Fréttablaðið - 19.09.2013, Síða 44
19. september 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 36
HALLSTEINN SVEINSSON Smiðurinn
átti verk eftir marga merkustu mynd-
listarmenn þjóðarinnar.
Hallsteinn Sveinsson átti verk eftir
marga merkustu myndlistarmenn
þjóðarinnar á síðustu öld. Á ævi-
kvöldi sínu gaf hann okkur Borg-
firðingum þau og sú gjöf verður
ekki metin til fjár. Við höfum sett
upp minningarsýningu honum til
heiðurs á hundrað og tíu ára afmæli
hans. Þar leggjum við sérstaka
áherslu á listina, hugsjónir hans og
persónuleika, handverk og muni,“
segir Guðrún Jónsdóttir, forstöðu-
maður Safnahúss Borgarfjarðar,
um sýningu sem þar verður opnuð
klukkan 17.30 í dag.
Myndir eftir Kjarval, Hafstein
Austmann, Pál Guðmundsson á
Húsafelli, Þorvald Skúlason, Nínu
Tryggvadóttur, Þorbjörgu Hösk-
uldsdóttur, Jóhann Briem, Kristján
Davíðsson og fleiri eru á sýning-
unni enda segir Guðrún Hallstein
hafa laðað að sér listamenn. „ Margir
kannast við frásagnir af Erlendi í
Unuhúsi sem var listamönnum stoð
og stytta. Hallsteinn var svipaðrar
gerðar. Hann var með innrömmun-
arverkstæði og laðaði að sér lista-
menn sem létu hann hafa verk eftir
sig sem vinnulaun. Meðal þess sem
sjá má á sýningunni er hvernig þeir
myndgerðu þennan hollvin sinn í
teikningum, málverkum og högg-
myndum.“
Hallsteinn var einn af ellefu
systkinum. Nafnkunnast þeirra
er Ásmundur Sveinsson mynd-
höggvari. Hann fær sinn sess á
sýningunni í Safnahúsinu enda var
veigamikill þáttur í hugsjón Hall-
steins að miðla verkum Ásmundar í
Borgarfjörð. Hallsteinn átti stóran
þátt í að verkið Sonartorrek var sett
upp við Borg á Mýrum árið 1985.
Með listaverkagjöf sinni lagði
Hallsteinn grunn að Listasafni
Borgarness. Hann bjó síðustu
æviár sín á Dvalarheimili aldraðra í
Borgar nesi þar sem hann var einnig
með smíðaverkstæði.
Sýningin í Safnahúsinu mun
standa fram til loka janúar 2014.
gun@frettabladid.is
➜ Í Napólí
hefur skapast
sérstök sönglaga-
menning sem í
daglegu tali eru
kölluð Canzone
Napoletana.
Minning Hallsteins
heiðruð með sýningu
Sýning í Safnahúsi Borgarfj arðar sem opnuð er í dag heiðrar minningu Hall-
steins Sveinssonar smiðs (1903-1995) sem gaf Borgfi rðingum listaverkasafn sitt.
Árni Heiðar Karlsson píanóleikari og
Gissur Páll Gissurarson tenór koma
fram á stofutónleikum á Óðinsgötu
7 dagana 26. og 27. september næst-
komandi.
Fyrir rúmu ári tróðu þeir félagar
upp á stofutónleikum í Þingholtunum
með íslensk sönglög og komust þá
færri að en vildu. Nú koma þeir fram
á tvennum tónleikum með nýtt pró-
gramm með Napólílögum og í hléi
munu þeir ásamt húsráðendum trakt-
era tónleikagesti á ítölskum veitingum.
Í Napólí hefur skapast sérstök söng-
lagamenning sem í daglegu tali eru
kölluð Canzone Napoletana, eða Napólí-
lög. Lögin eru um margt sérstök því
þau fleyta rjómann af aríum ítölsku
óperunnar, en eru samt byggð á þjóð-
lagagrunni og þau má heyra flutt, jafnt
með einum gítar sem heilli sinfóníu-
hljómsveit.
Napólílögin hljóma á Óðinsgötu
Árni Heiðar Karlsson og Gissur Páll Gissurarson á tvennum stofutónleikum.
STOFU-
TÓNLEIKAR
Árni Heiðar
Karlsson píanó-
leikari og Gissur
Páll Gissurarson
tenór verða með
nýja dagskrá í
Þingholtunum.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Elín Hansdóttir og Theresa Him-
mer taka þátt í leiðsögn og ræða við
gesti um verk sín á sýningunni Vísar
– húsin í húsinu í Hafnarborg sunnu-
daginn 22. september klukkan 15.
Vísar – húsin í húsinu er sýning
þar sem staður og rými fá nýja
merkingu og hægt er að stökkva
fram og aftur í tíma gegnum birt-
ingarmyndir af húsinu í húsinu. Á
sýningunni eru ný verk eftir mynd-
listarmennina og arkitektana Elínu
Hansdóttur, Ilmi Stefánsdóttur,
Marcos Zotes og Theresu Himmer.
Verkin eiga það sameiginlegt að
vinna á mörkum myndlistar og
arkitektúr þó þau eigi að öðru leyti
ólíkan feril að baki.
Verkin á sýningunni kallast á
við verk bandaríska listamannsins
Gordons Matta-Clark, Conical
Inter sect, frá árinu 1975, sem er
hluti sýningarinnar en þetta er í
fyrsta sinn sem verk eftir Matta-
Clark er sýnt hér á landi.
Sýningarstjóri er Anna María
Bogadóttir en hugmynd hennar að
þessari sýningu var valin úr inn-
sendum tillögum síðastliðið haust
þegar kallað var eftir tillögum
að haustsýningu 2013 í Hafnar-
borg. Vísar – húsin í húsinu er
þriðja sýningin í haustsýninga-
röð Hafnar borgar en nú er kallað
eftir tillögum að sýningu í safninu
haustið 2014.
Elín og Theresa ræða við gesti
Leiðsögn og umræður um sýninguna Vísar – húsin í húsinu í Hafnarborg.
MYNDLISTARKONA Elín Hansdóttir
Býr og starfar í Berlín. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
Við Háaleitisveg stendur hús eitt
fjarri öðrum húsum og er reist á
grýttum mel. Það heitir Uppland. Á
annarri álmu hússins horfir mann-
hæðarhár gluggi á höllum vegg mót
vesturhimni og ókunnur vegfarandi
mætti ætla, að hér byggi listmálari,
sem þyrfti mikla birtu.
Íbúi hússins heitir Hallsteinn
Sveinsson, nær sextugur að aldri,
einhleypur maður. Listmálari er
hann ekki, en líf hans er þó tengt
listinni á margan hátt og hann
hefur jafnvel borið við að gera
höggmyndir, sem hann hefur þó
brotið jafnóðum.
➜ Inngangur viðtals Jökuls Jakobssonar
í Tímanum 29. apríl 1962
Í SAFNAHÚSI
BORGARFJARÐAR
Guðrún Jónsdóttir
forstöðukona við
mynd af Hallsteini,
mótaðri í stein af
Ragnari Kjartans-
syni myndhöggvara.
Í Vatnsmýrinni er nú hægt að upp-
lifa lífríkið á nýjan hátt, skyggnast
undir yfirborð vatnsins, fá yfirsýn
yfir ferðir fuglanna og hlusta á
tóna mýrarinnar.
Á sýningunni Lífið í Vatns-
mýrinni í Norræna húsinu árið
2012 var fuglunum, mannlífinu og
gróðrinum þar gerð skil. Sýningin
var liður í samstarfi Norræna
hússins, Háskóla Íslands og
Reykjavíkurborgar við að endur-
heimta votlendið í Vatnsmýrinni
og friðinn í varplandinu.
Sem framhald af sýningunni
hafa nú verið settar upp sex inn-
setningar víðsvegar um mýrina
þar sem gestum gefst kostur á að
kynnast mýrinni betur og fræðast
um votlendið.
Innsetningarnar eru eftirfarandi:
Fræðsluskilti við Hringbraut þar
sem meðal annars má lesa um
þróun og virkni Vatnsmýrarinnar
og samskipti mannsins og mýrar-
innar í gegnum tíðina, fræðslu-
skilti við Norræna húsið sem segir
frá gróðri sem vex í Vatnsmýri og
fuglum sem verpa þar, sjónpípa
sem hægt er að nota til að skyggn-
ast undir yfirborð vatnsins og
kanna lífríkið, gróður eða rusl
sem þar er, hásæti þar sem hægt
er að virða fyrir sér hvernig land-
ið liggur, ferðir fuglanna og flug-
vélanna, hlustunarstóll þar sem
hægt er að setjast, horfa yfir Hús-
tjörnina og hlusta á kvak, krunk og
garg, hlustunarpípur sem magna
upp hljóð og hringrásarskilti sem
útskýrir samhengi ólíkra þátta í
mýrinni. Með því að snúa skiltinu
er hægt að lesa um hvern mánuð
ársins og uppgötva hringrás
mýrarinnar.
Hönnuðir innsetninganna eru
Brynhildur Pálsdóttir hönnuður og
Magnea Þ. Guðmundsdóttir arki-
tekt. Grafísk hönnun var í höndum
Jónasar Valtýssonar og Ármanns
Agnarssonar.
Innsetningar á nýrri
Vatnsmýrarsýningu
Gestum gefst færi á að upplifa lífríki Vatnsmýrinnar,
skyggnast undir yfi rborð vatnsins og fl eira.
LÍFIÐ Í VATNSMÝRINNI Settar hafa verið upp sex innsetningar víðsvegar um
mýrina.
Myndlistarmaðurinn og rit-
höfundurinn Sigrún Eldjárn leiðir
gesti um og spjallar um yfirstand-
andi sýningu sína í Listasafni ASÍ
við Freyjugötu 41 á laugardaginn
næsta, 21. september, klukkan 15.
Sýningin ber yfirskriftina
Teiknivísindi og inniheldur að
mestu blýantsteikningar af ýmsum
stærðum og gerðum.
Sýningin stendur ti l 29.
september og er opin milli 13 og 17
alla daga nema mánudaga. Aðgang-
ur er ókeypis og allir velkomnir.
Sigrún Eldjárn fræðir gesti
Leiðir gesti um og spjallar um sýningu sína.
LEIÐSÖGN Sýning Sigrúnar Eldjárn ber yfirskriftina Teiknivísindi. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
M
YN
D
/J
Ó
H
AN
N
A
SK
Ú
LA
D
Ó
TT
IR
MENNING