Fréttablaðið - 19.09.2013, Qupperneq 60
19. september 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 52
BAKÞANKAR
Bergs Ebba
Benediktssonar
UM daginn vaknaði ég kl. 7.15 eins og
vanalega. Ég fór fram úr en kl. 7.17 fór
ég að hugsa um hvað ástandið í heim-
inum væri slæmt. Klukkan 7.18 var
ég búinn að komast að því að það væri
trúarbrögðum að kenna því trúarbrögð
eru orsakir næstum allra styrjalda í
heiminum. Kl. 7.19 var ég harðákveð-
inn í því að best væri að útrýma öllum
trúarbrögðum. En kl. 7.20 hugsaði
ég: Það eru ekki trúarbrögð sem eru
kjarni vandans heldur vanþekking.
Það þýðir ekki að lýsa yfir stríði gegn
trúarbrögðum. Það æsir fólk bara
upp. Betra væri að upplýsa fólk því
upplýst fólk lætur skynsemina ráða
för og hafnar trúarbrögðum. Ég tók
mig því til og gerði áætlun
sem gekk út á að taka saman
helstu alfræði- og vísindarit
og dreifa þeim til sérhvers
jarðarbúa. Klukkan var 7.21
þegar ég var búinn að smíða
þessa áætlun.
EN klukkan 7.22 komst
ég að því að þetta myndi
bara valda ruglingi. Ekki
er hægt að ætlast til þess
að venjulegt fólk skilji afstæðiskenn-
ingu Einsteins og hvað þá hugmyndir
Schopenhauers um frjálsan vilja. Það
þyrfti að útskýra vísindin á manna-
máli, t.d. með dæmisögum.
KL. 7.23 var ég kominn á þá niður-
stöðu að það þyrfti að vinna úr þessum
upplýsingum og koma þeim helst
fyrir í einni stórri bók sem væri full
af visku og dæmisögum. Hún mætti
ekki vera of þykk, helst bara eitt bindi,
en ef blaðsíðurnar væru þunnar væri
alveg hægt að rúma þar u.þ.b. 1.500
síður. Kl. 7.24 var ég sannfærður um
að best væri líklega að þessi bók væri
eins hlutlaus og einföld og mögulegt
væri. Best væri bara að hafa hana
svarta og hafa einfalt tákn framan
á henni sem allir í heiminum myndu
skilja.
KL. 7.25 var ég byrjaður að semja
ritningar upp úr nýju bókinni minni
og teikna samkomuhús í huganum þar
sem ég gæti predikað boðskap minn.
ÉG lagðist aftur í rúmið, snoozaði til
7.30, fór svo á fætur og fékk mér kaffi.
Trúarbrögð á tíu mínútum
EGILSHÖLLÁLFABAKKA
KRINGLUNNI
AKUREYRI
KEFLAVÍK
SAN FRANCISCO CHRONICLE
S.E. FOX-TV
T.V. - BÍÓVEFURINN/S&H
SJÁ SÝNINGARTÍMA Á WWW.BIOPARADÍS.IS - Miðasala: 412 7711 - Hverfisgata 54 - bioparadis.is - Hluti af Europa Cinemas
SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ
BORGARBÍÓ NÁNAR Á MIÐI.IS
ÉAULINN G 2 3D KL. 6
BLUE JASMIN KL. 8 / MALAVITA KL. 8 - 10
THIS IS US 3D KL. 6 / JOBS KL. 10
„HROSS Í OSS ER AFAR FRUMLEG
OG ÁHUGAVERÐ MYND“
ÉAULINN G 2 2D KL. 3.30 - 5.45
AULINN ÉG 2 2D LÚXUS KL. 3.20
ÉAULINN G 2 3D KL. 3.30
MALAVITA / MALAVITA LÚXUS KL. 8 - 10.30
BLUE JASMIN KL 5.45 - 10.15
THIS IS US 3D KL 5.45- 8
ÉFLUGV LAR 2D Í SL TAL KL 3.30
ELYSIUM KL. 8 - 10.25
PERCY JACKSON KL. 5.40
2 GUNS KL. 8 10.30 -
STRUMPARNIR 2D ÍSL TAL KL. 3.20
BLUE JASMIN KL. 5.45 - 8 - 10.15
AULINN ÉG 2 2D KL. 5.45
DESPICABLE ME 2 2D KL. 8
ÖLLI HEIMILDAMYND KL. 5.30
HROSS Í OSS KL. 6 - 8 - 10
ELYSIUM KL. 10.20
PERCY JACKSON KL. 8
2 GUNS KL. 10.15
-H.S., MBL
SANNSÖGULEG MYND UM ÆVI
STEVE JOBS STOFNANDA APPLE, MEÐ
ASHTON KUTCHER Í AÐALHLUTVERKI.
T.V. - BÍÓVEF.
/S&H
„MENNINGARLEGT AFREK!“
-S.G., MBL
AULINN ÉG 2 - ÍSL 5.50 3D
AULINN ÉG 2 - ÍSL 5.50 2D
DESPICABLE ME 2 - ENS 5.50, 8 2D
MALAVITA 8, 10.20
JOBS 8, 10.10
KICK ASS 2 10.40
T.V. - Bíóvefurinn
ÍSL OG ENS TAL
T.V. - Bíóvefurinn
5%
„Ég hef horft á þennan þátt alla
mína barnæsku, ég horfði meira
að segja á hann þegar ég var of
ungur til að skilja hvað var í
gangi,“ segir sjónvarpsmaðurinn
Björn Bragi Arnarsson sem tekur
við hlutverki spyrils í spurninga-
þætt i framha ldsskóla nna ,
Gettu betur, í byrjun næsta árs.
Þættirnir verða sem áður sýndir
í Sjónvarpinu.
Björn Bragi er ekki alveg
ókunnugur þátttöku í spurninga-
þættinum því hann var í sigurliði
Verslunarskóla Íslands árið 2004.
„Það verður gaman að fá að sitja
hinum megin við borðið í þetta
sinn. Þegar ég keppti fyrir Versló
var Logi Bergmann í hlutverki
spyrils og ég viðurkenni að ég
renndi hýru auga til starfs hans.
Það hafa margir góðir gegnt þessu
hlutverki og það er mér mikill
heiður að fá að spreyta mig á því,“
segir Björn Bragi. Hann fetar í
fótspor ekki ómerkara fólks en
Hermanns Gunnarssonar, Ómars
Ragnarssonar, Loga Bergmanns,
Evu Maríu Jónsdóttur, Sigmars
Guðmundssonar og Eddu Her-
mannsdóttur, dóttur Hemma.
Björn Bragi stýrði áður sjón-
varpsþáttunum Týnda kynslóðin
og Bara grín á Stöð 2 við góðan
orðstír. Aðspurður segist hann
kveðja gamla vinnustað sinn með
söknuði þótt hann hlakki einnig
til að hefja nýtt ár á nýjum vinnu-
stað. „Ég vona að mér verði vel
tekið á nýja vinnustaðnum. Von-
andi verð ég ekki látinn ganga í
gegnum einhvers konar busun,“
segir hann að lokum í gaman-
sömum tón. sara@frettabladid.is
Tekur við Gettu betur
Björn Bragi Arnarsson tekur við hlutverki spyrils í spurningaþáttunum Gettu
betur á nýju ári. Hann var áður í sigurliði Verslunarskólans árið 2004.
NÝTT HLUTVERK Björn Bragi Arnarsson tekur við hlutverki spyrils í spurningaþættinum Gettu betur. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Gettu betur var fyrst haldin árið 1986 og hefur farið fram árlega síðan
þá. Keppnin hefur verið einn vinsælasti dagskrárliður Ríkisútvarpsins frá
upphafi.
Forkeppnin hefst í janúar ár hvert og fer hún fram í útvarpi. Að henni
lokinni fara átta liða úrslit fram í sjónvarpssal. Árið 2009 var metár í sögu
keppninnar en þá tók alls 31 skóli þátt. Menntaskólinn í Reykjavík er sá
sigursælasti frá upphafi, með 18 sigra.
Með vinsælustu dagskrárliðunum