Fréttablaðið - 19.09.2013, Síða 11
FIMMTUDAGUR 19. september 2013 | FRÉTTIR | 11
DÓMSMÁL Karlmaður fæddur árið
1989 hefur verið ákærður fyrir
umsvifamikil fjársvik á vefsíðunni
bland.is, sem áður hét Barnaland.
Auglýsing birtist í Lögbirtinga-
blaðinu í gær þar sem maðurinn var
kvaddur til að koma fyrir dóm, hlýða
á ákæru, halda uppi vörnum og sæta
dómi.
Maðurinn er ákærður fyrir að hafa
svikið rúmlega tvö hundruð þúsund
krónur út úr fimm einstaklingum
á vefsíðunni í febrúar á þessu ári.
Svo virðist sem hann hafi auglýst
vörur á síðunni en ekki staðið við við-
skiptin. Meðal annars á hann að hafa
svikið 25 þúsund krónur út úr konu
sem hugðist kaupa af honum Kitchen
aid hrærivél. Konan greiddi fyrir
vöruna, en maðurinn skilaði aldrei
hrærivélinni til hennar.
Maðurinn endurtók leikinn þegar
hann seldi manneskju kraftgalla
fyrir tólf þúsund krónur. Þá er hann
ákærður fyrir að hafa svikið þrjá til
viðbótar.
Sæki maðurinn ekki dómsþing,
sem fram fer í lok október, má hann
búast við því að verða handtekinn og
færður fyrir dóm. - vg
Maður hefur verið kvaddur til þess að mæta fyrir dóm vegna fjársvika í gegnum samskiptavef:
Ákærður fyrir 200.000 króna svik á bland.is
SÖLUTORG
BLAND.
IS Vefsíðan
er vinsæl
sölusíða
fyrir notaða
hluti.
MATVÆLAÖRYGGI Matvælastofnun
skoðaði tuttugu hafnir af u.þ.b.
sextíu sem við landið eru og
fengu flestar þeirra nokkuð góða
einkunn. Yfirleitt var umgengni
um löndunarsvæðið góð,
löndunar búnaður hreinn og vatn
til þrifa aðgengilegt.
Mesta þörf á úrbótum er hins
vegar við þrif á löndunarkörum.
Þrifnaði á löndunarkörum var
almennt ábótavant að mati Mat-
vælastofnunar. Algengast var
að löndunarkör á höfnum, sem
merkt eru Umbúðamiðlun, væru
óhrein og að þau væru ekki þrifin
fyrir notkun. - vg
Könnuðu hafnir á landinu:
Löndunarkör
víða skítug
REYKJAVÍKURHÖFN Kör voru víða
skítug.
STJÓRNSÝSLA Greiddar hafa verið
tæplega 170 milljónir króna í
svokallaðan flutningsjöfnunar-
styrk á þessu ári, samkvæmt
vef atvinnu- og nýsköpunarráðu-
neytisins.
Markmiðið er að styðja fram-
leiðsluiðnað og atvinnuuppbygg-
ingu á landsbyggðinni með því að
jafna kostnað framleiðenda við
flutning á vörum sínum.
Fyrirtæki á Norðurlandi eystra
fengu mest í sinn hlut, eða rétt
tæplega 100 milljónir króna.
Vestfirðir komu þar næst með
tæplega 40 milljónir og Norður-
land vestra með rúmlega 20
milljónir. - vg
Fyrirtæki úti á landi styrkt:
170 milljónir í
jöfnunarstyrki
STJÓRNMÁL Ríkisstjórn Íslands
hefur samþykkt styrkveitingu að
upphæð tólf milljónir króna til
Stofnunar Árna Magnússonar í
íslenskum fræðum. Styrkurinn
er veittur vegna hátíðarhalda og
ýmissa verkefna í tilefni af því
að í nóvember eru 350 ár liðin frá
fæðingu Árna Magnússonar.
Í tilkynningu frá forsætisráðu-
neytinu segir að arfleifð Árna
varði tungu, bókmenntir og menn-
ingu þjóðarinnar en hann helgaði
ævi sína fræðistörfum og söfnun
handrita. - bl
Ríkisstjórnin styrkir:
Tólf milljónir til
Árnastofnunar