Fréttablaðið - 13.09.2013, Qupperneq 80
KÖRFUBOLTI Handaband NBA-dóm-
arans Joey Crawford var kröftugt
þegar hann kynnti sig fyrir blaða-
manni á fundi Körfuknattleikssam-
bandsins í Laugardalnum í gær.
Þekktasti dómarinn í sinni íþrótt
í heiminum lék á als oddi og hafði
gaman af að spjalla við viðstadda.
„Lífið snerist um körfubolta í
hverfinu mínu sem krakki,“ segir
Crawford sem ólst upp í Phila-
delphiu. Hann segir alla hafa spilað
körfubolta frá morgni til kvölds og
að margir verið mjög góðir.
„Ég var meðalmaður í besta
falli,“ segir Crawford og bætir
við um hæl: „Þess vegna varð ég
dómari.“
Bandaríkjamaðurinn, sem er
nýorðinn 62 ára og var í banastuði
á fundinum í gær, segir það hafa
haft mikil áhrif á starfsferil sinn
að faðir hans var einnig dómari en
reyndar í atvinnumannadeildinni í
hafnabolta.
„Frá því ég var krakki og fór á
leiki í fótbolta, körfubolta, boxi og
hverju sem er var athygli mín allt-
af á dómurunum,“ segir Crawford.
Hann byrjaði að dæma átján ára en
segist hafa vitað fjórtán ára gamall
að hann vildi dæma í NBA.
Spurt hvort hann væri geðveikur
„Ég sagði krökkunum og kenn-
urunum mínum í menntaskóla frá
markmiðum mínum. Þau höfðu rétt
fyrir sér þegar þau spurðu mig
hvort ég væri geðveikur,“ segir
Crawford og hlær. Metnaður hans
og áhugi hefur hins vegar skilað
honum langt. Þegar hann mætti í
dómaraprufur fyrir NBA-deildina
aðeins 21 árs gamall, árið 1972,
göptu menn. Hann kunni þetta allt
saman.
Crawford er hér á landi líkt og
Zsolt Hartyani hjá Evrópska körfu-
knattleikssambandinu í tilefni 50
ára afmælis Körfuknattleiksdóm-
arafélags Íslands. Nokkur munur
er á körfuboltanum vestanhafs og
í Evrópu. Crawford segir óskandi
að reglurnar væru alls staðar eins
líkt og í knattspyrnu. Crawford
setur spurningarmerki við þá reglu
í Evrópu að dómarar þurfi að hætta
störfum þegar þeir ná fimmtugu.
„Ég væri því hættur fyrir langa
löngu ef ég dæmdi hérna,“ segir
Crawford. Hann segir það synd að
dómarar í álfunni þurfi að hætta á
besta aldri.
„Þú missir fyrir vikið góða dóm-
ara og mikla reynslu úr körfu-
boltanum.“
Dick Bavetta er dæmi um slíkt
en Bandaríkjamaðurinn, sem er á
74. aldursári, er enn í fullu fjöri og
sinnir dómgæslu í NBA-deildinni.
„Hann er stöðugt í ræktinni til að
standa framar öðrum dómurum,“
segir Crawford, sem er vel þekktur
í heimalandi sínu. Mörgum hefur
þótt hann of gjarn við að gefa leik-
mönnum tæknivillur í gegnum
tíðina. Þá vöktu samskipti hans við
Tim Duncan, miðherja San Antonio
Spurs, athygli á miðjum síðasta ára-
tug. Lauk einum viðskiptum þeirra
Crawfords á þann veg að dómarinn
var settur í hlé af forsvarsmönnum
deildarinnar. Sakaði Duncan landa
sinn um að hafa spurt sig hvort
hann vildi slást við sig þegar upp
úr sauð í leik.
Neikvætt starf
„Ég gerði mistök og lærði af þeim,“
segir Crawford, sem missti af síð-
ustu vikum tímabilsins vorið 2007.
Hann mætti þó sterkur til leiks um
haustið eftir að hafa leitað hjálpar
hjá sálfræðingi. Hann segir eitt
það mikilvægasta í starfi dóm-
ara að þeir geti tekið gagnrýni og
viðurkennt mistök. Menn þurfi að
geta gengið inn í búningsherbergi
eftir leiki og horfst í augu við slaka
frammistöðu.
„Fólk á almennt erfitt með að
viður kenna mistök. En þegar dóm-
arar komast yfir þessa hindrun
bæta þeir sig hratt.“
Crawford, sem situr fyrir svörum
á opnum fundi fyrir íslenska körfu-
knattleiksunnendur í Laugardals-
höll klukkan 13 í dag, segir að dóm-
arastarf sé neikvætt. Menn bendi
honum reglulega á að þeir ættu að
vera jákvæðir og skemmtilegir.
Þannig virki hlutirnir hins vegar
ekki og rifjar hann upp sjötta leik
Miami Heat og San Antonio Spurs
í úrslitaeinvíginu í vor til að styðja
mál sitt.
Þá hafi dómaratríóið gengið inn
í búningsklefa, afar sátt við eigin
frammistöðu og síminn fyllst af
jákvæðum sms-skilaboðum. Svo
hafi eitt borist frá kollega þeirra,
Scott Foster: „Þið klúðruðuð skipt-
ingu.“
„Svona er okkar starf,“ segir
Crawford. Hans hlutverk sé að gera
sitt besta og lágmarka mistökin. Að
hleypa varamanni inn á völlinn á
röngum tímapunkti hafi vissulega
verið mistök.
„Við þökkum guði fyrir að
sú ákvörðun hafði ekki áhrif á
leikinn.“ kolbeinntumi@frettabladid.is
Er betra að dómari hafi spilað leikinn?
Zolt Hartyani hjá FIBA segist iðulega fá þá spurningu hvort það sé mikil-
vægt að dómari hafi áður verið leikmaður. Ungverjinn segist iðulega svara
spurningunni játandi enda hafi leikmenn góða tilfinningu fyrir skrefum,
snertingu og fleiru frá tíma sínum sem leikmenn.
„En þegar þú fylgist með dómurum dæma eru margir sem hafa nánast
ekkert spilað af alvöru og eru mjög góðir.“
Tveir fyrrverandi NBA-leikmenn, Leon Wood og Haywoode Workman,
eru nú dómarar í NBA-deildinni. Joey Crawford segir að fyrir vikið fái þeir
oft að njóta vafans. Þeir þurfi til að mynda ekki að dæma næstum því
sama magn af leikjum í menntaskóla- og háskólaíþróttum.
„Þessir leikir eru mjög mikilvægir í þróun dómarans. Að dæma í troð-
fullum íþróttahúsum með öskrandi foreldra í stúkunni. Þar lærir þú að
dæma.“
Lærði af mistökunum
Joey Crawford er þekktasti körfuknattleiksdómari í heimi. Frá fj órtán ára aldri
var hann ákveðinn í að dæma í NBA-deildinni. Það hefur hann gert í 36 ár.
ÁSTRÍÐUFULLUR Crawford fór á kostum á fundinum í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
JOEY OG KOBE Crawford sagði við fundargesti að hans áhugi sneri eingöngu að körfubolta. Hann hló og sagðist vita lítið sem
ekkert um aðra hluti. NORDICPHOTOS/GETTY
Fæst án lyfseðils
Verkjastillandi
bólgueyðandi
Veldur síður
lyfjaáhrifum um
allan líkamann eins
og þegar töflur eru
teknar inn
13. september 2013 FÖSTUDAGURSPORT