Fréttablaðið - 19.09.2013, Blaðsíða 26
19. september 2013 FIMMTUDAGUR| SKOÐUN | 26
Lengri útgáfu greinarinnar má
sjá á Vísi.
visir.is
Málefni Landspítalans
hafa verið í umræðunni
að undanförnu. Nú er að
koma í ljós að sá niður-
skurður sem stjórnendur
spítalans hafa hrósað
sér af hefur komið niður
á líðan og starfsánægju
starfsfólksins. Yfirlæknir
krabbameinslækninga til
fimm ára hættir störfum
þegjandi og hljóðalaust,
eftir eru læknar sem vart
ráða fram úr daglegum
verkefnum. Starfandi
yfirlæknir á krabba-
meinsdeildinni hefur
sagt að erlendis séu tólf
krabbameinslæknar en
þeir hugsi sér ekki að
koma heim. Hvernig
stendur á því að sérfræð-
ingar hætta og læknar í
sérnámi hafa ekki áhuga
á að koma heim? Það er
falleinkunn fyrir þá sem
stýra heilbrigðismálum.
Þessi þróun var engu að
síður fyrirséð og er ekki
séríslenskt vandamál.
Fólk nær hærri aldri en
áður og læknis fræðinni
hefur fleygt fram þannig að
fólk lifir lengur með hina ýmsu
kvilla.
Starfsánægjukannanir LSH
hafa sýnt að margir sérfræðingar
spítalans hugsa oft um að hætta
og starfsánægja þeirra og ung-
lækna er lítil. Stjórn spítalans
hefur ekki reynt að bregðast við
niðurstöðum þessara kannana og
því mætti spyrja; Hví er verið að
kosta til mikilvægra kannana ef
það á að hundsa niðurstöðurnar
og stinga þeim undir stól? Ekki
teljast slík vinnubrögð góð vís-
indi í læknisfræðilegri rannsókn.
Uggvænleg þróun
Stjórn Læknaráðs Land spítalans
hefur lengi haft áhyggjur af
þessari uggvænlegu þróun. Á
síðasta vetri var efnt til funda
vegna ofangreindra málefna. Í
byrjun sumars sendi stjórnin
frá sér ályktun þegar til stóð
að ráða fjölda læknanema í
störf unglækna og auka álag
á sérfræðinga spítalans sem
þegar eru störfum hlaðnir. Nú í
september sendum við aftur frá
okkur ályktun þar sem skorað
var á yfirvöld spítalans að finna
lausnir á margþættum vanda lyflækningasviðs í samráði við
lækna sviðsins. Stjórn Lækna-
ráðs hefur verið með puttann á
púlsinum og fundað með milli-
stjórnendum og heyrt í læknum
sem vinna á gólfinu.
Okkur er ljóst að margir
sérfræðingar íhuga að hætta
störfum vegna álags og óánægju
í vinnunni en geta samt sem áður
sjúklinganna vegna, ekki hugsað
sér það. Við höfum setið fundi
á lyflækningasviði og hlustað
á sérfræðinga og deildarlækna
lýsa ástandi sem stundum virðist
eiga betur við í „ER“ sjónvarps-
læknaseríu en ekki á sjúkrahúsi
í Reykjavík árið 2013.
Eftir að sviðum LSH var
fækkað hafa sviðstjórar og
stjórnendur fjarlægst fólkið sem
vinnur læknisstörfin. Gjá er á
milli stjórnenda og fólksins á
gólfinu. Til að laga þetta þarf
að leyfa læknum sjúkrahússins
að vera með í ákvörðunum sem
snerta skipulag og starf deilda.
Tryggja þarf að unglæknar séu
ekki settir í þá stöðu að ráða ekki
við þau verkefni sem fyrir þeim
liggja og að ekki sé staðið við
bakið á þeim. Það vekur spurn-
ingar um öryggi sjúklinga okkar.
Hjálpumst að
Viðbrögð ráðherra munu létta
á álagi sviðsins sem felst í því
að sjúklingar sem þegar hafa
hlotið meðferð á sjúkrahúsinu
fái í önnur hús að vernda. Efla
þarf heilsugæsluna og koma í
veg fyrir að til spítalans leiti
fólk sem á frekar heima þar.
Reyndar hafa læknar í heilsu-
gæslunni stigið fram og lýst
yfir ástandi þar vegna mann-
eklu. Þar liggur rót vandans.
Auka þarf fjármagn til að hægt
sé að greiða íslenskum læknum
samkeppnishæf laun. Hér er um
pólitíska ákvörðun að ræða sem
er ekki á valdi stjórnenda heil-
brigðisstofnana. Því mun reyna
á alþingismenn í náinni framtíð
við að forgangsraða. Þurfum við
Íslendingar gat í Vaðlaheiði eða
fínt fangelsi fyrir afbrotamenn,
hvað þá sendiráð víða um heim á
tækniöld?
Stjórn Læknaráðs
Landspítalans hefur boðað til
almenns læknaráðsfundar á
föstudag. Forstjóri spítalans mun
taka til máls ásamt prófessor,
sérfræðingi og unglækni. Vil ég
hvetja alla þá lækna sem komast
frá vinnu sinnar vegna að mæta
og taka þátt í málefnalegri
umræðu. Staðan er svona og
okkur ber að snúa bökum saman
við að leysa margþættan vanda.
Auka þarf starfsánægju lækna
Landspítalans því aðeins þannig
fáum við yngri lækna til starfa
með okkur. Ánægðir deildar-
læknar og aðstoðar læknar hafa
góð áhrif á læknanema sem nú
nema við Háskólann og verða
unglæknar áður en langt um
líður. Keðjan verður aldrei
sterkari en veikasti hlekkurinn
sem nú er við það að slitna. Við
í stjórn Læknaráðs munum ekki
bregðast þeirri skyldu okkar að
vinna að farsælli lausn mála.
Hjálpumst að við að gera Land-
spítalann að eftirsóknarverðum
vinnustað, sjúklinga okkar
vegna.
Læknaráð Landspítalans leitar lausna
➜ Stjórn Læknaráðs Land-
spítalans hefur boðað til
almenns læknaráðsfundar á
föstudag. Forstjóri spítalans
mun taka til máls ásamt
prófessor, sérfræðingi og
unglækni. Vil ég hvetja alla
þá lækna sem komast frá
vinnu sinnar vegna að mæta
og taka þátt í málefnalegri
umræðu.
HEILBRIGÐIS-
MÁL
Ebba Margrét
Magnúsdóttir
varaformaður
stjórnar Læknaráðs
Landspítala og
sérfræðilæknir á
kvennadeild LSH.
ISIO 4
með D-vítamíni
góð fyrir æðakerfið
ISIO4 er heilsusamleg blanda af olíum — auðug af
náttúrulegu E-vítamíni og viðbættu D-vítamíni.
Olíurnar fjórar sem sameinast í ISIO4, repju-, oléisol-,
sólblóma- og vínberjaolía, eru ríkar af E-vítamíni,
andoxunarefni sem verndar frumur l íkamans.
Auk þess inniheldur ISIO4 núna meira af D-vítamíni
sem hjálpar þér að styrkja ónæmiskerfið.
Hugsaðu um heilsuna og veldu ISIO4
með lífsnauðsynlegum Omega-3 fyrir h jarta og æ ðakerfi
og Omega-6 til að halda kólesteróli í skefjum.
Olían er bragðgóð og hentar vel í alla matargerð,
heita rétti sem kalda.
ÍS
LE
N
SK
A
S
IA
.IS
N
AT
5
80
50
0
3/
12
A