Fréttablaðið - 19.09.2013, Blaðsíða 27

Fréttablaðið - 19.09.2013, Blaðsíða 27
FIMMTUDAGUR 19. september 2013 | SKOÐUN | 27 Leynt hefur farið bréf sem Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins kom á framfæri við Sigmund Davíð Gunnlaugsson for- sætisráðherra og Bjarna Benediktsson fjármála- ráðherra. Í bréfinu segir svo í íslenskri þýðingu: „Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins fer þess hér með á leit við íslensku ríkisstjórnina að samningaviðræður þær, sem legið hafa niðri um nokkurt skeið milli ríkisstjórnar lýðveldisins Íslands og Framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, verði hafnar að nýju. Framkvæmdastjórnin tekur fram, að það er þó ekki vilji Framkvæmdastjórnarinnar að lýð- veldið Ísland tengist Evrópusam- bandinu nánar en þegar er orðið enda er það stefna Framkvæmda- stjórnarinnar að viðræðurnar leiði ekki til þess að Ísland gerist aðili að Evrópusambandinu. Hvað er að tarna? Er Baroso endanlega orðinn vitlaus eða er verið að gera grín að hinni frjálsu og yfirtaks sjálf- stæðu íslensku þjóð? Þjóðsaga? Getur það verið að það sé þjóð- saga að slíkt bréf hafi borist? En skyldu Sigmundur Davíð og Bjarni – já og Davíð hinn ekki hafa orðið skrýtnir í framan ef svo væri? Nú eða Þorsteinn Pálsson og Ragnheiður Ríkharðs- dóttir? Ef ESB vildi halda viðræðunum áfram þó tekið sé fram að enginn sé vilji til þess á þeim bænum að viðræðunum ljúki með jákvæðri afgreiðslu heldur þvert á móti! Skyldi finn- ast í heimssögunni dæmi um slíkar bréfasendingar í diplómatíunni? Nei, ekki svo vitað sé. Samt vilja heiðarlegir og skynsamir sjálf- stæðismenn að sambærilegt bréf berist frá ríkisstjórn Íslands með ósk um áframhaldandi viðræður jafnvel þó ekki bara ríkisstjórnin sjálf heldur báðir stjórnarflokk- arnir séu alfarið á móti því að við- ræðurnar leiði til þess að Ísland gerist aðili að ESB! Sjálfstæðis- flokkurinn og Framsóknarflokkur- inn hafa ekki bara báðir þá afdrátt- arlausu stefnu heldur kröfðust þess meira að segja; a.m.k. lands- fundur Sjálfstæðisflokksins; að Evrópustofu yrði lokað og starfs- mönnum hent úr landi. Andúðin er slík, að gamalkunna Rússahatrið kemst ekki með tærnar þar sem ESB-andúðin er með hælana. Þetta studduð þið! Mér dettur ekki í hug að efa, að margir góðir Sjálfstæðismenn; þ.á.m. forystumenn í íslensku atvinnulífi; vildu og vilja í ein- lægni ljúka samningaviðræðum við ESB í þeirri von að þær leiði til jákvæðrar niðurstöðu til heilla og hagsbóta fyrir íslensku þjóðina. Þeir greiddu hins vegar atkvæði þannig í síðustu kosning- um, að slíkt getur nú ekki orðið. Það gerðu þeir vitandi vits. Þeim var nær! Halda þeir virkilega að Davíð muni leyfa að ósk um áframhaldandi viðræður berist frá núverandi stjórnvöldum. Nei, vinir góðir. Slíkt erindi berst ekki á þessu kjörtímabili. Og mun ekki berast á því næsta nema þið kjósið öðruvísi þá en þið gerðuð síðast. Með atkvæði ykkar öxluðuð þið ábyrgð á vegferðinni. Þið vissuð vel hvað þið voruð þá að gera – en gerðuð það samt! Ykkur var nær! Leynibréfi ð – eða þannig sko Á undanförnum á r u m og á undraskömmum t í m a h e f u r mikill árangur náðst í baráttu fyrir réttindum ýmissa minni- hlutahópa og annarra sem búið hafa við misrétti af ýmsu tagi. Fullnaðar- sigur vinnst varla í slíkum málum en stór skref hafa verið stigin í réttindabaráttu samkynhneigðra og annarra sem vilja skilgreina kynferði sitt á annan hátt en hinn algengasta. Þótt tölur um launa- misrétti sýni að enn vantar á jafn- rétti kynjanna hefur þó fjölmargt áunnist, og eitt af því er að hvers konar kynferðislegt ofbeldi, sem einkum hefur bitnað á konum, hefur verið dregið fram í dags- ljósið og fordæmt. Þessu er sjálf- sagt að fagna. Það skýtur skökku við þegar ýmsir þeirra sem vasklega hafa barist í slíkum málum telja eðli- legt að nota nýfengið frelsi til að banna eða reyna að hindra tján- ingar- og samskiptafrelsi þeirra sem ekki hugsa á sama hátt og þeir sjálfir eða hafa einhvern tíma brotið gegn þeim siðareglum sem við viljum hafa í hávegum. Reynt er að banna tjáningu þeirrar hugsunar sem ekki er „rétt“ eða frá „réttum“ komin. Þessir von- andi litlu en ekki áhrifalausu hópar vilja t.d. banna biskupi þjóð kirkjunnar að tala við aðra kristna menn ef þeir eru enn fastir í gömlum hugsunarhætti, halda fram skoðunum sem barist hefur verið gegn með árangri. Enginn getur þó efast um að orð biskups muni einkennast af góð- vild og víðsýni. Svo vilja menn banna reyndum stjórnmálamanni og góðum kennara að miðla stúd- entum af mikilvægri reynslu sinni í stjórnmálum vegna fortíðar sem er kennsluefninu öldungis ótengd. Varðstaða um „rétthugsun“ er ranghverfa baráttu fyrir réttlæti. „Ranghugsun“ á að mæta með rök- ræðu en ekki banni. Þar sem frjáls hugsun á að ríkja er hættulegt að beygja sig fyrir kröfunni um hina réttu hugsun. Réttlæting undan- látsseminnar kallar fram moðreyk eins og dæmin sanna. Frelsi – til að banna? EVRÓPUMÁL Sighvatur Björgvinsson fv. ráðherra ➜ Skyldi fi nnast í heims- sögunni dæmi um slíkar bréfasendingar í diplómatí- unni? Nei, ekki svo vitað sé. SAMFÉLAG Vésteinn Ólason fv. prófessor við HÍ Gildir meðan birgðir endast. LEGO TILBOÐ 882803vnr. 1999kr verð á ur ð 2789 869786vnr. 7999kr verð á urð 16999 2v 87169nr. 2699kr verð á ur ð 3499 882804vnr. 1999kr verð á urð 2789 vn 882802r. 1999kr verð á ur ð 2789
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.