Fréttablaðið - 19.09.2013, Page 1
FRÉTTIR
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI*
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup janúar - mars 2012
Fimmtudagur
24
NEKTARMYNDFyrirsætan Kate Moss mun prýða forsíðu Playboy í janúar næstkomandi. Tilefnið er 60 ára afmæli tímaritsins og fertugsafmæli Moss.
V ið ákváðum að gera litlar útgáfur af sumum þeim flíkum sem við erum að hanna á fullorðna en ég var að búa til kjólalínu sem mér fannst að myndi líka passa vel í litla kjóla,“ útskýrir Hulda Dröfn Atladóttir en hún og Linda Ósk Guðmundsdóttir hafa sent frá sér barnafatalínu undir heitinu Leyniblómið. Hulda og Linda eru báðar fatahönnuðir og standa að Leynibúðinni á Laugavegi. Þær sauma allt sjálfar og eru með saumavélina uppi við í búðinni.„Við gerum allt í litlu upplagi og því er þróunin hröð hjá okkur,“ segir Hulda. „Hugmyndin fæðist og er fram-kvæmd strax, sem er skemmtilegt. Við erum með vinnustofu annars staðar en líka í búðinni. Þannig getum við haldið áfram að framleiða þegar við erum í búðinni og brugðist við séróskum, til dæmis í stærðum og litum,“ segir hún en fyrstu flíkurnar í Leyniblóminu eru væntanlegar á markaðinn á næstu dögum.
„Þetta eru aðallega kjólar og peysur en einnig slaufur á stráka, hárbönd og fleira. Línan verður fáanleg í verslun-inni Fiðrildið.“
Hulda og Linda hafa haldið utan um Leyni búðina undanfarið ár. Hulda lærði fatahönnun við LHÍ en Linda í Kobenhavns mode og design skole í Danmörku. Hulda segir samvinnu þeirra tveggja hafa smá
LEYNIBLÓM Á BÖRNTÍSKA Hulda Dröfn Atladóttir og Linda Ósk Guðmundsdóttir, fatahönnuðir í
Leynibúðinni, eru að hanna sína fyrstu barnafatalínu. Fyrstu flíkurnar koma á
markaðinn á næstu dögum undir heitinu Leyniblómið.
ÚRVAL AF FALLEGUM YFIRHÖFNUM! ERUM MEÐ ÚLPUR Í MÖRGUM LITUMOpið laugardaga 12:00-15:00
Skipholti 29b • S. 551 0770
www.tk.is
NÝTT
MUNNBLÁSIÐ - HANDUNNIÐFæst eingöngu hjá
IV
V
ha
nd
un
ni
ð
fr
á
Íta
líu Kanna
kr. 7.900.-
Glös frá
kr. 2.400.-
Diskar frá
kr. 4.900.-
Laugaveg i 178 - S ím i : 568 9955
TÆKIFÆRISGJAFIR
Frábært
buxnaúrval!Stærðir 36-52
GARDEUR – GERKE – GINO - LINDON Bjóðum upp á extra síðar og stuttar buxur! Stretchbuxur, gallabuxur, ullarbuxur,
sparibuxur, buxur með teygju allan hringinn…
SÉRBLAÐ
Fólk
Sími: 512 5000
19. september 2013
220. tölublað 13. árgangur
Einn á móti risahöfn
Reimar Sigurjónsson, síðasti bóndinn
í Finnafirði, er ósáttur við áform
sveitarstjórna um stórskipahöfn í
Firðinum. 2
Kaupa tvö norsk skip Íslenskar
útgerðir hafa keypt tvö norsk skip.
Við það tapast 64 störf á norsku
landsbyggðinni. 4
Fátt bítur á Merkel Angela Merkel
hefur lengi virst örugg um sigur í
komandi þingkosningum í Þýska-
landi. 6
Sest við skriftir Arthur Bogason
er að hætta sem formaður Lands-
sambands smábátaeigenda eftir 28
ár í brúnni. 10
MENNING Kristina Mekkin Haralds-
dóttir söng bakraddir á tónleikum
Tired Pony í London. 62
SPORT Ólafur Stefánsson stýrir Val í
fyrsta deildarleiknum í kvöld með
nýjar áherslur í þjálfun á Íslandi. 56
Spread the Love...WWW.FREEBIRDCLOTHES.COM
Laugavegi 46 s:571-8383
freebird Dásamlegt haust 2013 er komið..
ht.is
ÞVOTTAVÉLAR
Sigrún Björgvinsdóttir
Cintamani
Opið til
21
í kvöld
Ripley’s
sýning í kvöld
kl. 19.30FERÐAÞJÓNUSTA Fullyrt er að
Reykjavík eigi góða möguleika á
því að verða ein af tíu vinsælustu
r á ð s tef nu b o r g u m h e i m s .
Markaður fyrir ráðstefnur, fundi
og hvataferðir í Evrópu veltir yfir
30 þúsund milljörðum króna á ári.
Þetta fullyrðir dr. Jonathan
Sandler, formaður framkvæmda-
nefndar 2.500 manna alþjóðlegrar
ráðstefnu sem haldin var í Hörðu
í júní. „Ég tel að Reykjavík verði
fljótt komin í hóp tíu vinsælustu
áfangastaða fyrir alþjóðlegar ráð-
stefnur, vegna þess hvað þið búið
við ótrúlega hagkvæmar og skil-
virkar aðstæður,“ sagði Jonathan í
viðtali í tengslum við ráðstefnuna.
Þorsteinn Örn Guðmundsson,
framkvæmdastjóri Meet in Reykja-
vík, segir að innviðirnir séu þegar
til staðar til að auka hlutdeild
Íslands í þeim risamarkaði sem hér
um ræðir og veltir tugþúsundum
milljarða ár hvert. Hann tekur
það dæmi að 0,05% af markaðnum
myndu skila Íslandi 16 milljörðum
í tekjur. - shá / sjá síðu 12
Sérfræðingur spáir að Reykjavík verði ein vinsælasta ráðstefnuborg heims:
Lítil sneið er tugmilljarða virði
SKOÐUN Uppræta verður nauðganir
á átakasvæðum skrifa William Hague
og Angelina Jolie. 25
Bolungarvík 7° A 5
Akureyri 9° S 2
Egilsstaðir 7° SA 5
Kirkjubæjarkl. 8° SA 4
Reykjavík 8° SA 7
HÆGT VAXANDI suðaustanátt með
rigningu fyrst sunnanlands. Hægari og
þurrt NA-til. Hiti víðast 3-10 stig. 4
INNLENT Bændur á Jökuldal fundu
dauðar kindur þegar þeir smöluðu
afréttarlönd í gær eftir óveður
síðustu daga. Mikil óvissa er um
heimtur af fjöllum því svæðið er
torfarið og ekki hægt að segja til
um hve margt liggur grafið undir
snjó.
Þorsteinn Snædal, bóndi á
Skjöldólfsstöðum, smalaði á Jökul-
dal í gær. „Það sem ég kom með
niður var náttúrulega lifandi en
hitt verður að koma í ljós. Við
sáum eitthvað af dauðu fé en auk
þess fékk ég eyrnamerki af mínu
fé sem nágranni minn hafði fundið
dautt,“ segir Þorsteinn.
Anna Bryndís Tryggvadóttir,
bóndi á Brekku á Fljótsdal, segir
að reynt verði að flytja féð í hús
á fjárvögnum þar sem mjög erfitt
sé að reka skepnurnar klaka-
brynjaðar. Hún segir tíðina valda
því að smölun geti orðið erfið.
„Það var smalað á svæðinu Rana
á Jökuldal og Fljótsdalsheiði en
þar eru á milli tvö til þrjú þúsund
fjár. Skepnurnar hafa leitað upp í
fjöll því beitin þar er mun kraft-
meiri núna vegna tíðarfars. Það
var ekkert farið að kólna og því
voru þær ekkert farnar að leita
niður,“ segir Anna.
Aðalsteinn Jónsson, bóndi á
Klausturseli, smalaði Klaustur-
selsheiði ásamt sonum sínum í
gær. Hann segir mikinn snjó hafa
verið á svæðinu og ekki margt
hafa fundist.
„Það fé sem við höfum fundið er
í lagi en hér er hellings snjór og við
vitum ekkert hvað er undir honum.
Við erum að smala um 50 kindum
og rekst illa,“ segir Aðalsteinn.
- eh
Fundu dautt fé í snjónum
Bændur á Jökuldal fundu dautt fé á fjalli í gær. Mikill snjór er á svæðinu eftir óveður síðustu daga og óvissa um
heimtur. Erfitt er að smala þar sem svæðið er torfarið og snjór er yfir öllu. Sauðféð er klakabrynjað og rekst illa.
0,05%
af evrópska ráðstefnu-
markaðnum myndi skila
Íslendingum 16 milljörðum.
Hér er hellings snjór
og við vitum ekkert hvað
er undir honum.
Aðalsteinn Jónsson,
bóndi á Klausturseli
TRÉSMIÐJA ELDI AÐ BRÁÐ Eldur kom upp í Trésmiðju Akraness á Smiðjuvöllum um klukkan níu í gærkvöldi og varð húsið fljótt alelda. Allt tiltækt slökkvilið var
sent á staðinn og barðist enn við eldinn þegar blaðið fór í prentun í gær. Enginn var í húsinu þegar eldurinn kom upp, en um klukkan tíu var hann farinn að teygja sig í
önnur fyrirtæki í sömu byggingu. Ekki var þó talið að önnur hús væru í hættu. MYND/HALLVARÐUR NÍELSSON