Fréttablaðið - 19.09.2013, Blaðsíða 12
19. september 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR |
Jonathan Sandler, sérfræðingur í skipulagningu á stórum alþjóðlegum
ráðstefnum, telur að Reykjavík eigi góða möguleika á því að komast á lista
yfir topp 10 áfangastaði fyrir ráðstefnur og fundi í heiminum. Jonathan
var formaður framkvæmdanefndar 2.500 manna ráðstefnu
tannréttingafræðinga sem haldin var í Hörpu í júní.
Eftir ráðstefnuna í Hörpu sagði hann meðal annars í
viðtali. „Ég tel að Reykjavík verði fljótt komin í hóp tíu
vinsælustu áfangastaða fyrir alþjóðlegar ráðstefnur, vegna
þess hvað þið búið við ótrúlega hagkvæmar og skilvirkar
aðstæður. Ég tel að að hér verði óviðjafnanlegur áfanga-
staður fyrir ráðstefnur innan fárra ára um leið og þeir
sem standa að alþjóðlegum ráðstefnum frétta af þessum
frábæra áfangastað.
Reykjavík er fullkomin vegna þess hvað borgin er lítil og
auðveld yfirferðar og með þessa heimsklassa ráðstefnumiðstöð í hjarta
hennar. Hér er hægt að komast allt fótgangandi og notfæra sér þessar
frábæru aðstæður.“
➜ Glöggt er gests augað
Markaðssetning og skipulagsvinna
í íslenskri ferðaþjónustu næstu árin
á að snúast um það að fá hingað til
lands ferðamenn með meiri kaup-
getu og leggja til hliðar gömul
markmið um milljón ferðamenn
eða tvær.
Þetta er ein meginniðurstaða
ráðgjafafyrirtækisins Boston Con-
sulting Group (BCG), sem kynnti
hagsmunaaðilum í ferðaþjónustu
rannsóknir sínar á ráðstefnunni
Framtíð íslenskrar ferðaþjónustu
í Hörpu í liðinni viku. Það var mál
manna á ráðstefnunni að til þess
að laða efnameiri ferðamenn til
landsins þyrfti að koma til mikil
fjár festing í innviðum ferða-
þjónustunnar í víðum skilningi, og
það til lengri tíma.
Milljónir á fundi
Rökrétt næsta skref virðist hins
vegar handan við hornið og lýtur að
gríðarstórum hópi fólks sem sækir
alþjóðlegar ráðstefnur og fundi
hvers konar á hverju ári.
Í skýrslu BCG segir að þessi
hópur ferðamanna hafi meira
aðdráttarafl fyrir Ísland en allir
aðrir hópar. Ástæðan er einföld.
Þeir eyða meiru á ferðalagi en aðrir
markhópar og þar munar miklu.
BCG segir að þjónusta við þennan
hóp ferðamanna sé rétt að slíta
barnsskónum á Íslandi en stór skref
hafi hins vegar verið tekin að und-
anförnu og er tvennt nefnt; bygging
Hörpu og stofnun markaðsfyrirtæk-
isins Meet in Reykjavík (Ráðstefnu-
borgin Reykjavík). Að fyrirtækinu
standa Reykjavíkurborg, Harpa og
Icelandair Group sem kjölfestuað-
ilar, ásamt fjölda annarra aðildar-
félaga sem þjónusta þennan markað
eða njóta góðs af aukinni markaðs-
setningu á einn eða annan máta.
Þorsteinn Örn Guðmundsson,
framkvæmdastjóri Meet in Reykja-
vík, segir að markmið fyrirtækis-
ins falli vel að boðskap BCG en
með þeirri undantekningu, miðað
við marga aðra hópa ferðamanna,
að innviðirnir eru þegar til staðar
til að auka hlutdeild Íslands í þeim
risamarkaði sem hér um ræðir.
„Þessi ferðamaður, ráðstefnugestur-
inn, er oftar en ekki að koma hingað
þegar verksmiðjan er tóm, svo að
segja. Þessi hópur er að koma utan
háannar en er hins vegar að skilja
margfalt eftir miðað við marga sem
hingað koma í júlí og fylla að mestu
tölfræðina yfir ferðamenn á Íslandi.
Við erum tilbúin til að taka á móti
mun fleirum úr þessum hópi þess
vegna. Á kjörtíma þessara ferða-
langa er pláss á hótelum og framboð
af þjónustu sem annars er illa nýtt.“
Á þetta atriði benda sér fræðingar
BCG sérstaklega. Þó að þessi hópur
sé ekki líklegur til að verja miklum
tíma utan suðvesturhluta landsins
sé hann mikilvægur við að dreifa
aðsókn ferðamanna yfir árið. BCG
nefna einnig að líklega sé þessi
hópur ferðamanna um 7% af öllum
sem heimsækja landið. Árið 2011
hafi aðeins verið 33 viðburðir sem
teljist til alþjóðlegra ráðstefna en
borgir eins og Amsterdam, Búda-
pest, Stokkhólmur og Kaupmanna-
höfn fái árlega um og vel yfir 100
slíka viðburði.
Um hvað er að tefla?
Markaður fyrir ráðstefnur, fundi
og hvataferðir í Evrópu veltir um
30.000 milljörðum króna á þessu
ári, er gróft mat Meet in Reykja-
vík. Þorsteinn segir möguleikana
kristallast í þessum stærðum og að
smá leikur að tölum skýri það enn
betur. Íslenski markaðurinn þyrfti
ein ungis að fá um 0,05% (einn tutt-
ugasta úr prósenti) af þessari köku
til að skila veltuaukningu upp á tæp-
lega 16 milljarða króna á ári.
Meðaleyðsla ráðstefnu- og hvata-
ferðagesta er að minnsta kosti
tvöfalt meiri en hjá öðrum ferða-
mönnum og er áætluð yfir 60 þús-
und krónur á dag. Í ljósi þess hvað
hér er um stóran markað að ræða
telur Meet in Reykjavík afar raun-
hæft að hlutur Íslands fari hratt
stækkandi – og 0,05% af kökunni
gætu verið ágætis byrjun.
Hvað er í veginum?
Þorsteinn segir að ýmis ljón séu
í veginum. Helst sé að nefna að
vinna á áhættufælni þeirra fáu og
stóru aðila sem annast undirbúning
alþjóðlegra ráðstefna. „Einn stærsti
þröskuldurinn er að gera þeim
grein fyrir hversu góð aðstaða er á
Íslandi. Við erum að skipta við aðila
sem þekkja stóru borgirnar og vita
að hverju þeir ganga þar. Menn telja
sig vita allnokkuð um Ísland en vita
samt ekki nógu mikið. Sumir vita
hversu háþróað íslenskt samfélag
er en aðrir halda að við búum í snjó-
húsum og allt þar á milli. Þeir sem
eru snjóhúsamegin á skalanum eru
mjög áhættufælnir, enda skiptir við-
komandi öllu máli að þúsund manna
ráðstefna takist vel. Okkar vinna
snýst því um að komast í samband
við þessa aðila, sem eru tiltölulega
fáir en stórir, og virkilega útskýra
að áhættan er ekki til staðar,“ segir
Þorsteinn.
Vinna Þorsteins og félaga snýst
um að markaðssetja Reykjavík fyrst
og síðast. „Ég er þeirrar skoðunar
að möguleikarnir séu óendanlegir
þegar viss grundvöllur hefur verið
lagður. Ekkert er þá til fyrirstöðu
að komur þessara ferðamanna
dreifist um landið.“
Lítið vitað
Þegar Þorsteinn er spurður hvert
markmið Meet in Reykjavík er
við fjölgun á þessum hópi ferða-
manna kemur hann inn á aðkall-
andi vanda íslenskrar ferðaþjón-
ustu. „Það hafa verið afar litlar
rannsóknir á þessum hluta ferða-
þjónustunnar hér á Íslandi. Til að
vita hvaða aðferðir henta okkur
best þarf rannsóknir. Til að marka
skýr markmið verður maður að
vita hvar maður er. Öðruvísi sér
maður ekki árangur erfiðisins. Við
teljum að hægt sé að ná mun stærri
hlutdeild á þessum markaði og
þetta sem ég nefndi, 0,05 prósent,
er langt undir því sem við teljum
okkur eiga inni,“ segir Þorsteinn.
Risamarkaður handan við hornið
Í Evrópu veltir markaður fyrir ráðstefnur, fundi og hvataferðir um 30.000 milljörðum íslenskra króna. Tuttugasti hluti úr prósenti af þeim
markaði skilar Íslandi 16 milljörðum. Sérfræðingur segir að Reykjavík geti komist í hóp tíu vinsælustu ráðstefnuborga heims innan fárra ára.
Á RÁÐSTEFNU Í júní komu 2.500 tannréttingafræðingar saman í Hörpu til skrafs og
ráðagerða. Formaður framkvæmdanefndarinnar, Jonathan Sandler, segir að Reykja-
vík geti orðið ein af tíu vinsælustu ráðstefnuborga heims; hér sé allt til staðar til að
svo megi verða. MYND/EYÞÓR ÁRNASON
Ég er
þeirrar
skoðunar að
mögu-
leikarnir séu
óendanlegir
þegar viss
grundvöllur hefur verið
lagður. Ekkert er þá til
fyrirstöðu að komur
þessara ferðamanna
dreifist um landið.
Þorsteinn Örn Guðmundsson,
framkvæmdastjóri Meet in Reykjavík
JONATHAN
SANDLER
www.volkswagen.is
Volkswagen Caddy
Caddy er áreiðanlegur, sparneytinn og þægilegur
í allri umgengni. Lipur vinnuþjarkur með frábæra
aksturseiginleika og ríkulegan staðalbúnað.
Hann er fáanlegur með bensín-, dísil- og metan-
vélum frá framleiðanda.
*Miðað við C addy TSI bensín, 86 hestöfl, beinskiptur.
Aukahlutir á mynd, álfelgur og þokuljós.
Góður
vinnufélagi
Atvinnubílar
Til afgreiðslu strax
Fæst einnig fjórhjóladrifinn
Caddy* kostar aðeins frá
3.090.000 kr.
(2.462.151 kr. án vsk)
ASKÝRING | 12
FERÐAÞJÓNUSTA: HVERT Á AÐ BEINA KRÖFTUNUM VIÐ MARKAÐSSETNINGU?
Svavar
Hávarðsson
svavar@frettabladid.is