Fréttablaðið - 13.09.2013, Page 76

Fréttablaðið - 13.09.2013, Page 76
13. september 2013 FÖSTUDAGUR| MENNING | 32 Fimm kvikmyndir verða sýndar í flokknum Ísland í brennidepli á Alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Reykjavík, RIFF, í lok mánaðarins. „Hátíðin er bæði ætluð alþjóð- legum og íslenskum kvik myndum. Í þessum flokki eru íslenskar myndir og myndir sem varða Ísland á einhvern hátt, til dæmis myndir sem gerast á Íslandi en eru eftir erlenda leikstjóra. Í ár verður alls konar „gúmmelaði“ í boði, meðal annars heimildarmyndin Aska sem fékk verðlaun sem besta heimildarmyndin á Skjaldborg, og stuttmyndin Hvalfjörður sem hlaut verðlaun á hátíðinni í Cannes í ár,“ segir Gunnar Hjálmarsson, starfs- maður kynningardeildar RIFF. Hátíðin fer fram 26. september til 6. október. Íslenskt „gúmmelaði“ á RIFF Fimm kvikmyndir verða sýndar í fl okknum Ísland í brennidepli. ASKA ASH LEIKSTJÓRI: Herbert Sveinbjörnsson (ICE) 2013 Aska er heimildarmynd um afleiðingar eldgosanna í Eyjafjallajökli á árunum 2010 til 2011. Hún segir sögu þriggja fjölskyldna sem búa í nágrenni við jökulinn og stórbrotin áhrif eldhræringanna á líf þeirra. Myndin er verðlaunamynd Skjaldborgarhátíðarinnar. Í febrúar í fyrra sagði Frétta- blaðið frá því að Herbert Sveinbjörnsson, leikstjóri myndarinnar, væri önnum kafinn við að framleiða íslenskan raunveruleikaþátt þar sem fylgst yrði með lífi fjögurra íslenskra ungmenna. NAKIN LULU LULU IN THE NUDE LEIKSTJÓRI: Sólveig Anspach (FRA) 2013 Í kjölfar þess að starfsviðtal fer á versta veg ákveður Lulu að yfirgefa eiginmann sinn og þrjú börn. Að vera slík ævintýrakona er hins vegar hægara sagt en gert. Leikkonan Karin Viard, sem fer með titilhlutverkið, er þekkt leikkona í föðurlandi sínu, Frakklandi. Hún er hvað þekktust fyrir hlutverk sitt í myndunum Delicatessen, Polisse og Time Out. Hún sat í dóm- nefnd á kvikmyndahátíðinni í Cannes árið 2003. DAGAR GRÁMANS DAYS OF GRAY LEIKSTJÓRI: Ani Simon-Kennedy (ICE / USA) 2012 Days of Gray er tímalaus uppvaxtarsaga ungs drengs. Myndin er algjörlega laus við samtöl og tónlistin við myndina er frumsamin af íslensku hljóm sveit- inni Hjaltalín. Leikstjóri myndarinnar, Ani Simon-Kennedy, var lærlingur tökumanns kvikmyndarinnar Midnight in Paris eftir Woody Allen. Leikkonan Diljá Vals- dóttir, sem leikur ungu stúlkuna í Dögum grámans, fer einnig með hlutverk í myndinni Málmhaus í leikstjórn Ragnars Bragasonar. BÚÐIN THE SHOP LEIKSTJÓRI: Árni Gunnarsson (ICE) 2013 Sá sem kemur inn í Verslun H. Júlíussonar á Sauðárkróki ferðast í huganum áratugi aftur í tímann. Í Búðinni kynnumst við Bjarna og Dísu konu hans, fjölskyldu þeirra og vinum. Árni Gunnarsson var tilnefndur til Edduverð- launanna fyrir heimildarmynd ársins árið 2010 fyrir myndina Kraftur– Síðasti spretturinn. SVONA ER SANLITUN THIS IS SANLITUN LEIKSTJÓRI: Robert Ingi Douglas (ICE / IRE / CHI) 2013 Róbert Ingi Douglas snýr aftur með grínmynd sem gerist í Kína. Gary er í Peking til að meika það. Eftir að honum mistekst að vekja hrifningu kínverskra fjárfesta fer hann að kenna ensku og soga í sig lífsspeki Franks, hins óhæfa læriföður. Myndin er opnunarmynd RIFF. Leikarinn Carlos Ottery leikur Gary. Hann flutti til Kína árið 2008 og starfaði sem enskukennari í nokkur ár. Hann stofnaði síðar uppi- standsklúbbinn Comedy Club China í Peking og nýtur staðurinn mikilla vinsælda. Hlutverk Gary er frumraun hans á sviði leiklistar.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.