Fréttablaðið - 19.09.2013, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 19.09.2013, Blaðsíða 12
19. september 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | Jonathan Sandler, sérfræðingur í skipulagningu á stórum alþjóðlegum ráðstefnum, telur að Reykjavík eigi góða möguleika á því að komast á lista yfir topp 10 áfangastaði fyrir ráðstefnur og fundi í heiminum. Jonathan var formaður framkvæmdanefndar 2.500 manna ráðstefnu tannréttingafræðinga sem haldin var í Hörpu í júní. Eftir ráðstefnuna í Hörpu sagði hann meðal annars í viðtali. „Ég tel að Reykjavík verði fljótt komin í hóp tíu vinsælustu áfangastaða fyrir alþjóðlegar ráðstefnur, vegna þess hvað þið búið við ótrúlega hagkvæmar og skilvirkar aðstæður. Ég tel að að hér verði óviðjafnanlegur áfanga- staður fyrir ráðstefnur innan fárra ára um leið og þeir sem standa að alþjóðlegum ráðstefnum frétta af þessum frábæra áfangastað. Reykjavík er fullkomin vegna þess hvað borgin er lítil og auðveld yfirferðar og með þessa heimsklassa ráðstefnumiðstöð í hjarta hennar. Hér er hægt að komast allt fótgangandi og notfæra sér þessar frábæru aðstæður.“ ➜ Glöggt er gests augað Markaðssetning og skipulagsvinna í íslenskri ferðaþjónustu næstu árin á að snúast um það að fá hingað til lands ferðamenn með meiri kaup- getu og leggja til hliðar gömul markmið um milljón ferðamenn eða tvær. Þetta er ein meginniðurstaða ráðgjafafyrirtækisins Boston Con- sulting Group (BCG), sem kynnti hagsmunaaðilum í ferðaþjónustu rannsóknir sínar á ráðstefnunni Framtíð íslenskrar ferðaþjónustu í Hörpu í liðinni viku. Það var mál manna á ráðstefnunni að til þess að laða efnameiri ferðamenn til landsins þyrfti að koma til mikil fjár festing í innviðum ferða- þjónustunnar í víðum skilningi, og það til lengri tíma. Milljónir á fundi Rökrétt næsta skref virðist hins vegar handan við hornið og lýtur að gríðarstórum hópi fólks sem sækir alþjóðlegar ráðstefnur og fundi hvers konar á hverju ári. Í skýrslu BCG segir að þessi hópur ferðamanna hafi meira aðdráttarafl fyrir Ísland en allir aðrir hópar. Ástæðan er einföld. Þeir eyða meiru á ferðalagi en aðrir markhópar og þar munar miklu. BCG segir að þjónusta við þennan hóp ferðamanna sé rétt að slíta barnsskónum á Íslandi en stór skref hafi hins vegar verið tekin að und- anförnu og er tvennt nefnt; bygging Hörpu og stofnun markaðsfyrirtæk- isins Meet in Reykjavík (Ráðstefnu- borgin Reykjavík). Að fyrirtækinu standa Reykjavíkurborg, Harpa og Icelandair Group sem kjölfestuað- ilar, ásamt fjölda annarra aðildar- félaga sem þjónusta þennan markað eða njóta góðs af aukinni markaðs- setningu á einn eða annan máta. Þorsteinn Örn Guðmundsson, framkvæmdastjóri Meet in Reykja- vík, segir að markmið fyrirtækis- ins falli vel að boðskap BCG en með þeirri undantekningu, miðað við marga aðra hópa ferðamanna, að innviðirnir eru þegar til staðar til að auka hlutdeild Íslands í þeim risamarkaði sem hér um ræðir. „Þessi ferðamaður, ráðstefnugestur- inn, er oftar en ekki að koma hingað þegar verksmiðjan er tóm, svo að segja. Þessi hópur er að koma utan háannar en er hins vegar að skilja margfalt eftir miðað við marga sem hingað koma í júlí og fylla að mestu tölfræðina yfir ferðamenn á Íslandi. Við erum tilbúin til að taka á móti mun fleirum úr þessum hópi þess vegna. Á kjörtíma þessara ferða- langa er pláss á hótelum og framboð af þjónustu sem annars er illa nýtt.“ Á þetta atriði benda sér fræðingar BCG sérstaklega. Þó að þessi hópur sé ekki líklegur til að verja miklum tíma utan suðvesturhluta landsins sé hann mikilvægur við að dreifa aðsókn ferðamanna yfir árið. BCG nefna einnig að líklega sé þessi hópur ferðamanna um 7% af öllum sem heimsækja landið. Árið 2011 hafi aðeins verið 33 viðburðir sem teljist til alþjóðlegra ráðstefna en borgir eins og Amsterdam, Búda- pest, Stokkhólmur og Kaupmanna- höfn fái árlega um og vel yfir 100 slíka viðburði. Um hvað er að tefla? Markaður fyrir ráðstefnur, fundi og hvataferðir í Evrópu veltir um 30.000 milljörðum króna á þessu ári, er gróft mat Meet in Reykja- vík. Þorsteinn segir möguleikana kristallast í þessum stærðum og að smá leikur að tölum skýri það enn betur. Íslenski markaðurinn þyrfti ein ungis að fá um 0,05% (einn tutt- ugasta úr prósenti) af þessari köku til að skila veltuaukningu upp á tæp- lega 16 milljarða króna á ári. Meðaleyðsla ráðstefnu- og hvata- ferðagesta er að minnsta kosti tvöfalt meiri en hjá öðrum ferða- mönnum og er áætluð yfir 60 þús- und krónur á dag. Í ljósi þess hvað hér er um stóran markað að ræða telur Meet in Reykjavík afar raun- hæft að hlutur Íslands fari hratt stækkandi – og 0,05% af kökunni gætu verið ágætis byrjun. Hvað er í veginum? Þorsteinn segir að ýmis ljón séu í veginum. Helst sé að nefna að vinna á áhættufælni þeirra fáu og stóru aðila sem annast undirbúning alþjóðlegra ráðstefna. „Einn stærsti þröskuldurinn er að gera þeim grein fyrir hversu góð aðstaða er á Íslandi. Við erum að skipta við aðila sem þekkja stóru borgirnar og vita að hverju þeir ganga þar. Menn telja sig vita allnokkuð um Ísland en vita samt ekki nógu mikið. Sumir vita hversu háþróað íslenskt samfélag er en aðrir halda að við búum í snjó- húsum og allt þar á milli. Þeir sem eru snjóhúsamegin á skalanum eru mjög áhættufælnir, enda skiptir við- komandi öllu máli að þúsund manna ráðstefna takist vel. Okkar vinna snýst því um að komast í samband við þessa aðila, sem eru tiltölulega fáir en stórir, og virkilega útskýra að áhættan er ekki til staðar,“ segir Þorsteinn. Vinna Þorsteins og félaga snýst um að markaðssetja Reykjavík fyrst og síðast. „Ég er þeirrar skoðunar að möguleikarnir séu óendanlegir þegar viss grundvöllur hefur verið lagður. Ekkert er þá til fyrirstöðu að komur þessara ferðamanna dreifist um landið.“ Lítið vitað Þegar Þorsteinn er spurður hvert markmið Meet in Reykjavík er við fjölgun á þessum hópi ferða- manna kemur hann inn á aðkall- andi vanda íslenskrar ferðaþjón- ustu. „Það hafa verið afar litlar rannsóknir á þessum hluta ferða- þjónustunnar hér á Íslandi. Til að vita hvaða aðferðir henta okkur best þarf rannsóknir. Til að marka skýr markmið verður maður að vita hvar maður er. Öðruvísi sér maður ekki árangur erfiðisins. Við teljum að hægt sé að ná mun stærri hlutdeild á þessum markaði og þetta sem ég nefndi, 0,05 prósent, er langt undir því sem við teljum okkur eiga inni,“ segir Þorsteinn. Risamarkaður handan við hornið Í Evrópu veltir markaður fyrir ráðstefnur, fundi og hvataferðir um 30.000 milljörðum íslenskra króna. Tuttugasti hluti úr prósenti af þeim markaði skilar Íslandi 16 milljörðum. Sérfræðingur segir að Reykjavík geti komist í hóp tíu vinsælustu ráðstefnuborga heims innan fárra ára. Á RÁÐSTEFNU Í júní komu 2.500 tannréttingafræðingar saman í Hörpu til skrafs og ráðagerða. Formaður framkvæmdanefndarinnar, Jonathan Sandler, segir að Reykja- vík geti orðið ein af tíu vinsælustu ráðstefnuborga heims; hér sé allt til staðar til að svo megi verða. MYND/EYÞÓR ÁRNASON Ég er þeirrar skoðunar að mögu- leikarnir séu óendanlegir þegar viss grundvöllur hefur verið lagður. Ekkert er þá til fyrirstöðu að komur þessara ferðamanna dreifist um landið. Þorsteinn Örn Guðmundsson, framkvæmdastjóri Meet in Reykjavík JONATHAN SANDLER www.volkswagen.is Volkswagen Caddy Caddy er áreiðanlegur, sparneytinn og þægilegur í allri umgengni. Lipur vinnuþjarkur með frábæra aksturseiginleika og ríkulegan staðalbúnað. Hann er fáanlegur með bensín-, dísil- og metan- vélum frá framleiðanda. *Miðað við C addy TSI bensín, 86 hestöfl, beinskiptur. Aukahlutir á mynd, álfelgur og þokuljós. Góður vinnufélagi Atvinnubílar Til afgreiðslu strax Fæst einnig fjórhjóladrifinn Caddy* kostar aðeins frá 3.090.000 kr. (2.462.151 kr. án vsk) ASKÝRING | 12 FERÐAÞJÓNUSTA: HVERT Á AÐ BEINA KRÖFTUNUM VIÐ MARKAÐSSETNINGU? Svavar Hávarðsson svavar@frettabladid.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.