Fréttablaðið - 17.10.2013, Page 22

Fréttablaðið - 17.10.2013, Page 22
17. október 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR VIÐSKIPTI | 22 „Hér á landi er fólki refsað fyrir að reka fyrirtæki sín skynsamlega og á heiðarlegan hátt,“ segir Frið- rik Skúlason, fyrrverandi eigandi hugbúnaðarfyrirtækisins Frisk Software. Friðrik neyddist að eigin sögn til að selja fyrirtækið á síðasta ári vegna auðlegðarskatts stjórnvalda. Á þeim tíma var fyrirtækið að hans sögn skuldlaust og nokkurra hundraða milljóna króna virði. Þar sem Friðrik og eiginkona hans, Björg M. Ólafsdóttir, áttu nánast öll hlutabréf í fyrirtækinu voru þau skilgreind sem eigendur stórr- ar eignar og rukkuð um auðlegðar- skatt út frá eigin fé fyrirtækisins. „Einu tekjurnar sem við höfð- um af eigninni voru launin okkar því við vildum ekki greiða okkur út arð heldur nota hann til að byggja fyrirtækið upp. Á sama tíma vorum við rukkuð um svo háan auðlegðarskatt að við höfð- um engin laun í fjóra mánuði á ári. Okkur var því refsað fyrir að vilja nota arðinn af eigninni til að byggja hana upp,“ segir Friðrik. Fyrirtækið er í dag í eigu erlendra aðila og heitir nú Commtouch Iceland ehf. Eftir söl- una voru nokkrar deildir innan þess lagðar niður eða fluttar úr landi og við það misstu um 20 manns vinnuna. Allur framtíðarhagnaður af sölu á vörum fyrirtækisins, sem sérhæfir sig í að þróa forrit til að finna tölvuveirur og annan óæski- legan hugbúnað, verður nú eftir í útlöndum og skilar ekki leng- ur gjaldeyri inn í landið. Á þeim árum sem fyrirtækið starfaði að öllu leyti á Íslandi skilaði það að sögn Friðriks nokkrum milljörð- um króna í erlendum gjaldeyri til landsins. „Áður en ég tók ákvörðum um að selja fyrirtækið hafði ég nokkra valkosti í stöðunni. Ég gat skuld- sett fyrirtækið til að borga mér hærri laun svo ég gæti borgað auð- legðarskattinn. Ég gat einnig hætt að láta arðinn fara inn í fyrirtækið og farið að reka fólk og skera niður til að geta borgað sjálfum mér arð til að eiga fyrir skattinum. Á end- anum var einfaldast að selja fyrir- tækið,“ segir Friðrik. Gjaldeyrishöftin eru oft nefnd sem ein aðalástæðan fyrir því að íslensk tæknifyrirtæki geti ekki nálgast nauðsynlegt fjármagn til að vaxa og dafna. Friðrik segir að höftin hafi ekki spilað inn í ákvörðun hans. „Við vorum ekki að leitast eftir fjármagni heldur rákum fyrirtæk- ið á eigin fé. Við rákum það eins og litla gula hænan gerði hlutina, ein og óstudd. En litla gula hænan virðist ekki vera vel liðin á Íslandi og því var það eina sem ég gat gert að fara leið hennar og segja, ég tek þá bara brauðið mitt og borða það sjálfur,“ segir Friðrik. Hann nefnir ýmsar aðrar ástæð- ur þess að hann er ekki bjart- sýnn á þróun tæknigeirans hér á landi. Friðrik nefnir sem dæmi að íslenska menntakerfið skili ekki þeim fjölda tæknimenntaðra ein- staklinga sem atvinnulífið þarf á að halda. „Mín ráðlegging til þeirra sem eru í sömu sporum og ég var árið 1987, þegar ég lagði grunninn að stofnun fyrirtækisins, er að byrja á því að flytja fyrirtækin úr landi. Ísland er of fjandsamlegt tæknifyr- irtækjum til að það sé nokkuð vit í að vera hérna.“ haraldur@frettabladid.is Þurfti að selja vegna skatta Friðrik Skúlason seldi hugbúnaðarfyrirtækið Frisk Software úr landi í fyrra. Aðalástæðan fyrir sölunni var að hans sögn auðlegðarskattur stjórnvalda. Framtíðarhagnaður af sölu á vörum fyrirtækisins verður nú eftir í útlöndum. Friðrik er ekki bjartsýnn á þróun tæknigeirans og segir Ísland vera fjandsamlegt tæknifyrirtækjum. Síminn hefur samið við Farice um að tryggja netsamband Símans við umheiminn til ársloka 2019. Síminn fær með samningnum margfalda band- breidd úr landi á við það sem nú er, að sögn Sævars Freys Þráinssonar, for- stjóra Símans. Hann segir að samningurinn tryggi bandbreidd um þrjá sæstrengi, Farice-1 og Danice-strengina til Evrópu, auk Greenland Connect-strengsins til Norð- ur-Ameríku. „Síminn hefur átt í farsælu viðskiptasambandi við Farice um árabil og með þessum samningi styrkjum við enn frekar samband okkar við umheim- inn,“ er eftir honum haft í tilkynningu Símans. Með samningnum nái Síminn markmiðum sínum um gæði og öryggi gagnatenginga við útlönd. „Auk þess sem Síminn hefur nú góðan sveigjan- leika til að bregðast við hraðri þróun á fjarskiptamarkaði.“ Eftir Ómari Benediktssyni, forstjóra Farice, er haft að Síminn hafi lengi verið einn af helstu samstarfsaðilum félagsins og í upphafi einn af bakhjörl- um þess. - óká Nýr samningur Símans við Farice um gagnatengingu við útlönd gildir til ársloka 2019: Margfalda bandbreiddina frá því sem nú er Matsfyrirtækið Reitun hefur breytt horfum í lánshæfismati Orkuveitu Reykjavíkur úr stöð- ugum í jákvæðar. Í tilkynningu Orkuveitunnar segir að helsta ástæða jákvæðs mats nú séu hversu vel hefur geng- ið að fylgja eftir Planinu, aðgerða- áætlun Orkuveitunnar og eigenda. Heildareinkunn Reitunar er áfram B+ og kemur fram að Orku- veitan þurfi að styrkja lausafjár- stöðu sína, draga úr markaðs- áhættu og borga niður skuldir. Gangi það eftir má búast við að lánshæfismat Orkuveitunnar batni. - jjk Lánshæfismati breytt: Segja horfur OR jákvæðar Farsímafyrirtækið Alterna býður nú, fyrst allra íslenskra farsíma- félaga, upp á ótakmarkaðar mín- útur og SMS óháð kerfi. „Þetta þýðir að fólk getur hringt án þess að hafa áhyggjur af inn- eign eða kostnaði á hverja mínútu í öll símkerfi á landinu,“ segir í til- kynningu fyrirtækisins. Nýjungin er sögð brjóta upp „mjög einsleitt vöruframboð“ fyrirtækjanna sem eru á markaði í dag. „Við mætum full tilhlökkunar til leiks“ er haft eftir Magnúsi Árni Gunnarssyni, markaðsstjóra Alterna, sem boðar „raunveru- lega“ samkeppni. - óká Alterna hefur innreið sína: Boða raunveru- lega samkeppni NEYDDUR TIL AÐ SELJA Friðrik segir að sér hafi verið refsað fyrir að nota arð af fyrirtæki sínu til að byggja það upp. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR Hugbúnaðarfyrirtækið Frisk Software var formlega stofnað í júní 1993 en starfsemi þess hófst í raun árið 1987. Fyrirtækið lagði áherslu á að framleiða vörur sem tryggja og bæta tölvuöryggi. Þar á meðal var vírusvarnarforritið Lykla-Pétur, sem var fáanlegt frá árinu 1989, og var þá eitt af fyrstu vírusvarnar- forritunum til að koma á markað í heiminum. Forritið var meðal annars selt til fyrirtækja, háskóla, opinberra stofnana og heimilisnotenda, bæði hér innanlands og víða um heim. Þróaði Lykla-Pétur SKRIFAÐ UNDIR Ómar Benedikts- son, forstjóri Farice, og Sævar Freyr Þráinsson, for- stjóri Símans, ganga frá samningi. MYND/SÍMINN HÖFUÐSTÖÐVAR OR Lánshæfismat Orkuveitunnar fer úr stöðugu í jákvætt. FRÉTTABLAÐIÐ/RÓBERT SNJALLSÍMAR Alterna býður farsíma- notendum ótakmarkaða notkun fyrir fast gjald. Byggðastofnun tilkynnti í gær að stofnunin ætlaði að bjóða við- skiptavinum sínum upp á óverð- tryggð lán. Vextir á lánunum verða með 3,5 prósenta álagi ofan á milli- bankavexti (REIBOR). „Við höfum eingöngu veitt verð- tryggð lán frá árinu 2008 og fyrir þann tíma vorum við með erlend lán. Þessi ákvörðun eykur því vöruúrvalið hjá okkur,“ segir Elín Gróa Karlsdóttir, forstöðumaður fyrirtækjasviðs Byggðastofnunar. Spurð hvort óverðtryggðu lánin komi til með að draga úr kostnaði hjá lántakendum segir Elín að lán- unum fylgi hærri greiðslubyrði til að byrja með en að þau henti betur í lægri fjárhæðir og í styttri láns- tíma. „Með þessu erum við ekki að fara í samkeppni við bankana. En bankarnir hafa veitt þessi lán og þetta er leið til að verða við óskum okkar viðskiptavina á landsbyggð- inni,“ segir Elín. -hg Nýr valkostur fyrir lántakendur á landsbyggðinni: Byggðastofnun býður óverðtryggð lán BYGGÐASTOFNUN Höfuðstöðvar stofnunarinnar eru á Sauðárkróki. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR Lampasnúrur í ótrúlegu úrvali Silkisnúrur í úrvali, 17 mismundandi litir. Hannaðu þín eigin ljós, eða frískaðu upp á gömlu ljósin. Frábært efni á góðu verði. Komdu og sjáðu réttu handbrögðin Glóey raftækjaverslun býður viðskiptavinum sínum á örnámskeið eftir almennan opnunartíma í verslunina laugardaginn 19. október kl. 15-17. Hentugt fyrir þá sem vilja læra réttu handbrögðin við að tengja algengan búnað svo sem klær og ljósastæði. Leiðbeinendur námskeiðsins eru starfsmenn verslunarinnar og er að kostnaðarlausu en þátttakendur eru beðnir að skrá sig á netfangið verslun@gloey.is eða á facebook www. facebook.com/gloeyehf

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.