Fréttablaðið - 19.09.2013, Qupperneq 22
19. september 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | VIÐSKIPTI22
VIÐSKIPTI Vonir breska tölvuleikjafram-
leiðandans Rockstar Games standa til
þess að á fyrstu söluviku nemi sala
Grand Theft Auto V (GTA 5) á heims-
vísu 500 milljónum punda, eða 95,8
milljörðum íslenskra króna.
Í umfjöllun breska ríkisútvarpsins,
BBC, kemur fram að salan myndi með
því nema nærri því þreföldum þeim
kostnaði sem lagður hefur verið í
framleiðslu og markaðssetningu tölvu-
leiksins. Sú upphæð er talin nema 170
milljónum punda, eða 32,6 milljörðum
króna.
Leiksins, sem fór í almenna sölu
síðasta þriðjudag, hefur verið beðið
með eftirvæntingu, enda hófst fram-
leiðsla á honum fyrir fimm árum.
Fyrstu viðtökur og dómar benda jafn-
framt til þess að væntingar framleið-
enda leiksins séu ekki fjarri lagi.
Þá má líka horfa til þess að fyrri
útgáfa leiksins (GTA 4) halaði inn
350 milljónum punda (67 milljörðum
króna) fyrstu söluvikuna.
Tölurnar eru af slíkri stærðargráðu
að skyggir á flest annað í afþreyingar-
iðnaði. Framleiðslukostnaður leiksins
er mitt á milli dýrustu og næstdýrustu
kvikmynda sem gerðar hafa verið.
Dýrasta kvikmyndin er sú þriðja í
Pirates of the Caribbean-mynda röðinni
og kostaði 300 milljónir Bandaríkja-
dala í framleiðslu, eða 36,5 milljarða
króna. Næstdýrust var Disney-myndin
Tangled, sem kostaði 260 milljónir
dala (31,6 milljarða króna.)
Fyrir árslok er því spáð að seldar
verði á heimsvísu 15 til 18 milljónir
eintaka af GTA 5. Miðað við útsölu-
verð leiksins í Bandaríkjunum yrðu
tekjurnar af slíkri sölu rúmur 131
milljarður íslenskra króna. Sú sala ein
þýðir tekjur sem fara fram úr tekjum
af Pirates of the Caribbean upp á
rúma 116 milljarða króna.
Endanleg sala leiksins er hins vegar
talin verða mun meiri. Forverinn,
GTA 4, seldist í 25 milljónum eintaka
og talið er að GTA 5 fari vel fram úr
þeim tölum.
Í umfjöllun BBC er bent á að við-
tökurnar við GTA 5 gætu haft áhrif á
áherslur í afþreyingariðnaði til fram-
tíðar. Fólk sem spilar tölvuleiki sé
komið af barnsaldri og framleiðslan
taki mið af því.
Bent er á að fleiri eintök af GTA
5 hafi selst í forsölu en breska
hljómsveitin The Who hafi frá upphafi
selt af hljómplötum. Frá því að Grand
Theft Auto-leikirnir hafi fyrst hafið
göngu sína árið 1997 hafi verið seldar
af þeim yfir 135 milljónir eintaka.
„Áhrif og gæði leiksins sýna hversu
langt þróunin er komin,“ er haft
eftir Richard Wilson, framkvæmda-
stjóra Tiga, sambands tölvuleikja-
framleiðenda í Bretlandi. „Þetta
sýnir að tölvuleikir standa nú jafn-
fætis kvikmyndum, sjónvarpi og
teiknimyndum og verðskulda eftirtekt
í samræmi við það.“
olikr@frettabladid.is
HROTTI Á GÖTU Skjámynd úr GTA 5 frá
Rockstar Games.
RISAAUGLÝSING Götumynd frá Los Angeles í Bandaríkjunum í síðustu
viku þar sem sjá má tölvuleikinn Grand Theft Auto V auglýstan á risavegg-
spjöldum. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Kostnaður við Grand Theft Auto 5
talinn nema 32,6 milljörðum króna
Tölvuleikir standa nú jafnfætis kvikmyndum, sjónvarpsefni og teiknimyndum í afþreyingariðnaði. Kostnaður við nýjasta Grand Theft Auto-
leikinn er svipaður og við dýrustu kvikmyndir heims. Tekjurnar verða meiri og gætu breytt áherslum í afþreyingariðnaði til framtíðar.
Þótt upp séu gefnar aldurstakmarkanir á tölvu-
leiknum Grand Theft Auto V, sem er nýútkominn,
hefur breska kennarasambandið þegar lýst áhyggjum
af meintum áhrifum ofbeldisins á ung börn. Í um-
fjöllun The Mirror í Bretlandi er vitnað sérstaklega
til atburðarásar í leiknum þar sem leikmaðurinn þarf
að pína upplýsingar upp úr manni og notar til þess
harðsvíraðar pyntingaraðferðir. Meðal þess sem lagt
er til að gert sé við fórnarlambið er að draga úr því
tennurnar með töngum og brjóta á því hnéskeljarnar
með rörtöng.
Haft er eftir Alison Sherratt, forseta sambands
kennara og fyrirlesara, að slíkt ofbeldi eigi ekki að
fyrirfinnast í tölvuleikjum. Vísar hún til kannana í
þá veru að ung börn komist í ofbeldisfulla tölvuleiki
þrátt fyrir öll bönn.
Í umfjöllun The Mirror er líka vísað til rannsóknar
sem birt var í ágústlok í Springer Journal of Youth
and Adolescence. Þar komast rannsakendur að því
að ofbeldisfullir tölvuleikir ýti ekki undir ofbeldis-
hegðun í unglingum, jafnvel þótt þeir standi höllum
fæti vegna þunglyndis eða athyglisbrests.
➜ Hrikalegt ofbeldi sætir gagnrýni
ÚR GTA 5 Í ofbeldisfullu atriði er rör-
töng notuð sem yfirheyrslutæki.
MYND/SKJÁSKOT
Skipholti 37
Sími 568 8388
Opið laugardaga frá 11-16
Láttu drauminn rætast!
Til að rýma fyrir nýjum og glæsilegum
vörum bjóðum við úrval ljósa og fylgihluta
á frábæru verði í nokkra daga.
170.000 kr.
Verð áður 244.000 kr.
Twiggy