Fréttablaðið - 19.09.2013, Blaðsíða 37

Fréttablaðið - 19.09.2013, Blaðsíða 37
 | FÓLK | 5 Baugar fylgja gjarnan hækkandi aldri. Erfðir hafa sömuleiðis sitt að segja sem og líðan og lifnaðarhættir. EFTIRFARANDI ÞÆTTIR GETA HAFT ÁHRIF Á BAUGAMYNDUN: ■ Líkamlegt og tilfinningalegt álag, slæmt mataræði, reyk- ingar og óhófleg drykkja. ■ Stíflað nef getur gert það að verkum að æðar undir augum tútna út og dökkna. ■ Sólböð gera það að verkum að húðin virkar frísklegri um sinn. Til lengdar leiða þau þó til þess að líkaminn fram- leiðir meira melanín sem dekkir húðina, meðal annars í kringum augun. ■ Með aldrinum þynnist húðin. Auk þess dregur úr fitu- og kollagenframleiðslu sem gerir það að verkum að æðarnar undir augunum verða sýni- legri. HVAÐ ER TIL RÁÐA? ■ Kælið augnsvæðið. Haldið kaldri skeið upp við augað. Eins er hægt að prófa kælda notaða tepoka, agúrkusneiðar eða annan kælibakstur. ■ Sofið með hátt undir höfði til að draga úr vökvasöfnun undir augum. ■ Gætið þess að sofa vel og reglulega. Svefnleysi veldur ekki baugum í sjálfu sér en svefnlausir eru hins vegar oft fölir, sem undirstrikar dökka litinn undir augunum. Þá geta baugarnir virkað dýpri en ella eftir margar svefnlausar nætur. ■ Notið saltvatnslausn eða nef- dropa til að losa nefstíflu. ■ Notið sólgleraugu til að draga úr áhrifum sólar á augn- svæðinu. ■ Berið serum á augnsvæðið. Snyrtivöruframleiðendur keppast við að framleiða vörur fyrir augnsvæðið en serum, sem inniheldur mun hærra hlutfall næringarefna en krem, þykir bera mestan árangur. ■ Notið réttan hyljara. Ef baug- arnir eru bláleitir ætti að nota ferskjulitaðan hyljara, ekki ljósan eða grátóna. ■ Notið ætíð ofnæmisprófaðar vörur á jafn viðkvæm svæði og augun. Aðrar vörur geta valdið, kláða, pirringi, roða og bólgum, sem hefur slæm áhrif á bauga. Heimild: www.mayoclinic.com RÁÐ GEGN BAUGUM Djúpir baugar og dökkir hringir í kringum augun gera lítið fyrir útlitið. Ýmsar ástæður eru fyrir baugamyndun og ýmislegt er til ráða. ALDUR, LÍÐAN OG LIFNAÐARHÆTTIR Vissir þú að stíflað nef getur ýtt undir baugamyndun? Eitt frægasta hús Bandaríkjanna, setur tískuhönnuðarins Gianni Versace í Miami, hefur verið selt. Versace var myrtur á tröpp- unum fyrir utan höfðingjasetrið árið 1997. Þremur árum síðar seldi fjölskylda hans húsið auðjöfrinum Peter Loftin. Húsið hefur síðustu ár verið notað sem einkaklúbbur. Loftin fór á hausinn fyrir nokkru og hefur í þó nokkurn tíma reynt að selja húsið. Upphaflega óskaði hann eftir 125 milljónum dollara (15 milljörð- um króna) fyrir húsið en fljótlega var verðið lækkað. Á uppboði nýlega var það síðan selt fyrir 41,5 milljónir dollara eða um fimm milljarða íslenskra króna. Kaupandinn er fjárfestingafyrirtæki á vegum Nakash-fjöl- skyldunnar sem stjórnar Victor-hótelinu sem stendur næst setri Versace. Boði þeirra var tekið en það var örlítið hærra en boð auðjöfursins Donalds Trump sem einnig ásældist eignina. Steven Nakash sagði fjölskylduna hafa beðið lengi eftir að eignast húsið. „Þetta er afar sérstakt hús enda taka fleiri myndir af því utanverðu en af Hvíta húsinu enda getur fólk ekki farið inn í það. Við viljum leyfa fólki að koma inn og sjá,“ segir hann en líklegt er að húsinu verði breytt í hótel og að öllum líkindum verður hönnuðinum sáluga gert hátt undir höfði í hönnuninni. Versace keypti húsið árið 1992 fyrir minna en þrjár milljónir Bandaríkjadala (um 360 milljón krónur). Hann eyddi hins vegar 33 milljónum dollara (um fjórum milljörðum króna) í að gera það upp. Versace var þekktur fyrir íburðarmikinn smekk og bar heimili hans í Miami því vitni. Setrið er í miðjarðarhafsstíl fjórða áratugarins. Í því eru tíu svefnherbergi, ellefu baðherbergi og sundlaug húðuð 24 karata gulli. Í húsinu eru freskur á veggjum, ítalskur marmari og gull- og marmaraskreytt salerni. HÚS VERSACES SELT ð 9.990 kr.- rauðar silfurlitaðar brúnar bláar svart ar appelsínugular Vinsælu Dúnúlpurnar komnar aftur OHO / MARKET FACEBOOK Ver S Á Grensásvegur 8 - sími 553 7300 - Opið mán-fim 12-18 — fös. 12-19 — lau. 12-17 Save the Children á Íslandi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.