Fréttablaðið - 17.10.2013, Blaðsíða 39
KYNNING − AUGLÝSING Vetrardekk17. OKTÓBER 2013 FIMMTUDAGUR 3
NÝTT DEKKJ
AVERKSTÆÐ
I
Goodyear gæðadekk
færðu hjá okkur
UltraGrip 8UltraGrip Ice+ UltraGrip 8 Performance Ultragrip Ice Arctic
SilentArmor
PARTNER
Hjá Kletti fæst mikið úrval nýrra dekkja undir fólks-bíla, jeppa, vörubifreiðar og
vinnuvélar. Fyrirtækið er til húsa
að Klettagörðum 8-10. Nýlega var
svo opnað útibú að Suðurhrauni 2b
í Garðarbæ.
Þjónusta allar gerðir bíla
„Við þjónustum alla bíla; allt frá
minnstu gerðum upp í stærstu
tæki. Við bjóðum bæði nagladekk
og óneglanleg vetrardekk sem eru
yfirleitt brúkuð sem heilsársdekk.
Goodyear er okkar stærsta merki
en auk þess bjóðum við undirmerki
eins og Sava og Fulda ásamt því að
vera með Minerva-dekk frá Asíu,“
segja sölumennirnir Eggert Bjarki
Eggertsson og Halldór Jóhannsson.
Þeir segja nagladekkin hafa yfir-
höndina í öllum stærðarflokkum og
að töluvert sé þegar orðið að gera
þó svo að miðað sé við að setja þau
ekki undir fyrr en 1. nóvember.
„Víða um land er komin hálka. Ef
fólk er að keyra á nóttunni eða úti á
landi vega aðstæður þyngra en þessi
viðmið. Við slíkar aðstæður er ekk-
ert sem kemur í staðinn fyrir nagla-
dekkin.“ Þeir segja mikinn áróður
gegn nagladekkjum en hafa sjálf-
ir ekki séð rannsókn sem styður að
þau slíti götunum meira en önnur.
„Ef fólki líður betur á nöglum og
finnur til meira öryggis mælum við
hiklaust með þeim.“ Á þetta að sögn
þeirra Eggerts og Halldórs bæði við
um fólksbílaeigendur og ökumenn
stærri bifreiða.
Nýjung frá Goodyear
Goodyear setti nýtt nagladekk á
markað í fyrra sem þykir gríðar-
lega öruggt og fæst nú undir flestar
gerðir fólksbíla. „Naglarnir eru ekki
hringlaga eins og almennt þekkist
heldur þríhyrningslaga sem gefur
enn betra viðnám. Þeir eru stefnu-
virkir, snúa allir eins og hjálpa til
við að beygja og bremsa. Áður voru
þrjár til fjórar raðir af nöglum á
hverju dekki en á þessum dekkj-
um eru þær 28 og ná alveg inn að
miðju. Þeir ökumenn sem prufuðu
þessi dekk í fyrra hafa lýst mikilli
ánægju með þau.“
Vel nýtt dekkjahótel
En hvað má gera ráð fyrir að dekk-
in endist lengi? „Það er líka afar
breytilegt. Augljóslega skiptir akst-
urslag og aðstæður miklu máli en
svo spilar loftþrýstingur, jafnvægi
og hjólastilling líka inn í. Kíló-
metrafjöldinn er þó sterkasta við-
miðið en yfirleitt er talað um að
fólksbíladekk dugi 40 til 60 þúsund
kílómetra. Þegar fólk kemur í skipti
leggjum við mat á dekkin sem við
tökum undan og látum vita hvort
þau komi til með að duga áfram
eður ei. Ef þau eru nothæf bjóðum
við fólki að geyma aukaumganginn
á dekkjahótelinu okkar. Það kemur
sér meðal annars vel fyrir fólk sem
hefur ekki aðgang að geymslu,“
segja þeir en gjaldið er frá 3.500
krónum fyrir tímabilið.
Engar tímapantanir
Þeir Eggert og Halldór segja yfireitt
ekki þurfa að panta tíma í skipti.
„Þegar mesti kúfurinn er tökum við
stundum upp þannig kerfi en alla
jafna er bara að renna við. Við erum
með netteng-
inu á kaff i-
stofunni og
heitt á könn-
unni svo fólk
ætti að geta látið
fara vel um sig á meðan.“
Mælum hiklaust með nöglum
Klettur býður dekk undir allar gerðir bíla. Sölumenn fyrirtækisins segja flesta velja nagladekk enda kemur fátt í staðinn fyrir þau í
hálku og snjó. Goodyear er stærsta merki Kletts en framleiðandinn setti glænýtt nagladekk á markað í fyrra sem ánægja ríkir með.
Ultragrip Ice Arctic er nýjung frá Goodyear. Nagl-
arnir eru þríhyrningslaga og gefa mjög gott viðnám.
Nýlega opnaði Klettur útibú að Suðurhrauni 2b. Þeir Halldór og
Eggert taka vel á móti fólki en Klettur þjónustar allar gerðir bíla.
MYND//PJETUR