Fréttablaðið - 19.09.2013, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 19.09.2013, Blaðsíða 22
19. september 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | VIÐSKIPTI22 VIÐSKIPTI Vonir breska tölvuleikjafram- leiðandans Rockstar Games standa til þess að á fyrstu söluviku nemi sala Grand Theft Auto V (GTA 5) á heims- vísu 500 milljónum punda, eða 95,8 milljörðum íslenskra króna. Í umfjöllun breska ríkisútvarpsins, BBC, kemur fram að salan myndi með því nema nærri því þreföldum þeim kostnaði sem lagður hefur verið í framleiðslu og markaðssetningu tölvu- leiksins. Sú upphæð er talin nema 170 milljónum punda, eða 32,6 milljörðum króna. Leiksins, sem fór í almenna sölu síðasta þriðjudag, hefur verið beðið með eftirvæntingu, enda hófst fram- leiðsla á honum fyrir fimm árum. Fyrstu viðtökur og dómar benda jafn- framt til þess að væntingar framleið- enda leiksins séu ekki fjarri lagi. Þá má líka horfa til þess að fyrri útgáfa leiksins (GTA 4) halaði inn 350 milljónum punda (67 milljörðum króna) fyrstu söluvikuna. Tölurnar eru af slíkri stærðargráðu að skyggir á flest annað í afþreyingar- iðnaði. Framleiðslukostnaður leiksins er mitt á milli dýrustu og næstdýrustu kvikmynda sem gerðar hafa verið. Dýrasta kvikmyndin er sú þriðja í Pirates of the Caribbean-mynda röðinni og kostaði 300 milljónir Bandaríkja- dala í framleiðslu, eða 36,5 milljarða króna. Næstdýrust var Disney-myndin Tangled, sem kostaði 260 milljónir dala (31,6 milljarða króna.) Fyrir árslok er því spáð að seldar verði á heimsvísu 15 til 18 milljónir eintaka af GTA 5. Miðað við útsölu- verð leiksins í Bandaríkjunum yrðu tekjurnar af slíkri sölu rúmur 131 milljarður íslenskra króna. Sú sala ein þýðir tekjur sem fara fram úr tekjum af Pirates of the Caribbean upp á rúma 116 milljarða króna. Endanleg sala leiksins er hins vegar talin verða mun meiri. Forverinn, GTA 4, seldist í 25 milljónum eintaka og talið er að GTA 5 fari vel fram úr þeim tölum. Í umfjöllun BBC er bent á að við- tökurnar við GTA 5 gætu haft áhrif á áherslur í afþreyingariðnaði til fram- tíðar. Fólk sem spilar tölvuleiki sé komið af barnsaldri og framleiðslan taki mið af því. Bent er á að fleiri eintök af GTA 5 hafi selst í forsölu en breska hljómsveitin The Who hafi frá upphafi selt af hljómplötum. Frá því að Grand Theft Auto-leikirnir hafi fyrst hafið göngu sína árið 1997 hafi verið seldar af þeim yfir 135 milljónir eintaka. „Áhrif og gæði leiksins sýna hversu langt þróunin er komin,“ er haft eftir Richard Wilson, framkvæmda- stjóra Tiga, sambands tölvuleikja- framleiðenda í Bretlandi. „Þetta sýnir að tölvuleikir standa nú jafn- fætis kvikmyndum, sjónvarpi og teiknimyndum og verðskulda eftirtekt í samræmi við það.“ olikr@frettabladid.is HROTTI Á GÖTU Skjámynd úr GTA 5 frá Rockstar Games. RISAAUGLÝSING Götumynd frá Los Angeles í Bandaríkjunum í síðustu viku þar sem sjá má tölvuleikinn Grand Theft Auto V auglýstan á risavegg- spjöldum. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Kostnaður við Grand Theft Auto 5 talinn nema 32,6 milljörðum króna Tölvuleikir standa nú jafnfætis kvikmyndum, sjónvarpsefni og teiknimyndum í afþreyingariðnaði. Kostnaður við nýjasta Grand Theft Auto- leikinn er svipaður og við dýrustu kvikmyndir heims. Tekjurnar verða meiri og gætu breytt áherslum í afþreyingariðnaði til framtíðar. Þótt upp séu gefnar aldurstakmarkanir á tölvu- leiknum Grand Theft Auto V, sem er nýútkominn, hefur breska kennarasambandið þegar lýst áhyggjum af meintum áhrifum ofbeldisins á ung börn. Í um- fjöllun The Mirror í Bretlandi er vitnað sérstaklega til atburðarásar í leiknum þar sem leikmaðurinn þarf að pína upplýsingar upp úr manni og notar til þess harðsvíraðar pyntingaraðferðir. Meðal þess sem lagt er til að gert sé við fórnarlambið er að draga úr því tennurnar með töngum og brjóta á því hnéskeljarnar með rörtöng. Haft er eftir Alison Sherratt, forseta sambands kennara og fyrirlesara, að slíkt ofbeldi eigi ekki að fyrirfinnast í tölvuleikjum. Vísar hún til kannana í þá veru að ung börn komist í ofbeldisfulla tölvuleiki þrátt fyrir öll bönn. Í umfjöllun The Mirror er líka vísað til rannsóknar sem birt var í ágústlok í Springer Journal of Youth and Adolescence. Þar komast rannsakendur að því að ofbeldisfullir tölvuleikir ýti ekki undir ofbeldis- hegðun í unglingum, jafnvel þótt þeir standi höllum fæti vegna þunglyndis eða athyglisbrests. ➜ Hrikalegt ofbeldi sætir gagnrýni ÚR GTA 5 Í ofbeldisfullu atriði er rör- töng notuð sem yfirheyrslutæki. MYND/SKJÁSKOT Skipholti 37 Sími 568 8388 Opið laugardaga frá 11-16 Láttu drauminn rætast! Til að rýma fyrir nýjum og glæsilegum vörum bjóðum við úrval ljósa og fylgihluta á frábæru verði í nokkra daga. 170.000 kr. Verð áður 244.000 kr. Twiggy
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.