Fréttablaðið - 17.10.2013, Page 20

Fréttablaðið - 17.10.2013, Page 20
17. október 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR NEYTENDUR | 20 Evrópusambandið, ESB, hyggst banna fimm stærstu sameind- ir parabenefna, þ.e. rotvarnar- efna, í snyrtivörum. Framleið- endur hafa ekki a f hent Ev r - ópusamband- inu gögn sem sýna fram á að þessar tegundir séu öruggar til notkunar og þar sem þær geta mögulega rask- að hormóna- starfsemi verða þær bannaðar. Evrópsk reglugerð um snyrti- vörur tók gildi hér á landi í júlí síðastliðnum. Banninu mun þess vegna verða fylgt eftir hér á landi þegar reglugerðin verður uppfærð. Í fréttatilkynningu til danskra fjölmiðla fagnar umhverfisráð- herra Danmerkur, Ida Auken, banninu. Hún segir það góð tíð- indi að þessi efni verði bönn- uð þannig að ekki verði lengur hægt að nota þau við framleiðslu snyrtivara eins og krems, sjampós og farða. Umhverfis- ráðherrann lýsir yfir sérstakri ánægju með að bannið eigi að ná til allra tegunda snyrti- vara þannig að það verndi allan almenning og þá ekki síst börn og barnshafandi konur. Bergþóra Skúladóttir, teym- isstjóri efnateymis Umhverfis- stofnunar, segir Dani hafa beitt sér mjög í þessum málum. Þeir hafi sjálfir sett bann við ákveðn- um parabenum fyrir tveimur árum. „Þessi ákvörðun ESB er góðar fréttir. Þegar bannið tekur gildi hjá ESB mun það gilda á Íslandi líka.“ - ibs ESB bannar para- ben í snyrtivörum Framleiðendur hafa ekki sýnt fram á að fimm paraben séu örugg til notkunar. Fyrirhugað bann góðar fréttir, segir teymisstjóri hjá Umhverfisstofnun. Áhyggjuefni er hversu litla yfirsýn neyt- endur virðast hafa yfir eigin síma- og netnotkun. Þetta kemur fram í umfjöllun Neytenda- samtakanna, en þeim berst töluvert af fyrirspurnum og kvörtunum frá neytend- um sem telja fjarskipta- fyrirtæki ekki tilkynna með réttum hætti um gjaldskrár- breytingar. „Þannig er nokkuð um að hækkanir fjarskipta- fyrirtækjanna komi neytendum í opna skjöldu,“ segir á vef samtakanna. Könnun þeirra leiðir hins vegar í ljós að löglega sé staðið að slíkum tilkynn- ingum hjá fjarskiptafyrirtækjunum með mánaðarfyrirvara í samræmi við fjarskiptalög. „Neytendasamtökin hvetja neytendur til að skoða símareikninga sína reglulega og fylgjast með verðhækkunum,“ segir á vefnum og um leið bent á reiknivél Póst- og fjarskiptastofnunar með samanburði á símakostnaði milli fyrirtækja (reiknivél. is). „Einnig er hægt að skoða gjaldskrár allra fyrirtækja 12 mánuði aftur í tímann á heimasíðu Póst- og fjarskiptastofnunar, pfs.is/neytendur.“ - óká Fólk fylgist illa með síma- og netnotkun Á vef Umhverfisstofnunar segir að paraben séu flokkur efna sem séu m.a. notuð sem rotvarnarefni í snyrti- og hreinsivörum fyrir bæði börn og full- orðna. Um er að ræða að minnsta kosti sex mismunandi sameindir sem eru misstórar og bera nöfnin metýl-, etýl-, própýl-, bútýl-, ísóprópýl- og ísóbútýlparaben. Rannsóknir á dýrum hafa sýnt að paraben raska hormóna starfsemi og að áhrifin aukast með stærð sameindarinnar. Í dag er leyfilegur heildarstyrkur parabena í snyrtivörum háður takmörkunum. Svansvottaðar snyrtivörur innihalda ekki paraben. Árið 2011 voru própýl-, bútýl-, ísóprópýl- og ísóbútýlparaben og sölt þeirra bönnuð í Danmörku í vörum fyrir börn, þriggja ára og yngri. Evrópusambandið hefur nú ákveðið að banna stærstu sameindir parabena, það er ísópropýlparaben, ísóbútýlparaben, penýlparaben, benzýlparaben og pentýlparaben, í snyrtivörum. ➜ Hvað eru paraben og hver eru bönnuð? Fjórða hvert tilfelli snyrtivöruofnæmis er af völdum svitalyktareyðis. Þetta eru niðurstöður rannsókna vísindamanna við Gentofte Hospital í Danmörku. Á vef danska ríkisútvarpsins er haft eftir prófessornum Jeanne Duus Johansen að efni í svitalyktareyði komist auðveldlega inn í líkamann, sérstaklega ef sár myndast við rakstur. Konur eiga frekar á hættu að fá ofnæmi af svitalyktareyði þar sem það eru einkum þær sem raka sig undir höndunum. Einkennin geta verði útbrot, roði, bólga, kláði og lítil sár. ➜ Svitalyktareyðir mikill ofnæmisvaldur „Tvennt kemur upp í hugann sem bestu kaupin, annars vegar sænska Fjällräven-herúlpan sem ég keypti 1997 og minn fyrsti og eini bíll sem ég keypti notaðan árið 2006 eða 2007. Hvort tveggja nota ég enn og hef sama sem ekkert þurft að viðhalda þessum dýrgripum, fyrir utan rennilás eða tvo og bremsuklossa hér og rafgeymi þar. Bíllinn er silfurlitur Toyota Rav4, ýmist kallaður Rumsfeld eða Forstjórinn,“ segir Stefán Máni Sigþórsson rithöfundur. „Verstu kaupum reynir maður að gleyma jafnóðum en eitt sinn keypti ég til dæmis rosaflottan mótorhjólaleðurjakka í London sem var svo bara allt í einu of lítill þegar ég kom heim, mjög svekkjandi. Svo keypti ég einu sinni hlutabréf í undradrengjafyrirtækinu Oz. Þeim tókst að galdra allt hlutafé í eigin vasa og leggja svo loftkastalann niður.“ Stefán Máni segist hafa lært af reynslunni og búi að því í framtíðinni. „Ég er búinn að læra tvennt, það er að sjá í gegnum hinn svokallaða frjálsa markað og máta leðurjakka betur áður en ég kaupi þá.“ NEYTANDINN Stefán Máni Hefur lært að máta jakka betur Erlendar vörur eru plastmerktar í 94 prósentum tilfella en íslenskar vörur aðeins í 64 prósentum tilfella. Þetta leiddi könnun í ljós sem Umhverfis- stofnun gerði á plastmerkingum um- búða mat- og hreinlætisvara í völdum verslunum á höfuðborgarsvæðinu í sumar. Allar plastumbúðir eiga að bera merki sem tilgreinir plasttegund um- búðar. Sú merking er nauðsynleg fyrir skilvirka flokkun og endurvinnslu. Vakti það sérstaka athygli að umbúðir utan um niðursneidd sam- lokubrauð voru í engum tilfellum merktar. Mjólkurvörur voru í flestum tilfellum merktar eða í 95 prósent tilfella. Vantar plastmerkingar á brauðið ➜ Svona eru gjaldskrár- breytingar kynntar VANDA ÞARF VALIÐ Þeir sem ekki vilja hafa varasöm efni í snyrtivörum sínum þurfa að skoða vel innihaldslýs- ingar við kaup á þeim. BERGÞÓRA SKÚLADÓTTIR HRINGDU tilkynning send með tölvupósti og birt á heimasíðu. NOVA tilkynning send með tölvupósti og birt á heimasíðu. SÍMINN tilkynning birt á símareikningi og á heimasíðu. TAL VODAFONE tilkynning birt á símareikningi, í heima- banka og á heimasíðu. BÆJARLIND 16 - KÓPAVOGUR - SÍMI 553 7100 - WWW.LINAN.IS OPIÐ MÁNUDAGA TIL FÖSTUDAGA 12 - 18 LAUGARDAGA 11 - 16 BREYTIST Í RÚM Á AUGABRAGÐI EXTRA ÞYKK OG GÓÐ SPRINGDÝNA SV EFNBREIDD 1 140X200 CM RÚMFATAGEYMS LA SUPREME Deluxe TILBOÐ KR. 149.900 KR. 135.900 KR. 179.900 Debonair Upend áður kr. 169.800 Svefnbreidd 130x200 Þykk og góð springdýna Svefnbreidd 140x190 Þykk og góð springdýna tilkynning birt á síma- reikningi og á heima- síðu. (Einnig hægt að fá kynningar í tölvupósti.)

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.