Fréttablaðið - 19.09.2013, Blaðsíða 2
19. september 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 2
L
A
N
G
A
N E
S
Þórshöfn
Eiðisvík
Bakkafl ói
Helluland
FIN
NA
FJÖ
RÐ
UR
SKIPULAGSMÁL Forsvarsmenn
Langanesbyggðar og Vopnafjarðar-
hrepps héldu á þriðjudag fund með
landeigendum í Finnafirði vegna
áforma um mögulega uppbygg-
ingu á stórskipahöfn í firðinum.
Sveitarfélögin gengu fyrr í sumar
til samstarfs við þýska fyrir tækið
Bremenport sem hyggst fara í
rannsóknir á svæðinu áður en
ákvörðun um byggingu stórskipa-
hafnarinnar verður tekin.
Reimar Sigurjónsson, bóndi á
Felli, einu jörðinni sem er í byggð
í firðinum, lýsti óánægju sinni með
áformin á fundinum.
„Ég er algjörlega á móti þessum
framkvæmdum og tel að þær eigi
eftir að eyðileggja fjörðinn. Það
er margt sem þarf að huga að í
tengslum við þetta mál og þar á
meðal eru hugsanleg mengunar-
áhrif. Þarna verður miklu fórnað
fyrir lítið þegar fram líða stundir
og við munum ekki koma til með að
búa í kyrrlátum firði eftir þetta,“
segir Reimar.
Hann bendir á að í aðalskipulagi
Langanesbyggðar sé gert ráð fyrir
stórskipahöfn í firðinum. „Skipu-
lagið var um sex ár í vinnslu og
á þeim langa tíma var aldrei haft
beint samband við landeigendur á
svæðinu.“
Ólafur Steinarsson, sveitar-
stjóri Langanesbyggðar, segir að
ekki verði farið í umrædda rann-
sóknarvinnu nema að gefnu leyfi
landeigenda.
„Við munum leggja upp úr því
að hafa mjög náið og gott samráð
við landeigendur á þessu svæði,“
segir Ólafur og bætir því við að
verkefnið verði kynnt fyrir íbúum
í október næstkomandi.
Bremenport ætlar að stofna
fyrir tæki hér á landi á næstunni
sem mun standa að rannsóknum
og athugunum á svæðinu. Sú vinna
mun að öllum líkindum fela í sér
uppsetningu mælitækja á sjó og
landi og umhverfis- og jarðtækni-
rannsóknum. Áætlað er að rann-
sóknarvinnan taki um þrjú ár.
Fyrirtækið er á meðal stærstu
rekstrar- og umsýsluaðila umskip-
unarhafna í Evrópu. Bremenport á
meðal annars umskipunar höfnina
í þýsku borginni Bremerhaven,
sem er næststærsta höfn sinnar
tegundar í Þýskalandi.
haraldur@frettabladid.is
Síðasti bóndinn gegn
risahöfn í Finnafirði
Reimar Sigurjónsson, bóndi á einu jörðinni sem er í byggð í Finnafirði, er ósáttur
við áform um stórskipahöfn. Sveitarstjóri Langanesbyggðar segir að ekki verði
farið í þá rannsóknarvinnu sem á að hefjast í haust nema með leyfi landeigenda.
Á MÓTI STÓRSKIPAHÖFN Reimar Sigurjónsson og Dagrún Þórisdóttir, bændur á
Felli í Finnafirði. MYND/ANÍTA REIMARSDÓTTIR
LÖGREGLUMÁL Tæplega tvítugur erlendur maður
hefur setið í gæsluvarðhaldi frá mánudeginum 9.
september eftir að hann var tekinn í flugstöð Leifs
Eiríkssonar með fíkniefni innvortis.
Maðurinn kom til landsins með flugi frá Þýska-
landi sunnudaginn 8. september síðastliðinn og við
hefðbundið eftirlit tollgæslu vaknaði grunur um að
hann væri með fíkniefni innvortis. Það stóð heima
– eftir að hann var handtekinn skilaði hann af sér
pakkningum sem innihéldu samtals rúmlega hálft
kíló af kókaíni.
Að sögn Guðmundar Baldurssonar hjá lögreglunni
á Suðurnesjum hefur ekkert komið fram við rann-
sókn málsins um að maðurinn hafi tengsl við Ísland.
Þá hefur enginn annar verið handtekinn vegna máls-
ins enn sem komið er.
Gæsluvarðhald yfir manninum var framlengt í
gær. - sh
Ungur fíkniefnasmyglari handtekinn í Leifsstöð við komuna frá Þýskalandi:
Tekinn með kókaín innvortis
LEIFSSTÖÐ Tollverðir í flugstöðinni áttuðu sig á því að mað-
urinn væri hér í misjöfnum erindagjörðum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
VERÐLAUN Kjartan Örn Styrkársson, 11 ára, bar sigur úr býtum á
alþjóðlegu forritunarkeppninni Kodu Cup Challenge í aldursflokknum
9 til 12 ára. Hann hlaut að launum þrjú þúsund dali, eða 365 þúsund
krónur, frá bandaríska tölvufyrirtækinu Microsoft. Forseti Íslands
afhenti Kjartani verðlaunin á sal í Melaskóla, þar sem Kjartan er
nemandi í sjötta bekk, að viðstöddum öllum nemendum skólans.
Leikur Kjartans ber heitið Eyðum menguninni, þar sem markmið
spilarans er að útrýma illri verksmiðju sem mengar andrúmsloftið
og reyna um leið að uppgötva hreinar uppsprettur og vatnsból. „Mig
langaði að koma því á framfæri hvað vatn er mikilvægur hluti lífs á
jörðinni og að við verðum að gæta þess að menga ekki vatnsforðann
okkar,“ segir Kjartan. - ebg
Hannaði tölvuleik og sigraði alþjóðlega forritunarkeppni:
Megum ekki menga vatnið okkar
ÁNÆGÐUR Kjartan tók við verðlaununum í Melaskóla í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
AKUREYRI Ekkert verður af því
að viðburðurinn „Dirty Night“
fari fram í Sjallanum á Akureyri
um helgina eftir að Jafnréttis-
stofa gerði athugasemdir við
það. Akureyri Vikublað greindi
frá þessu í gær.
Jafnréttisstofa beindi þeirri
ábendingu til Sjallans að auglýs-
ingar um viðburðinn gætu verið
brot á 29. grein jafnréttislaga. Í
auglýsingum á Facebook sagði að
meðal þess sem boðið yrði upp á
væri undirfatasýning, dansbúr og
glaðningur fyrir konur í leðri. - bl
Jafnréttisstofa var ósátt:
Sjallinn hættir
við Sóðakvöld
HEILBRIGÐISMÁL Félagsráðgjafa-
félags Íslands fagnar því að leitað
sé lausna á vanda lyflækninga-
sviðs Landspítala, eins og heil-
brigðisráðherra og forstjóri spítal-
ans tilkynntu um í síðustu viku.
Í tilkynningu frá félaginu segir
að félagsráðgjafar þekki vel til
úrræðaleysisins í kerfinu. „Við
tökum undir með Félagi íslenskra
hjúkrunarfræðinga að það sé löngu
tímabært að endurskilgreina verk-
svið allra heilbrigðisstétta til að
nýta verksvið og þekkingu hverrar
stéttar til fullnustu.“ - bl
Félagsráðgjafafélag Íslands:
Fagna því að
leitað sé lausna
Einar, var osturinn of mikið af
hinu góða?
„Nei, nei. Góðosturinn er íslenskur.“
Einar Sigurðsson, forstjóri MS, segir mistök
hafa valdið því að svissneskur Gruyère-ostur
sem MS pantaði til landsins hafi verið of
ungur og ekki staðist reglugerð.
FRAMKVÆMDIR „Menn komu fram miklum drengskap
á báða bóga í gær. Menn handsöluðu samkomulag að
viðstöddum lögregluvarðstjóra og það var tekið upp á
myndband. Ég treysti því fullkomlega að samkomu-
lag sem við náðum við verktakann haldi,“ segir Ómar
Ragnarsson, félagi í Hraunavinum.
Sátt hefur tekist á milli verktaka nýs vegar í Gálga-
hrauni á Álftanesi og Hraunavina sem stöðvuðu fram-
kvæmdir í gærmorgun. Sáttin felst í því að verk-
takinn, ÍAV, mun hverfa frá framkvæmdum í sjálfu
Gálgahrauni en þess í stað snúa sér að öðrum fram-
kvæmdum sem ekki hafa óafturkræf áhrif í hrauninu.
Ómar segir að ekki séu fyrirhugaðar frekari fram-
kvæmdir í Gálgahrauni fyrr en eftir helgi. Hrauna-
vinir ætla engu að síður að fylgjast grannt með stöðu
mála og verða á vakt, dag og nótt, næstu daga.
Hraunavinir fóru á fund vegamálastjóra í gær og
óskuðu þess að framkvæmdum yrði frestað þar til
niður staða væri komin á lögbannskæru sem lögð
hefur verið fram vegna framkvæmdanna. Vegamála-
stjóri hafnaði beiðni Hraunavina.
„Svar vegamálastjóra var athyglisvert. Ég spurði
hann hvort hann hefði hugsað út í það hvað myndi
gerast ef Vegagerðin réðist í framkvæmdir en tapaði
svo málinu. Vegamálastjóri sagðist ekki hafa velt
því fyrir sér. Hann telur sig með unnið mál í hönd-
unum,“ segir Ómar. Það kemur í ljós á næstu dögum
hvort lögbannskrafa Hraunavina nær fram að ganga.
- jme, jjk
Hraunavinir og ÍAV ná samkomulagi um frestun framkvæmda
Menn komu fram af drengskap
STÖÐVAÐAR Ómar segist treysta því að samkomulagið við
verktakana standi. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
MENNTAMÁL Boðið verður upp á
kvikmyndafræðslu fyrir börn og
unglinga í grunnskólum Reykja-
víkur í haust. Sýningarnar verða
í Bíói Paradís.
Meðal kvikmynda sem verða
sýndar er franska teiknimyndin
Ernest og Celestína sem byggir
á samnefndum teiknibókum eftir
Gabrielle Vincent, heimildar-
mynd um rússnesku pönksveitina
Pussy Riot og verðlaunamyndin
Lífið er dásamlegt (La Vita e
Bella) eftir Roberto Benigni. - vg
Nemendur fara í bíó:
Börn frædd um
Pussy Riot
SPURNING DAGSINS
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
pizzaostur á tilboði
Þú finnur girnilegar uppskriftir
á gottimatinn.is
tilboð
Við munum ekki
koma til með að búa í
kyrrlátum firði eftir þetta.
Reimar Sigurjónsson,
bóndi í Finnafirði