Fréttablaðið - 19.09.2013, Qupperneq 32
19. september 2013 FIMMTUDAGUR| TÍMAMÓT | 32TÍMAMÓT
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@365.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 512 5000.
Ástkær eiginmaður minn,
faðir, tengdafaðir og afi,
EINAR VILHJÁLMSSON
rafeindavirki,
Marbakkabraut 18, Kópavogi,
lést á Landspítalanum, deild 11E,
13. september. Útförin verður auglýst síðar.
Ester Jónsdóttir
Jón Þór Einarsson Þóra Elísabet Kjeld
Eyjólfur Einarsson Jóna Einarsdóttir
Vilhjálmur Einarsson Ester Sif Harðardóttir
og barnabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð,
hlýhug og vináttu við andlát og útför
okkar ástkæru eiginkonu, móður,
tengdamóður, dóttur og ömmu,
SIGRÚNAR ERLU
VILHJÁLMSDÓTTUR
Birkihlíð 18, Sauðárkróki.
Hallgrímur Ingólfsson
Hákon Hallgrímsson Hrefna Guðmundsdóttir
Unnur Hallgrímsdóttir
Þór Hallgrímsson Sandra Heimisdóttir
Ásta Kristjánsdóttir Hákon Torfason
og barnabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
og hlýhug vegna andláts og útfarar
ástkærs eiginmanns, stjúpföður,
tengdaföður og bróður,
JÓNS KRISTINSSONAR
Fannafold 119.
Sigríður Eysteinsdóttir
Eysteinn Sigurðsson Elísabet Árnadóttir
Pjetur Sigurðsson
Sólveig Kristinsdóttir
Elskuleg eiginkona mín,
móðir, tengdamóðir og amma,
ANNA SIGRÚN BÖÐVARSDÓTTIR
sem lést á líknardeild Landspítalans í
Kópavogi, laugardaginn 14. september,
verður jarðsungin frá Seljakirkju, föstudaginn
20. september kl. 13.00.
Sigurður Sigfússon
Sigurður Óli Sigurðarson Camilla Ósk Hákonardóttir
Svavar Sigurðarson Vaka Önnudóttir
Karen Lind Sigurðardóttir
og aðrir aðstandendur.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
HULDU BALDURSDÓTTUR
Byggðarenda 7, Reykjavík.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk sem annaðist
hana á Hrafnistu í Reykjavík og Kópavogi,
sem og starfsfólk Heimahjúkrunar í Mjódd.
Páll Bergþórsson
Baldur Pálsson Þóra Fríða Sæmundsdóttir
Kristín Pálsdóttir Jón Steinar Gunnlaugsson
Bergþór Pálsson Albert Eiríksson
barnabörn og barnabarnabörn.
Okkar elskulega dóttir, móðir,
tengdamóðir og amma,
ÞÓRA KRISTÍN HELGADÓTTIR
verður jarðsungin frá Hafnarfjarðarkirkju,
föstudaginn 20. september kl. 15.00.
Helgi Björnsson
Bjarni Höskuldsson Anna Gerður Guðmundsdóttir
María Höskuldsdóttir Jón Gísli Þorkelsson
Kristin Dögg Höskuldsdóttir Steinn Jónsson
og barnabörn.
Elskulegur faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
SIGURSTEINN HÚBERTSSON
Hjallabraut 33, Hafnarfirði,
sem lést mánudaginn 16. september, verður
jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði
mánudaginn 23. september kl. 15.00.
Ingibjörg Sigursteinsdóttir
Hafdís Sigursteinsdóttir Gísli Sigurbergsson
Húbert Sigursteinsson
Jón Sigursteinsson Guðrún H. Theodórsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
ÞÓRÐUR ÞÓRÐARSON
áður til heimilis Skálholti 17, Ólafsvík,
lést á Dvalar- og hjúkrunarheimilinu Jaðri,
Ólafsvík, laugardaginn 14. september.
Jarðarförin fer fram frá Ólafsvíkurkirkju
laugardaginn 21. septmeber kl. 14.00.
Egill Þórðarson Yoko A. Þórðarson
Þórður Þórðarson Kari Heidenreich Raa
Karitas Anna Þórðardóttir Guðjón Elísson
Svanfríður Þórðardóttir Björn Arnaldsson
Guðríður Þórðardóttir Björn Hilmarsson
barnabörn og barnabarnabörn.
„Ég held það hljóti að vera einhver vit-
leysa að ég sé orðin áttræð, bara mis-
skráning í kirkjubókum,“ segir Þórunn
Maggý Guðmundsdóttir og skellihlær.
Samt ætlar fjölskylda hennar að halda
henni afmælishóf á laugardaginn milli
þrjú og sex að Strikinu 6 í Garðabæ og
þeir sem vilja heiðra hana með nær-
veru sinni eru hjartanlega velkomnir.
Skál verður á staðnum fyrir framlög
sem fara í sjóð vegna framkvæmda
á húsnæðinu hennar. Þórunn Maggý
segir þetta dæmi um hvað hún eigi
góða að. „Ég á stóra fjölskyldu sem er
mér stuðningur í einu og öllu,“ segir
hún og telur sig sérlega lánsama hvað
það varðar.
Þórunn Maggý er fædd á Ísafirði
en var gefin strax í móðurkviði vegna
þess að faðir hennar var heilsulaus
eftir að hann reyndi að bjarga manni
úr sjó. „Ég var send í reifum sjóleið-
ina til Hafnarfjarðar til föðursystur
minnar, Ingibjargar Benediktsdóttur
Bjarnarson, og Guðmundar Kr. Guð-
mundssonar útgerðarmanns. Við
fluttum svo til Keflavíkur og þar ólst
ég upp. Pabbi dekraði við mig og hafði
alltaf tíma til að hlusta á mig þótt hann
væri að fara á sjóinn. Það var sérstakt
á þessum tíma. Hann átti mótor bátinn
Geir og í ofsaveðri 9. febrúar 1946
fórst báturinn með öllum mönnunum.
Eftir að hann drukknaði sá ég hann oft
við skrifborðið sitt en það trúði mér
enginn,“ segir hún.
Sjö einstaklingum skilaði Þórunn
Maggý inn í veröldina. „Ég rétt slapp
yfir 17 ára afmælisdaginn áður en ég
fæddi mitt fyrsta barn. Það var hraust-
ur strákur,“ segir hún glaðlega og
kveðst líka hafa sinnt börnum í fimm-
tán ár á dagheimilum og vöggustofum.
Þórunn Maggý er þekkt á landsvísu
fyrir miðilshæfileika sína og segist
hafa verið næm á aðrar víddir frá því
hún man eftir sér. Hún starfaði hjá
Sálarrannsóknarfélaginu í 25 ár og er
þakklát fyrir það.
Barnabörnin koma oft í heimsókn til
Þórunnar Maggýjar og þá er rabbað
um allt milli himins og jarðar. „Það
eru ómetanlegar stundir,“ segir hún
og kveðst stundum segja þeim frá sínu
lífi og bera það saman við nútímann. „Í
dag eignast unglingar bíla 17 til 20 ára
og þykir sjálfsagt. Ég var 28 ára þegar
ég tók bílpróf, komin með fjögur börn
og ólétt. Við vorum að byggja svo ég
fór að vinna við flökun á nóttunni. Það
var vel borgað og ég var handfljót.“
Þórunn Maggý er glettin og kát og
kveðst hafa fengið gott skap í vöggu-
gjöf. „Auðvitað er allur þremillinn að
mér en ég hef lag á að henda því aftur
fyrir bak. Maður er eins og gamall bíll
sem þarf viðhald, þá meina ég viðgerð
en ekki viðhald … þú veist!“
gun@frettabladid.is
Gott skap í vöggugjöf
Þórunn Maggý Guðmundsdóttir miðill er áttræð í dag en haldið verður upp á það á
laugardaginn að Strikinu 6 í Garðabæ. Hún trúir því varla að tíminn hafi liðið svona fl jótt.
ÞÓRUNN MAGGÝ Ég sé spaugilegu hliðarnar á hlutunum og syng bara: „Aftur á bak og út á hlið, karíóka,“ segir hún hlæjandi. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA