Fréttablaðið - 17.10.2013, Síða 16

Fréttablaðið - 17.10.2013, Síða 16
17. október 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 16 SAMKVÆMT BÓKSÖLU Í PENNANUM EYMUNDSSON UM LAND ALLT METSÖLULISTI EYMUNDSSON VIKAN 09.10.13 - 15.10.13 1 2Höndin Henning Mankell Árleysi alda Bjarki Karlsson 5 Ég skal gera þig svo hamingju- saman - Anne B. Ragde 6 Heilsubók Jóhönnu Jóhanna Vilhjálmsdóttir 7 Sáttmálinn Jodi Picoult 8 Iceland Small World Sigurgeir Sigurjónsson 10 Minnisbók Mayu Isabel Allende9 Megas - Textar 1966-2011 Magnús Þór Jónsson 4 Maður sem heitir Ove Fredrik Backman 3 Út að hlaupa - Elísabet Margeirs- dóttir / Karen Kjartansdóttir SAMFÉLAG Mannréttindaskrifstofa Reykjavíkurborgar hefur um nokk- urra ára skeið veitt innflytjendum ráðgjöf og upplýsingar um þjónustu Reykjavíkurborgar og var nýlega ákveðið að efla enn frekar þjón- ustuna og bjóða upp á ráðgjöf í Borg- arbókasafninu. „Fólk er oft mjög örvæntingarfullt og leitar til okkar því það veit ekki hvert það á að snúa sér í kerfinu,“ segir Edda Ólafsdóttir, sérfræðing- ur innflytjendamála hjá Mannrétt- indaskrifstofu Reykjavíkurborgar. „Hér er veitt alhliða ráðgjöf og tilsögn, til dæmis við að skilja bréf og launaseðla og hreinlega fá skiln- ing á kerfinu. Það eru svo margir sem vita ekki hvernig samfélagið er uppbyggt og finnst gott að fá tæki- færi til að tala tungumálið sitt við samlanda sinn. Fólk kemur líka oft frá löndum þar sem velferðar- þjónusta er af skornum skammti og þekkir hreinlega ekki réttindi sín,“ segir Edda. Fjórir ráðgjafar sem tala sex tungumál starfa við þjónustuna. Þeir eru allir innflytjendur sem hafa aðlagast íslensku samfélagi vel og tala góða íslensku. -ebg Það eru svo margir sem vita ekki hvernig samfélagið er uppbyggt … Edda Ólafsdóttir sérfræðingur inn- flytjendamála VIÐSKIPTI Að óbreyttu er afar ólík- legt að áætlanir sem settar eru fram um aukna bílasölu í greinar- gerð með fjár- lögum nái fram að ganga. Þetta er mat Jóns Trausta Ólafs- son, formanns Bílgreinasam- bandsins. „Auðvitað finnst okkur frábært í Bíl- greinasamband- inu að gert sé ráð fyrir aukinni bílasölu,“ segir Jón Trausti. „Það eru hins vegar ákveðnir gallar á vörugjöldunum eins og þau eru í dag sem við vilj- um lagfæra.“ Í tilkynningu sem Bílgreina- sambandið sendi frá sér í gær er bent á að í fjárlögunum sem kynnt voru í byrjun mánaðarins sé gert ráð fyrir því að bílasala á næsta ári skili þjóðarbúinu fimm millj- örðum króna í vörugjöldum. Gert sé ráð fyrir því að bílasala aukist um sex prósent á árinu 2014 og að seldar verði um 9.500 bifreiðar. Bílgreinasambandið hefur síð- ustu misseri lagt áherslu á að yngja þurfi upp bílaflota lands- manna, en hann er orðinn með þeim elstu í Evrópu. Meðal raka er að nýrri bílar séu bæði eyðslu- grennri og öruggari. „Ég finn fyrir því að gríðarlega margir eru komnir í þá stöðu að þurfa að fara að endurnýja bíla sína,“ segir Jón Trausti. Það sem skorti sé festa í vörugjöldum og skattlagningu og vissa varðandi aðra þætti í efnahagslífinu, svo sem um gjaldeyrismál. „Óvissan fær neytendur til þess að hinkra við.“ Bílgreinasambandið segir að lækka þurfi tolla á pallbíla sem notaðir séu í atvinnustarfsemi og á stærri jeppa sem oft á tíðum séu nauðsynlegir vegna búsetu fólks. Þá þurfi að hætta tilfærslum sem plagað hafi bílaleigur. „Bílaleigurnar hafa verið stærsti kaupandinn á markaðnum og skilað góðum bílum aftur inn á markaðinn sem notuðum, sem aftur hefur auðveldað fólki að skipta,“ segir Jón Trausti. Að auki þurfi þær stöðugleika líkt og aðrir, ekki breytingar sem gerðar hafi verið með mjög skömmum fyrir- vörum síðustu ár. „Við viljum að menn vinni með það að markmiði að auka tekjurn- ar fyrir ríkissjóð, en á sama tíma að laga augljósa ágalla á kerfinu,“ segir Jón Trausti. „Við köllum í rauninni bara eftir samráði við þá sem stjórna ríkisfjármálum um það hvernig styrkja megi kerfið.“ olikr@frettabladid.is JÓN TRAUSTI ÓLAFSSON BÍLAR Á SÖLU Bílafloti landsmanna hefur elst síðustu ár á meðan fólk og fyrirtæki hafa haldið að sér höndum í bílakaupum. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Efast um forsendur fyrir meiri bílasölu Bílgreinasambandið segir breytinga þörf eigi áætlanir ríkisins um aukna bílasölu á næsta ári að ganga eftir. Í fjárlögum er gert ráð fyrir fimm milljarða króna tekjum ríkisins vegna vörugjalda af bílum. Stöðugleika vantar og hvata til kaupa. 9.500 Fjárlögin 2014 gera ráð fyrir að bílasala aukist um sex prósent frá þessu ári og seldir verði um 9.500 bílar. Ráðgjafarþjónusta innflytjenda býður upp á ráðgjöf í Borgarbókasafninu: Leita ráðgjafar í örvæntingu NOREGUR Ný stjórn Hægri flokks- ins og Framfaraflokksins er tekin við í Noregi. Leiðtogar flokkanna, þær Erna Solberg og Siv Jensen, kynntu ráðherra stjórnarinnar í morgun. „Allir þessir ráðherrar hafa lofað að gera sitt besta fyrir Noreg næstu fjögur árin og það munum við gera,“ sagði Solberg eftir að hún hafði lesið upp nöfnin á ráð- herrunum, sem eru átján talsins. Solberg, sem er leiðtogi Hægri flokksins, verður forsætisráðherra og Jensen, sem er leiðtogi Fram- faraflokksins, verður fjármálaráð- herra. Utanríkisráðherra er Børge Brende úr Hægri flokknum. Kynjahlutföll nýju stjórnarinn- ar eru jöfn: níu konur og níu karl- ar eru ráðherrar. Hægri flokkur- inn fær hins vegar 11 ráðherra en Framfaraflokkurinn sjö. Stjórnin verður minnihluta- stjórn en nýtur stuðnings tveggja annarra hægri flokka: Venstre og Kristilega þjóðarflokksins. Fyrr í gærmorgun hafði Jens Stoltenberg beðist lausnar fyrir fráfarandi ríkisstjórn sína. - gb Ný minnihlutastjórn Hægri flokksins og Framfaraflokksins kynnt í Noregi: Solberg og Jensen teknar við NÝJA RÍKISSTJÓRNIN Siv Jensen og Erna Solberg ásamt öðrum ráðherrum stjórnar- innar. NORDICPHOTOS/AFP

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.