Fréttablaðið - 19.09.2013, Blaðsíða 46

Fréttablaðið - 19.09.2013, Blaðsíða 46
19. september 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 38 Myndlistarmaðurinn Haraldur Sigmundsson opnar sýningu í Eiðisskeri, sýningarsal Seltirn- inga í Bókasafninu á Eiðistorgi, í dag fimmtudaginn 29. ágúst klukkan 17. Sýning Haraldar nefnist Remb- ingur, en dropastíll er hugtak sem myndlistarmaðurinn notar yfir þá aðferð sem hann beitir við gerð verka sinna. Rauði þráðurinn í sýningu Haraldar er háðsádeila á íslenskt sam- félag. Þannig bera verkin heiti eins og Draumalandið, Íslenski einhyrningurinn, Þjóðarfjallið, Fyrirheitna landið og Föðurland pabba. Haraldur er fæddur árið 1980. Hann hefur haldið einka sýningar og tekið þátt í mörgum sam- sýningum. Haraldur lauk B.A.- gráðu í myndlist frá Listaháskóla Íslands árið 2009 og M.Art.Ed.- gráðu í listkennslu árið 2011 frá sama skóla. Hann starfar nú sem myndmenntakennari í Krika- skóla í Reykjavík. Á námsárum sínum fékkst Haraldur aðallega við teikni- myndamiðilinn en á síðustu árum hefur hann snúið sér meira að málun og gerð þrívíðra verka þar sem hann þekur striga eða til- búna hluti með þykkum akrýllit- um sem sprautað er úr poka með rjómasprautustút. Droparnir eru fíngerðir, þeir fletjast út þar sem þeir snerta flötinn en mynda toppa efst. Þannig öðlast verkin öll þrívíða eiginleika með skugg- um, dýpt og hreyfingu. Háðsádeiluverk á sýningunni Rembingur úti á Nesi Myndlistarmaðurinn Haraldur Sigmundsson opnar sýningu í Eiðisskeri, sýningarsal Seltirninga á Eiðistorgi, í dag. REMB- INGUR Haraldur Sigmunds- son notar hugtakið dropastíl yfir þá aðferð sem hann beitir við gerð verka sinna. Þórunn Árnadóttir vöruhönnuður og Magnea Einarsdóttir fata- hönnuður kynna verkefni sín á fyrsta fyrirlestri Hönnunarmið- stöðvar í vetur. Fyrirlesturinn fer fram í Hafnarhúsinu í kvöld, fimmtudaginn 19. september, klukkan 20, en þeim Þórunni og Magneu var á dögunum boðið að taka þátt í norrænni kynningar- dagskrá hönnuða sem haldin var í Berlín dagana 1. til 3. september. Þórunn Árnadóttir útskrifaðist úr vöruhönnun frá Listaháskóla Íslands árið 2007. Árið 2011 lauk hún MA-námi í vöruhönnun frá Royal College of Arts í London. Hún hefur starfað sjálfstætt sem vöruhönnuður síðustu árin og meðal annars getið sér gott orð fyrir verkin Sasa Clock, Pyro Pet og Berg. Nýverið voru Þórunni gerð skil í hönnunartímaritinu Icon sem einni af fimmtíu áhugaverðustu hönnuðum sinnar kynslóðar í heim- inum. Magnea Einarsdóttir útskrifaðist frá Central Saint Martins College of Arts and Design árið 2012. Í skólan- um lærði Magnea fatahönnun með áherslu á prjón. Hún hefur einnig stundað nám í Parsons Paris School of Design. Í fyrra lenti Magnea í öðru sæti í fatahönnunar keppninni Muuse x Vogue Young Talents. Verðlaunin fékk hún fyrir útskriftarverkefni sitt sem var fatalína. Í kjölfarið hefur Magnea hannað aðra fatalínu í samstarfi við Muuse x sem hefur verið sýnd á tískuvikunum í London og Kaup- mannahöfn. Haust- og vetrarlína Magneu er væntanleg á íslenskan markað innan skamms. Þórunn og Magnea kynna hönnun sína Fyrsti fyrirlestur Hönnunarmiðstöðvar í vetur fer fram í Hafnarhúsinu í kvöld. FATAHÖNNUÐUR Magnea Einarsdóttir fatahönnuður kynnir verk sín í Hafnarhúsinu í kvöld ásamt vöruhönnuðinum Þórunni Árnadóttur. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON „Við Jónas fluttum þriðja og síð- asta ljóðaflokk Franz Schubert, Svanasönginn, í Listasafni Sigur- jóns Ólafssonar í sumar og þótt húsfyllir væri þá hafa margir hvatt okkur til að endurtaka leikinn. Við höfum ákveðið að gera það næsta föstudagskvöld, í hinu viðeigandi umhverfi Þjóð- menningarhúsinu,“ segir Gunnar Guðbjörnsson tenórsöngvari þegar haft er samband við hann símleiðis. Gunnar segir samstarf þeirra Jónasar hafa staðið hátt í aldar- fjórðung og tónskáldið Schu- bert oft hafa komið þar við sögu. „Við Jónas höfum starf- að saman lengi sem ljóðasöngs- teymi og meðal a nnars f lut t Vetrarferðina o g M a l a r a - stúlkuna fögru eftir Schubert. Jónas er mikill Schubertmaður og það er frá- bært að vinna me ð s l í k u m reynslubolta. Hann kann þetta upp á sína tíu fingur – sem er gott þar sem hann er píanisti!“ Sjálfur kveðst Gunnar þó hafa verið í hálfgerðum ljóðadvala í nokkur ár þar til nýlega. Í þætt- inum Útúrdúr hjá Víkingi Heiðari Ólafssyni flutti hann tvö lög úr Ástum skáldsins eftir Schumann. „Hjá Víkingi Heiðari vaknaði ég fyrst aftur af þessum dvala og er nú kominn á fulla ferð,“ segir hann glaðlega. Annars starfar Gunnar víðar en í tónleikasölum. Í sumar kveðst hann hafa verið leiðsögumaður hópa, bæði í hringferðum um landið og dagsferðum frá Reykja- vík. „En ég fékk eins og tveggja daga frí inn á milli og þá æfðum við Jónas,“ tekur hann fram. Spurður hvort hann syngi ekki fyrir ferðahópana svarar hann. „Jú, ég syng alltaf eitthvað fyrir þá. Reyndar ekki Svanasönginn en ég tek til dæmis alltaf Sjá dagar koma eftir Sigurð Þórðar- son þegar ég er á Þingvöllum af því það er úr Alþingishátíðar- kantötu Davíðs Stefánssonar.“ Svanasöngurinn er talinn vera síðasta atlaga Schuberts að söng- lagaforminu en þar lýsir hann örvæntingu ljóðmælandans af innsæi. Ljóðin sótti hann til þriggja skálda, Ludwigs Rells- tab, Heinrichs Heine og Johanns Gabriels Seidl. gun@frettabladid.is Höfum lengi verið ljóðasöngsteymi Gunnar Guðbjörnsson tenór og Jónas Ingimundarson píanóleikari fl ytja Svana- söng Schuberts í Þjóðmenningarhúsinu annað kvöld, föstudag, klukkan 20. Í ÞJÓÐMENNINGARHÚSINU Þeir eru góðir saman Gunnar og Jónas. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Litla ljóðahátíðin, með fulltingi Menningarmiðstöðvar Fljóts- dalshéraðs, stendur fyrir upp- lestrarkvöldi í Sláturhúsinu á Egilsstöðum annað kvöld, föstu- daginn 20. september, klukkan 20. Fram koma Einar Már Guð- mundsson, Ingunn Snædal, Kristín Laufey Jónsdóttir, Sigurbjörg Þrastardóttir og Sjón. Kynnir kvöldsins er Hrafnkell Lárusson. Ljóðahátíð í frystiklefa Á EGILSSTÖÐUM Sigurbjörg Þrastar- dóttir er á meðal þeirra sem koma fram á Egilsstöðum annað kvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Tónleikaröðinni Tónlist fyrir alla lýkur á morgun, föstudag, en alla þessa viku hefur tónlistarfólk á vegum tónleikaraðarinnar leikið fyrir grunnskólanemendur á Vest- fjörðum, Austur- og Norðurlandi. Alls eru tónleikar haldnir á 37 kennslustöðum og eru það sam- tals 2.758 nemendur sem fá þeirra notið. Tónlist fyrir alla leitast við að bjóða upp á vandaða skólatónleika fyrir börn þar sem skemmtun og menntun haldast í hendur. Þetta árið eru það Skugga- myndir frá Býsans sem leika balkantónlist fyrir grunnskóla- nemendur Vestfjarða og ljúka leik á Borðeyri eftir hádegi á morgun, föstudag. Dúó Stemma með þeim Herdísi Önnu Jónsdóttur víóluleik- ara og Steef van Oosterhout slag- verksleikara endar ferð sína á Hof- görðum í Öræfasveit á morgun. Leika fyrir 2.758 nemendur Tónleikaröðinni Tónlist fyrir alla lýkur á morgun á Borðeyri og í Öræfasveit. SKUGGAMYNDIR FÁ BÝSANS Sveitin leikur balkantónlist fyrir grunnskóla- nemendur á Vestfjörðum. Jónas er mikill Schubert- maður og það er frábært að vinna með slíkum reynslu- bolta. Gunnar Guðbjörnsson tenór ➜ Verkin á sýningunni bera heiti eiti eins og Drauma landið, Íslenski ein- hyrningurinn, Þjóðar fjallið, Fyrirheitna landið og Föður- land pabba.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.