Fréttablaðið - 19.09.2013, Blaðsíða 50

Fréttablaðið - 19.09.2013, Blaðsíða 50
19. september 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 42 TÓNNINN GEFINN Haukur Viðar Alfreðsson Bandaríski tónlistarmaðurinn Mark Lanegan hefur gefið út töku- lagaplötuna Imitations hjá út- gáfunni Vagrant Records. Tólf lög eru á plötunni, þar á meðal She´s Gone með Hall & Oates, You Only Live Twice með Nancy Sinatra og Brompton Oratory með Nick Cave. Lanegan segir verkefnið hafa haft mikla tilfinningalega þýðingu fyrir sig: „Þegar ég var að alast upp seint á sjöunda áratugnum og í byrjun þess áttunda spiluðu for- eldrar mínir og vinir þeirra plötur með Andy Williams, Dean Martin, Frank Sinatra og Perry Como. Þetta var tónlist með strengja- útsetningum og karlar að syngja lög sem hljómuðu sorgmædd, hvort sem þau voru það eða ekki,“ sagði söngvarinn. „Á mínu heim- ili hlustuðu foreldrar mínir líka á sveitatónlist. Willie Nelson, Johnny Cash, George Jones og Vern Gosdin voru á meðal uppáhaldstónlistar- mannanna. Mig hefur lengi langað til að búa til plötu sem veitti mér sömu tilfinningu og þessar gömlu plötur gerðu, með því að nota sömu lögin og ég elskaði sem strákur og önnur sem ég hef heillast af á full- orðinsárum mínum. Það er þessi plata, Imitations.“ Mark Lanegan fæddist í Washington í Bandaríkjunum árið 1964 og verður því fimmtugur á næsta ári. Hann er einna þekktastur sem söngvari grunge- sveitarinnar Screaming Trees. Auk þess hefur hann átt gifturíkan sóló- feril og starfað með listamönnum á borð við Isobel Campbell, Moby, Nick Cave, Soulsavers, Mad Season og rokkurunum í Queens of The Stone Age. Lanegan kemur fram á tvennum tónleikum í Fríkirkjunni 30. nóvember og 1. desember og er þetta fyrsta heimsókn hans til Íslands. Tónleikarnir eru loka- hnykkurinn í tveggja mánaða tónleikaferðalagi söngvarans, European Acoustic Tour. Sérstakir gestir verða Duke Garwood og Lyenn. Lanegan og sá fyrrnefndi sendu frá sér plötuna Black Pudding fyrr á árinu og uppskáru mikið lof gagnrýnenda. Lyenn er hliðarverkefni Frederic L. Jacques, en auk þeirra tveggja er von á fleiri góðum gestum á tónleikana. freyr@frettabladid.is Mark Lanegan syngur uppáhaldslögin sín Bandaríkjamaðurinn Mark Lanegan hefur gefi ð út tökulagaplötuna Imitations. LÖG EFTIR AÐRA Mark Lanegan syngur uppáhaldslögin sín eftir aðra tónlistarmenn á plötunni Imitations. NORDICPHOTOS/GETTY Mark Lanegan og Kurt Cobain heitinn, söngvari Nirvana, voru góðir vinir. Áður en Nirvana sló í gegn með Nevermind tóku þeir upp EP-plötu með sínum útgáfum af lögum tónlistarmannsins Leadbelly. Platan var aldrei gefin út en eitt laganna sem þeir tóku upp, Where Did You Sleep Last Night, rataði á fyrstu sólóplötu Lanegan, The Winding Sheet, sem kom út 1990. Í laginu syngur Cobain bakraddir og spilar á gítar, auk þess sem Krist Novoselic úr Nirvana spilar á bassa. Nokkrum árum síðar gerði Cobain lagið frægt er hann söng það á órafmögnuðum MTV-tónleikum Nirvana. Söng lög Leadbelly með Kurt Cobain Skýringar Stendur í stað síðan í síðustu viku Fellur um sæti síðan í síðustu viku Hækkar á lista síðan í síðustu viku Nýtt á lista Listarnir eru teknir saman fyrir Félag hljómplötuframleiðenda. Listarnir eru birtir í heild sinni á Vísir.is. Þátttakendur í Lagalistanum Bylgjan, FM957, Xið 977, Rás 2, K100,5, tonlist.is. Verslanir í Tónlistanum Skífan, Hagkaup, Penninn/ Eymundsson, 12 tónar, Harpa, Smekkleysa plötubúð, Elko, tonlist.is. LAGALISTINN TÓNLISTINN 12.9.2013 ➜ 18.9.2013 1 Dikta Talking 2 Avicii / Aloe Blacc Wake Me Up 3 Lorde Royals 4 Katy Perry Roar 5 Pink / Lily Allen True Love 6 Lana Del Ray Summertime Sadness 7 Olly Murs Dear Darlin‘ 8 Ellie Goulding Burn 9 Emiliana Torrini Speed Of Dark 10 Arctic Monkeys Do I Wanna Know? 1 Emilíana Torrini Tookah 2 Ýmsir Pottþétt 60 3 Pálmi Gunnarsson Þorparinn 4 Dúmbó og Steini Dömufrí 5 Ýmsir This Is Icelandic Indie Music 6 Úr söngleik Borgarleikhússins Mary Poppins 7 Ásgeir Trausti Dýrð í dauðaþögn 8 Of Monsters And Men My Head Is An Animal 9 Samaris Samaris 10 Sigur Rós Kveikur Á dögunum var ég dreginn á stórtónleika Pálma Gunnarssonar í Hörpu sem haldnir voru undir yfirskriftinni Þorparinn og fylgdu í kjölfar útgáfu sam- nefndrar safnplötu söngvarans. Ekki að það hafi þurft að draga mig emjandi, Pálmi hefur sungið mörg frábær lög og er einn allra besti bassaleikari landsins (sönnunargagn A: Björgúlfur bréfberi með Ladda). En samferðafólk mitt er með svarta beltið í Pálma og aðdáun mín á manninum bliknar því í samanburðinum. Tónleikarnir voru vel heppnaðir og bandið hans Pálma (hugmynd að sjón- varpsþætti?) var vel spilandi og þétt. Þó fannst mér leiðinlegt að sjá nokkur lög skilin út undan. Ég elska þig (þótt þú sért úr steini) er sturlað lag af Borgarbrag Gunnars Þórðarsonar. Gulli Briem fer hamförum í viðlaginu á plötunni og það jaðrar við vitfirringu að sleppa laginu á tónleikunum, þar sem Gulli sat jú á bak við settið og var eflaust til í tuskið. Götustelpan, hin sveitta og þreytta, er önnur klassík sem heyrist allt of sjaldan. Í texta lagsins tjáir Pálmi hlustendum meðal annars að langvarandi vændi reyni ört á taugarnar. Glæsilegt lag og boðskapur þess á vel við enn í dag. Engu að síður var lagið fjarverandi. Vinur minn missti vitið er svo þriðja lagið sem ég ætla að tuða yfir að hafa ekki fengið að heyra í Hörpu. Ég vona að Pálmi sé ekki orðinn of feiminn við að syngja um vitfirringa sem éta sinn eigin skít. Ekki fengum við heldur Kontóristann, Gamla skólann og Sölva Helgason. Á rauðu ljósi var hvergi og ekki Gamli góði vinur heldur. En það að hann hafi komist upp með að sleppa þessum perlum undirstrikar hversu gríðarlega farsælan feril Pálmi á að baki og voru það næstum bara slagarar sem hljóm- uðu í Hörpu. Tuð mitt fer því í flokk lúxusvandamála. En ein spurning sækir að mér í sífellu. Hvernig stendur á því að Gulli Briem er enn þá tvítugur? Gamli góði vinur Í spilaranum Snorri Helgason - Autumn Skies Arctic Monkeys - AM 1860 - Artificial Daylight MYND/ÞORMAR VIGNIR GUNNARSSON
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.