Fréttablaðið - 17.10.2013, Side 12

Fréttablaðið - 17.10.2013, Side 12
17. október 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 12 SKIPULAGSMÁL „Flutningur kirkjunnar á aðra lóð mun bjarga hlutföllum byggðamynsturs hverfisins og að okkar mati koma í veg fyrir skipulagsslys,“ segir stjórn Íbúasamtaka Vest- urbæjar í bréfi þar sem skorað er á skipulags- ráð Reykjavíkur að finna aðra lóð en á Mýrar- götu fyrir rússnesku rétttrúnaðarkirkjuna. Athugasemd íbúasamtakanna er ein margra sem borginni bárust vegna fyrirhugaðrar breytingar á deiliskipulagi svo rússneska rétt- trúnaðarkirkjan geti byggt ríflega eitt þúsund fermetra kirkju með safnaðarheimili á lóð sem borgin úthlutaði. Aðeins fjögur bílastæði fylgja byggingunum. Stjórn íbúasamtakanna kveðst hafa gengið á fund prests kirkjunnar og aðstoð- armanns hans sem sé rússneskur listfræðingur. „Þau segjast því miður ekki geta haft bygg- inguna lægri en sem nemur 22 metrum undir kross þar sem á þeim hvíli sú skylda að virða hefðbundinn stíl og þau hlutföll sem tengj- ast honum. Þau segja að þau geti ekki byggt í öðrum umfangsminni stíl og að turnarnir verði að vera þrír sem tákn fyrir hina heilögu þrenn- ingu,“ útskýrir stjórn íbúasamtakanna, sem kveður Rússana eftir þrjá fundi hins vegar hafa sagst myndu sætta sig við að byggja á annarri lóð ef hún væri í boði – og ef borgin greiddi útlagðan hönnunarkostnað á núverandi lóð. „Lóðin sem þeim hefur verið úthlutað við Nýlendugötu er óheppileg þar sem stíll kirkj- unnar og stærð er í miklu ósamræmi við nær- liggjandi byggð,“ segja íbúasamtökin. „Kirkjan yrði nýtt einkenni og forystumannvirki fyrir Gamla Vesturbæinn, undanþegin öllum höfuð- markmiðum, eins og segir í deilskipulagstillög- unni.“ Nokkrir einstaklingar mótmæla einnig kirkjubyggingunni, segja hana meðal annars of stóra og óttast bílastæðaskort. Mun fleiri, sem bera bæði rússnesk og íslensk nöfn, lýsa hins vegar stuðningi við bygginguna. „Ég álít að kirkjubyggingin, sem stað- sett verður nálægt sjónum og skreytt með miðalda skandinavískum skreytingum og útskurði, verði skrautfjöður fyrir borgina og í samræmi við gamlar íslenskar hefðir,“ segir í 53 samhljóða stuðningsbréfum þar sem útliti kirkjunnar er sagt svipa til bygg- ingar Listasafns Íslands. „Þetta virðist vera gott, friðsælt og trúað fólk en Íslendingar hafa sýnt því dónaskap og lögbrot með því að krafsa á kirkjuna og brjóta útstillingarglugga þeirra um kirkjuhald,“ segir hálfníræð kona sem búið hefur í hverfinu frá því hún fæddist 1928. „Bygging kirkjunnar hefur átt sér langan aðdraganda, meðal annars með helgun reits- ins við hátíðlega athöfn fyrir fáeinum árum og nefndinni þykir ljóst að þetta hús verði til mik- illar prýði,“ segir Samstarfsnefnd kristinna trú- félaga sem ræddi málið í september. gar@frettabladid.is Rússnesk rétttrúnaðarkirkja mætir mótspyrnu í hverfinu Íbúasamtök Vesturbæjar segja rússneska rétttrúnaðarkirkju við Mýrargötu verða of umfangsmikla og vilja hana burt. Samtökin segja söfnuðinn sjálfan tilbúinn að fara annað fáist til þess ný lóð og bætur frá borginni. RÉTTTRÚNAÐ- ARKIRKJA Á NÝLENDU REIT Fyrirhuguð bygging rússnesku rétttrún- aðarkirkjunnar við Nýlendugötu var sýnd um þriðjungi of lág á vef Reykja- víkurborgar. Íbúa- samtök Vesturbæjar gerðu meðfylgjandi mynd sem á að sýna rétt hlutföll. Þetta virðist vera gott, friðsælt og trúað fólk, en Íslendingar hafa sýnt því dónaskap og lögbrot. Þuríður Kristjánsdóttir, íbúi á Öldugötu LÝÐHEILSA „Stefnt er að því að auka ánægju grunnskólabarna og foreldra með matinn með mark- vissari hráefniskaupum og auknu gæðaeftirliti,“ segir í tilkynningu frá mötuneytisþjónustu skóla- og frístundasviðs Reykjavíkur- borgar. Yfir 80 prósent foreldra leik- skólabarna eru ánægð með mat- inn en aðeins rösklega helmingur foreldra grunnskólabarna. Mötu- neytissviðið hyggst safna upp- skriftum sem börnin eru ánægð- ust með og laga þær að ráðum Landlæknis um næringarsam- setningu. - gar Skólamötuneyti aðlaga sig: Ætla að elda uppáhaldsmat SELTJARNARNES Tímamót voru á Seltjarnarnesi í gær þegar fulltrúi Ungmennaráðs sat sinn fyrsta nefndarfund á vegum bæj- arins. „Nýlega samþykkti bærinn að Ungmennaráð Seltjarnar- ness skyldi eiga fulltrúa í öllum stærstu nefndum bæjarins með málfrelsi og tillögurétt. Seltjarn- arnesbær er eitt fárra bæjar- félaga á landinu til að efla þátt- töku ungmenna og hlýða á þeirra sjónarmið í mikilvægum bæjar- málum með þessum hætti,“ segir í tilkynningu frá bænum. Með þessu eigi að auka lýðræði, stuðla að gagnsæjum vinnubrögðum og hvetja til opinna skoðanaskipta. - gar Hvati til skoðanaskipta: Unglingar sitja nefndarfundi UMHVERFISMÁL Veiðifélag Úlfarsár hefur óskað eftir leyfi til að fleyga úr klöpp í Úlf- arsá til að auðvelda göngu lax upp ána. Að því er fram kemur í umsókn Veiðifélags- ins til Reykjavíkurborgar hvílir hverfisvernd borgarinnar á Úlfarsá vestan megin vegna náttúrufars og lífríkis. Austan megin sé svæðið á náttúruminjaskrá hjá Mosfellsbæ. „Undanfarin ár hefur rennsli árinnar verið stýrt með sandpokum til að auðvelda fisk- inum uppgöngu,“ segir veiðifélagið. Með því að fleyga úr klöppum ofan við Sjávarfoss þar sem fiskurinn safnist saman muni „skapast náttúrulegur laxastigi“. Í umsögn kveðst Veiðimálastofnun oft hafa lagt til að uppganga laxa í Úlfarsá yrði auð- velduð. „Líkur eru til að klappir og grynn- ingar í neðsta hluta árinnar torveldi upp- göngu sem leiði til þess að lax leiti upp í ár í nágrenninu,“ segir Veiðimálastofnun. Yfir helmingur veiðinnar úr Úlfarsá komi úr foss- inum. Veiðimálastofnun segir að framkvæmdin ætti að auðvelda fiski að dreifa sér um ána. „Einnig má gera ráð fyrir að veiðiálag minnki og dreifist þar sem fiskar bunkast ekki leng- ur upp í hyl fyrir neðan klapparhaftið.“ - gar Veiðifélag Úlfarsár, með blessun Veiðimálastofnunar, hyggst greiða laxi leið upp á efri svæði árinnar: Fleyga laxastiga í klappir Úlfarsár ÚLFARSÁ Hér sést hvar greiða á fiskinum leið. MYND/VEIÐIFÉLAG ÚLFARSÁR. SKÓLAMÖTUNEYTI Ánægja með matinn er meiri í leikskólum en í grunn- skólum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON SKÓLANEFNDARFUNDUR Ísak Arnar Kolbeinsson sat fund skólanefndar Sel- tjarnarness. MYND/SELTJARNARNESBÆR Skráðu þig á advania.is/win8 Ókeypis örnámskeið Windows 8umum TOK 2014Ný útgáfa af TOK bókhaldskerfinu, TOK 2014 er væntanleg um næstu mánaðarmót þar sem helsta nýjungin er móaka og sending rafrænna reikninga. Af þessu tilefni höldum við morgunverðarfund um nýja virkni í TOK bókhaldskerfinu og hvernig nýta má hana sem best. Í lokin allar Ingrid Kuhlman frá Þekkingarmiðlun um jákvæð og neikvæð samskipti. Staður og stund: Föstudagur 18. október, kl. 8.30-10.00 í höfuðstöðvum Advania, Guðrúnartúni 10. Húsið opnar kl. 8 með ljúffengum morgunverði að hæi hússins. Skráning á advania.is/fundir Spennandi morgunverðarfundur

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.