradóttir, Helgi
Júlíus, Árný Árnadóttir og Þórður
Þórkellsson, Ágúst Gústafsson og
félagar, Gleðisveit Guðlaugar, Michael
Clausen, Þórður Þórkellsson og Snorri
Örn Clausen.
21.00 Gamli Gaukurinn blæs til
elektrónísks rokk-alternative-hipp-
hoppkvölds. Fram koma Ultra-Mega
Technobandið Stefán og Bloodgroup.
Happy Hour er á milli klukkan 21 og
22. Aðgangseyrir er 2.000 krónur.
23.00 Ingvar Valgeirsson og Pálmi
Hjaltason leika og syngja á Obladí-
oblada við Frakkastíg 8 í kvöld.
Fræðsla
12.10 Hollenski myndlistarmaðurinn
Kees Visser fjallar um verk sín á
sýningunni Ups and downs sem nú
stendur yfir í Listasafni Íslands. Kees
er mörgum kunnur vegna áralangrar
búsetu á Íslandi á sjöunda og átt-
unda áratug síðustu aldar og dvalar
um lengri og skemmri tíma en hann
hefur einnig starfað sem leið-
sögumaður erlendra ferðalanga hér
á landi.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is
FÖSTUDAGURHVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Nýjasta plata Snorra Helgasonar
og hljómsveitar hans kemur út í
dag. Haldið verður upp á útgáfu
plötunnar með tónleikum í Frí-
kirkjunni þann 18. september.
Platan heitir Autumn Skies og
er tekin upp í stúdíói Snorra sem
ber nafnið Kolgeit. Platan kemur
út á vegum útgáfufyrirtækisins
Record Records.
Snorri kemur ekki einn fram
að þessu sinni heldur varð til
fjögurra manna hljómsveit við
vinnslu plötunnar, sem heitir ein-
faldlega Snorri Helgason.
Dúettinn Ómar Guðjónsson og
Skúli Sverrisson hitar upp fyrir
tónleikana. Húsið verður opnað
klukkan 19.30 og er hægt að
nálgast miða á Midi.is.
Plata Snorra
kemur út í dag
FAGNAR ÚTGÁFU Snorri Helgason
gefur út nýja plötu í dag. MYND/OWEN FIENE
„Ég ætla að vera í geðveiku stuði,“
segir Sunna Margrét Þórisdóttir,
söngkona hljómsveitarinnar Blood-
group, en hljómsveitin kemur til
með að spila ásamt UltraMega-
Techno-bandinu Stefáni á Gamla
Gauknum í kvöld á svokölluðum
Bræðingi.
„Við verðum með efni allt frá
2007 til dagsins í dag. Þetta verður
megapartí. Doddi trommuleikari
er að fara að tromma með okkur
og setur mikinn kraft í sjóvið,“
segir Sunna. „Hann gerir þetta
enn þá meira rokk og við verðum
öll þarna rennandi sveitt og ég
veit að það verður gaman.“ Sunna
segist viss um að hljóm sveitirnar
tvær eigi vel saman. „Þetta er
geggjað kombó, held ég,“ segir hún
að lokum. - ósk
„Geggjað kombó“
Bloodgroup kemur fram á Gauknum í kvöld.
SYNGUR Í KVÖLD Sunna Margrét
Þórisdóttir kemur fram með Blood-
group í kvöld.
Leikarinn geðþekki Víkingur
Kristjánsson ætlar að troða upp í
Kaupfélaginu á Suðureyri í sam-
starfi við Kex og Fisher man.
Verkið sem hann sýnir heit-
ir Bjórsaga Víkings og er eftir
hann sjálfan og Nönnu Kristínu
Magnús dóttur leikkonu.
Víkingur, sem er mikill bjór-
áhugamaður, ætlar að vera með
skemmtilega fræðslu um hinar
ýmsu bjórtegundir, bjóða upp
á gott úrval af bjórsmakki og
á Facebook-síðu viðburðarins
kemur fram að þetta verði taum-
laus gleði. Sýningar verða í kvöld
og á morgun og
hefjast klukk-
an 20.30.
Víkingur segir
bjórsögur
SPRELLAR UM
BJÓR Víkingur
Kristjánsson ætlar
að segja bjórsögur
í Kaupfélaginu á
Suðureyri um
helgina.