Fréttablaðið - 17.10.2013, Side 32
17. október 2013 FIMMTUDAGUR| TÍMAMÓT | 32TÍMAMÓT
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@365.is.
„Hátíðin er glæsileg og snýst öll um
kórsöng enda er hann þjóðaríþrótt
Íslendinga. Þetta er fjölmennasti við-
burður í Eldborg sem verið hefur frá
upphafi,“ segir Margrét Bóasdóttir,
söngkona og kórstjóri, um feiknamik-
inn samsöng í Hörpu 19. og 20. október.
Tilefnið er að 75 ár eru liðin frá því
fimm blandaðir kórar stofnuðu lands-
samband. Einn þeirra fimm kóra er enn
starfandi, það er Sunnukórinn á Ísa-
firði og hann mun að sjálfsögðu mæta.
Hörpusöngur nefnist dagskráin á
laugardag sem stendur frá klukkan 13
til 17. Þá verða 25 tónleikar á ýmsum
stöðum í húsinu, í Norðurljósasalnum,
í Hörpuhorni, á stóra pallinum fram-
an við Eldborg og á jarðhæðinni við
Norðurbryggju. „Fólk verður í söng-
vímu allan þann dag því dagskráin er
fjölbreytt og öll ókeypis,“ lýsir Mar-
grét.
Hátíðartónleikarnir í Eldborg á
sunnudaginn eru þó hápunkturinn, að
sögn Margrétar. Þá sameinast þátttak-
endur, hátt í níu hundruð söngvarar, í
blandaðri dagskrá. Þar verður byrjað
á að syngja þjóðsönginn og svo verða
tekin fimm þekkt kóralög, eins og
Maístjarnan, Heyr himnasmiður og
fleiri sem eru sameign þjóðarinnar. „Í
efnisskránni verða nótur og við ætlum
að fá alla tónleikagesti í Hörpu til að
syngja með okkur þannig að þetta
verður þjóðkór. Þá verða þetta ekki
níu hundruð heldur 2.100 sem syngja
saman ef allir taka undir,“ segir Mar-
grét kampakát. Hún segir þó ekki
verða um neinn rútubílasöng að ræða
heldur verði hver og einn að kunna
kóraröddina sína en að öðrum kosti
syngja í hjartanu og njóta stundar-
innar. Samið var nýtt hátíðarlag sem
frumflutt verður við þetta tilefni.
Það er eftir Hreiðar Inga Þorsteins-
son. „Hreiðar Ingi er ungt tónskáld
og kórum hefur þótt skemmtilegt að
syngja verk hans,“ segir Margrét.
„Þetta lag er við ljóð eftir Ingibjörgu
Haraldsdóttur og heitir Upphaf.“
Átta stærstu kórarnir munu syngja
tvö lög hver um sig en síðan lýkur
dagskránni á litríkum þáttum úr
messu eftir sænska tónskáldið Robert
Sund sem stjórnar flutningnum. „Þetta
er messa með dálitlu djassívafi þannig
að það verður fútt í hátíðinni í lokin.
Sund er líka einn þekktasti kórstjóri
allra Norðurlandanna og er vanur að
stjórna mörg þúsund manns á stórum
Evrópusöngmótum, svo það verður
væntanlega ekkert mál fyrir hann að
hafa vald yfir 900 Íslendingum.“
Nánari upplýsingar eru á nýrri vef-
síðu landssambandsins, lbk.is.
gun@frettabladid.is
Fjölmennasti viðburður
í Eldborg frá upphafi
Um níu hundruð manns koma syngjandi fram í Hörpu á kórahátíð um næstu helgi,
19. og 20. október. Einnig mega gestir taka undir. Hátíðin er í tilefni sjötíu og fi mm
ára afmælis Landsasmbands blandaðra kóra. Margrét Bóasdóttir er verkefnisstjóri.
VERKEFNISSTJÓRI KÓRAHÁTÍÐARINNAR „Við ætlum að fá alla tónleikagesti í Hörpu til að syngja
með okkur, þannig að þetta verður þjóðkór,“ segir Margrét Bóasdóttir söngkona. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Söngleikurinn Hárið eftir James Rado, Gerome
Ragni og Galt MacDermot var frumsýndur
þennan dag í Biltmore-leikhúsinu á Broadway á
í New York. Hann var innblásinn af hippamenn-
ingu og kynlífsbyltingu sjöunda áratugarins sem
endurspeglaðist meðal annars í textum sem
mæla gegn Víetnamstríðinu og hefja fíkniefni
upp til skýjanna.
Hann naut strax hylli gesta og var sýndur árum
saman á Broadway. Síðan hefur hann verið settur
upp um allan heim og notið gríðarlega vinsælda.
Lögin úr söngleiknum hafa lifað góðu lífi. Meðal
annars hafa tvö þeirra, Aquarius og Let the Sun-
shine in, unnið til Grammy-verðlauna.
Árið 1979 var framleidd kvikmynd byggð á
söngleiknum. Henni leikstýrði Milos Forman.
ÞETTA GERÐIST: 17. OKTÓBER 1967
Söngleikurinn Hárið var frumsýndur
Ástkær móðir okkar,
GUÐRÚN JÓNSDÓTTIR
(LILLA)
frá Fáskrúðsfirði,
verður jarðsungin frá Fáskrúðsfjarðarkirkju
laugardaginn 19. október klukkan 14.00.
Jóna Bára, Sara, Svanhvít,
Ölver og Guðmundur Jakobsbörn.
Ástkær móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
GUNNHILDUR VIKTORSDÓTTIR
frá Ólafsfirði,
andaðist á dvalar- og hjúkrunarheimilinu
Grund aðfaranótt mánudagsins 14. október.
Útför hennar fer fram frá Bústaðakirkju
þriðjudaginn 22. október klukkan 15.00.
Marteinn Elí Geirsson Hugrún Pétursdóttir
Agnes Geirsdóttir Guðjón Guðmundsson
Helga M. Geirsdóttir Valdimar Bergsson
Þorvaldur Geir Geirsson Ólöf Ingimundardóttir
Guðrún Geirsdóttir Steinar Birgisson
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
KRISTINN NILS ÞÓRHALLSSON
Löngumýri 20, Garðabæ,
lést á krabbameinsdeild Landspítalans
11. október 2013. Jarðarförin fer fram
frá Vídalínskirkju í Garðabæ fimmtudaginn 24. október kl. 15.00.
Jórunn Óskarsdóttir
Örn Kristinsson Geirlaug Ingibergsdóttir
Elín Ýr Arnardóttir Hlynur Arnarson
Snorri Freyr
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug við andlát og útför okkar ástkæru
móður, tengdamóður, ömmu og systur,
ARNÞRÚÐAR STEFÁNSDÓTTUR
sjúkraliða, Strikinu 8.
Sérstakar þakkir viljum við færa Friðbirni
Sigurðssyni krabbameinslækni og starfsfólki
krabbameinsdeildar, Heimahlynningar og líknardeildar LSH fyrir
þeirra góða starf. Einnig viljum við þakka öllum þeim er minntust
hennar.
Arna Valdís Kristjánsdóttir Vilberg Kristinn Kjartansson
Stella Kristjánsdóttir
Lilja Kristjánsdóttir
Jóhanna Kristín Gísladóttir Jana Björk Ingadóttir
barnabörn og systkini.
Elskulegur eiginmaður minn og faðir okkar,
SIGURÐUR GUÐMUNDSSON
fyrrverandi starfsmaður Flugleiða,
Brávallagötu 50, Reykjavík,
lést á sjúkrahúsi á Spáni sunnudaginn
13. október. Jarðarförin verður auglýst síðar.
Hrefna Björnsdóttir
Guðmundur Sigurðsson
Hjördís Sigurðardóttir
og aðrir aðstandendur.
Elskulegur eiginmaður minn,
faðir okkar, tengdafaðir og afi,
ÁRNI PÉTUR BJÖRGVINSSON
sjóntækjafræðingur,
Kjalarsíðu 14b, Akureyri,
sem lést aðfaranótt þriðjudagsins 8. október
verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju föstudaginn 18. október
kl. 13.30. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Heimahlynningu
á Akureyri og Krabbameinsfélag Akureyrar.
Laufey Vilhjálmsdóttir
Vilhjálmur Árnason
Þorgerður Helga Árnadóttir Ingi Rafn Ingason
Sævar Már Árnason Gunnhildur Helgadóttir
Helga Laufey Ingadóttir, Jökull Sævarsson, Myrra Ísis
Sævarsdóttir og Valgerður Árný Ingadóttir.
Ástkær eiginmaður minn,
faðir, tengdafaðir, afi og langafi,
INGIMAR ELÍASSON
lést á Landspítalanum í Fossvogi
14. október. Hann verður jarðsunginn
frá Fella- og Hólakirkju 25. október kl. 13.00.
Ásta Vigdís Bjarnadóttir
Eyrún Ingimarsdóttir
Elías Jakob Ingimarsson
Ástmar Ingimarsson
Ingi Vífill Ingimarsson
tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn,
faðir okkar, tengdafaðir og afi,
JÓN RÚNAR GUNNARSSON
samanburðarmálfræðingur,
sem lést 9. október, verður kvaddur frá
Neskirkju föstudaginn 18. október kl. 11.00.
Margrét Jónsdóttir
Þóra Jónsdóttir Sveinbjörn Gröndal
Bergljót Jónsdóttir Arnaldur Sigurðsson
Ásgrímur Karl Gröndal
Ástkær sambýliskona mín, móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
KARÍTAS ANNA ÞÓRÐARDÓTTIR
Grundargötu 70, Grundarfirði,
lést á St. Franciskusspítalanum í
Stykkishólmi, sunnudaginn 13. október.
Útför hennar fer fram frá Ólafsvíkurkirkju
laugardaginn 19. október kl. 14.00.
Guðjón Elísson
Atli Már Hafsteinsson Unnur Edda Garðarsdóttir
Árni Þórarinsson
Anna Dís Þórarinsdóttir Narfi Jónsson
Kristján Guðjónsson
og barnabörn.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
ÞORSTEINN BJARNASON
bátsmaður,
Fornhaga 17, Reykjavík,
lést á heimili sínu laugardaginn 12. október.
Útförin fer fram frá Neskirkju föstudaginn
18. október kl. 15.00. Þeim sem vilja
minnast hans er bent á Krabbameinsfélagið.
Guðrún G. Sæmundsdóttir
Sæmundur E. Þorsteinsson Svana Helen Björnsdóttir
Jón Viðar Þorsteinsson Þórunn Harðardóttir
Rakel Guðrún Óladóttir Sólveig Níelsdóttir
Björn Orri, Sigurður Finnbogi og Þorsteinn Sæmundssynir
Þorsteinn Jakob og Guðmunda Jónsbörn