Fréttablaðið - 19.09.2013, Qupperneq 54
19. september 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 46
? Ég er með spurningu um brjóstagjöf. Við konan mín
eignuðumst barn fyrir stuttu og
barnið er á brjósti. Brjóstagjöfin
gengur bara þokkalega, smá
hnökrar fyrst en gengur nú vel en
ég verð að játa að mér þykir þetta
svolítið spennandi (smá æsandi
stundum) að sjá hana og brjóstin í
þessu nýja hlutverki og ég er for-
vitinn um hvernig þetta er. Get ég
talað um þetta við hana? Jafnvel
fengið að prófa eða er þetta bara
fáránlegt?
●●●
SVAR: Brjóstagjöf er ákaflega
áhugavert tímabil. Brjóstin tútna
út af mjólk og verða stór og stinn
og svo sprautast úr þeim hvítur
vökvi í allar áttir. Ég man eftir
miklum umræðum í einum Fri-
ends-þætti þar sem Ross smakk-
aði brjóstamjólk (reyndar úr pela)
og skolaði henni niður með kex-
kökum. Þar sem ég hef í tvígang
verið með barn á brjósti þá kemur
þessi umræða alltaf upp, bæði útlit
brjóstanna og svo hvort eigi ekki
að smakka á henni. Þá veit ég um
maka sem hafa þurft að tappa af
stútfullum, glerhörðum brjóstum.
Þó er þetta ekki tengt kynferðis-
legri örvun, meira forvitni eins
og þú spyrð um. Þó eru til hópar
af fólki sem er með ákveðið blæti
fyrir brjóstagjöf og stundar hana í
sínu kynlífi (löngu eftir að börnin
eru hætt á brjósti) en það er ekki
það sem þú ert að spyrja um, held
ég.
Sumum mökum þykir konan
munúðarfull með þennan nýja
líkama, í þessu nýja mikilvæga
hlutverki. Þetta á þó ekki alltaf við
um konurnar. Brjóstagjöf er krefj-
andi og getur verið þreytandi, bæði
fyrir sál og líkama. Konum líður
oft illa með líkama sinn eftir fæð-
ingu og kvarta oft undan kyndeyfð
(minni kynlöngun) og jafnvel leg-
gangaþurrki. Því getur samlíf pars
á tíma brjóstagjafarinnar verið
misjafnt þar sem fleiri áhrifavald-
ar teljast til, ásamt því að hugsa um
lítið barn. Ég legg því til að þú ræðir
þetta við hana. Hjá sumum konum
lekur brjóstamjólk við kynferðis-
lega örvun og það gæti verið örv-
andi fyrir ykkur bæði, ef hún er til
í að stunda kynlíf með þér. Eins og
ég segi, þetta er krefjandi tímabil
fyrir móðurina svo endilega sýndu
henni smá aukaskammt af þolin-
mæði og stuðning en umfram allt,
talið saman. Gangi ykkur vel.
Brjóstagjöf og samlífi
Gunnar Örn Sigurðsson hefur und-
anfarin ár kennt á námskeiði í gítar-
smíði á vegum Tækniskóla Íslands.
Hann telur að hátt í eitt hundrað
manns séu búnir að smíða sinn eigin
rafmagnsgítar hér á landi.
„Þetta hefur aldrei verið gert
áður á Íslandi. Þetta er vel falið
leyndarmál,“ segir Gunnar Örn.
Hann er þessa dagana að smíða
svokallaðan Flying V-gítar sem
verður boðinn upp til góðgerðamála
á tónlistarhátíðinni Rokk jötnum,
eins og Fréttablaðið greindi frá í
síðustu viku.
Gunnar Örn byrjaði með nám-
skeiðið árið 2007 og hefur það haldið
áfram á hverju ári síðan. „Hún er
ótrúleg á þessu litla landi, þessi
gífur lega aðsókn,“ segir Gunnar,
sem byrjar með nýtt námskeið 23.
september.
Hægt er að smíða þrjár tegundir
af gíturum og kostar námið um 170
þúsund krónur. „Inni í því eru spýt-
urnar, lakkið, teinninn í gegnum
hálsinn og hnetan sem strengirnir
falla í. Það eina sem menn þurfa að
kaupa er „pick-up“ og „hardware“.“
Aðspurður segir Gunnar Örn að
alls konar fólk hafi stundað námið.
„Þetta eru áhugamenn um gítara
og atvinnutónlistarmenn hafa verið
líka eins og Beggi Morthens og
Þorleifur Guðjónsson.“
Aðeins ein kona hefur látið sjá
sig á námskeiðinu og kom hún árið
2007. „Það væri gaman að sjá fleiri
konur.“ freyr@frettabladid.is
Hundrað hafa smíðað
eigin rafmagnsgítar
Gunnar Örn Sigurðsson kennir á námskeiði í gítarsmíði við Tækniskóla Íslands.
GÍTARSMIÐUR Gunnar Örn Sigurðsson hefur undanfarin ár kennt á námskeiði í gítarsmíði á vegum Tækniskóla Íslands.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
KYNLÍF TAKTU ÞÁTT!
Sendu Siggu Dögg póst og
segðu henni frá vanda máli
úr bólinu. Lausnin gæti
birst í Fréttablaðinu.
kynlif@frettabladid.is
BRJÓSTAGJÖF Brjóstagjöf getur verið
þreytandi og krefjandi fyrir mæður.
NORDICPHTOS/GETTY
Góður svefn er nauðsynlegur
fyrir nám og minni. Illa sofin
erum við líklegri til þess að
borða óhollari fæðu sem gefur
okkur skyndiorku. Það er margt
sem við getum gert til þess að
bæta svefninn. Hér koma þrjú
mikilvæg atriði sem hafa ber í
huga.
1. Regla á svefntíma. Mikil-
vægt er að fara að sofa á svip-
uðum tíma og vakna á svipuðum
tíma. Þessi regla gildir einnig á
frídögum.
2. Forðumst daglúra. Það er
mikilvægt að dotta ekki yfir
daginn svo við náum að sofna á
réttum tíma á kvöldin.
3. Minnka stress þegar kemur
að háttatíma. Aðdragandi svefns
ætti að vera rólegur og ávallt
með svipuðum hætti. Til dæmis
er áreiti frá ljósi eða tölvu ekki
hentugt stuttu fyrir svefninn.
Góður svefn skerpir
minni og bætir heilsu
Það er mikilvægt að viðhalda góðum svefnvenjum.
REGLULEGUR SVEFN MIKILVÆGUR Þegar við sofum endurnýja frumur sig sem eru
nauðsynlegar fyrir nám og minni. NORDICPHOTOS/GETTY
Tölvufyrirtækið Apple kynnti á
dögunum tvo nýja snjallsíma sem
bætast nú við símaúrval fyrir-
tækisins. Símarnir heita iPhone
5s og iPhone 5c. „Það er erfitt að
segja hvenær sendingin lendir hér
á landi en iPhone er fluttur eftir
óhefðbundnum leiðum hingað til
lands því Ísland er ekki opinbert
sölusvæði iPhone,“ segir Sigurður
Helgi Ellertsson, starfsmaður í
versluninni Macland.
Sigurður segir fólk sækja í
iPhone vegna þess hve traustur
hann er og stýrikerfið einfalt.
IPhone 5s er fyrsti snjallsíminn
sem kemur á markað með tveggja
kjarna, 64 bita örgjörva sem lík-
ist helst tölvuörgjörva. „Þetta er
næsta kynslóð af snjallsímum.“
Hinn síminn, iPhone 5c er
ekki ólíkur iPhone 5 hvað varðar
afl og möguleika. „Hann verður
fáan legur í ýmsum litum og mun
eflaust verða vinsæll sökum
fagurs útlits,“ bætir Sigurður við.
Snjallsímanotkun Íslendinga
hefur aukist mikið á síðustu árum
og munu þessir nýju símar vafa-
laust vekja mikla lukku þegar þeir
lenda hér á landi.
- glp
Ný kynslóð frá Apple
Tvær nýjar iPhone-afurðir væntanlegar til landsins.
LITADÝRÐ FRÁ APPLE Nýi iPhone 5c er algjört augnakonfekt. NORDICPHOTOS/GETTY
– Lifið heil
15%
Nicorette
afsláttur af
Nicorette innsogslyfi og
Nicorette QuickMist munnholsúða
www.lyfja.is
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/L
Y
F
6
54
16
0
8/
13
Gildir út september
Lægra
verð
í Lyfju
Á hverju sumri er vinsælt að fara
út og tína vallhumal sem er vinsæl
lækningajurt og gjarnan notaður í
te, smyrsl eða seyði. Á fyrri tímum
var jurtin mikið notuð til þess að
stöðva blæðingar, þar sem efni í
henni örva blóðstorknun.
Vallhumallinn er einnig talinn
vera góður fyrir konur og hefur
verið notaður til þess að minnka
verki og krampa í legi. Konur á
breytingaskeiðinu hafa margar
hrósað honum þar sem hann
virkar vel gegn svitaköstum og
hitakófum. Einnig er algengt að
nota vallhumalinn við flensu, kvefi
og hita.
Vinsæl lækningajurt
Vallhumall er vinsæll meðal kvenna á breytinga-
skeiðinu þar sem hann virkar gegn svitaköstum.
LÆKNINGAJURT Vallhumall er vinsæl
lækningajurt sem er notuð í te, smyrsl
eða seyði.
FRÉTTBLAÐIÐ/STEFÁN