Fréttablaðið - 13.09.2013, Blaðsíða 76
13. september 2013 FÖSTUDAGUR| MENNING | 32
Fimm kvikmyndir verða sýndar
í flokknum Ísland í brennidepli á
Alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í
Reykjavík, RIFF, í lok mánaðarins.
„Hátíðin er bæði ætluð alþjóð-
legum og íslenskum kvik myndum.
Í þessum flokki eru íslenskar
myndir og myndir sem varða
Ísland á einhvern hátt, til dæmis
myndir sem gerast á Íslandi en eru
eftir erlenda leikstjóra. Í ár verður
alls konar „gúmmelaði“ í boði,
meðal annars heimildarmyndin
Aska sem fékk verðlaun sem besta
heimildarmyndin á Skjaldborg, og
stuttmyndin Hvalfjörður sem hlaut
verðlaun á hátíðinni í Cannes í ár,“
segir Gunnar Hjálmarsson, starfs-
maður kynningardeildar RIFF.
Hátíðin fer fram 26. september
til 6. október.
Íslenskt „gúmmelaði“ á RIFF
Fimm kvikmyndir verða sýndar í fl okknum Ísland í brennidepli.
ASKA ASH
LEIKSTJÓRI: Herbert
Sveinbjörnsson (ICE) 2013
Aska er heimildarmynd
um afleiðingar eldgosanna
í Eyjafjallajökli á árunum
2010 til 2011. Hún segir
sögu þriggja fjölskyldna
sem búa í nágrenni við
jökulinn og stórbrotin áhrif
eldhræringanna á líf þeirra.
Myndin er verðlaunamynd
Skjaldborgarhátíðarinnar.
Í febrúar í fyrra sagði Frétta-
blaðið frá því að Herbert
Sveinbjörnsson, leikstjóri
myndarinnar, væri önnum
kafinn við að framleiða
íslenskan raunveruleikaþátt
þar sem fylgst yrði með lífi
fjögurra íslenskra ungmenna.
NAKIN LULU LULU IN THE NUDE
LEIKSTJÓRI: Sólveig Anspach (FRA) 2013
Í kjölfar þess að starfsviðtal fer á versta veg ákveður
Lulu að yfirgefa eiginmann sinn og þrjú börn. Að
vera slík ævintýrakona er hins vegar hægara sagt
en gert.
Leikkonan Karin Viard, sem fer með titilhlutverkið,
er þekkt leikkona í föðurlandi sínu, Frakklandi. Hún
er hvað þekktust fyrir hlutverk sitt í myndunum
Delicatessen, Polisse og Time Out. Hún sat í dóm-
nefnd á kvikmyndahátíðinni í Cannes árið 2003.
DAGAR GRÁMANS DAYS OF GRAY
LEIKSTJÓRI: Ani Simon-Kennedy (ICE / USA) 2012
Days of Gray er tímalaus uppvaxtarsaga ungs drengs. Myndin er algjörlega
laus við samtöl og tónlistin við myndina er frumsamin af íslensku hljóm sveit-
inni Hjaltalín.
Leikstjóri myndarinnar, Ani Simon-Kennedy, var lærlingur tökumanns
kvikmyndarinnar Midnight in Paris eftir Woody Allen. Leikkonan Diljá Vals-
dóttir, sem leikur ungu stúlkuna í Dögum grámans, fer einnig með hlutverk í
myndinni Málmhaus í leikstjórn Ragnars Bragasonar.
BÚÐIN THE SHOP
LEIKSTJÓRI: Árni Gunnarsson (ICE) 2013
Sá sem kemur inn í Verslun H. Júlíussonar á
Sauðárkróki ferðast í huganum áratugi aftur í
tímann. Í Búðinni kynnumst við Bjarna og Dísu
konu hans, fjölskyldu þeirra og vinum.
Árni Gunnarsson var tilnefndur til Edduverð-
launanna fyrir heimildarmynd ársins árið 2010 fyrir
myndina Kraftur– Síðasti spretturinn.
SVONA ER SANLITUN THIS IS SANLITUN
LEIKSTJÓRI: Robert Ingi Douglas (ICE / IRE / CHI) 2013
Róbert Ingi Douglas snýr aftur með grínmynd sem gerist í Kína.
Gary er í Peking til að meika það. Eftir að honum mistekst að
vekja hrifningu kínverskra fjárfesta fer hann að kenna ensku
og soga í sig lífsspeki Franks, hins óhæfa læriföður. Myndin er
opnunarmynd RIFF.
Leikarinn Carlos Ottery leikur Gary. Hann flutti til Kína árið 2008
og starfaði sem enskukennari í nokkur ár. Hann stofnaði síðar uppi-
standsklúbbinn Comedy Club China í Peking og nýtur staðurinn
mikilla vinsælda. Hlutverk Gary er frumraun hans á sviði leiklistar.