Fréttablaðið - 17.10.2013, Page 56

Fréttablaðið - 17.10.2013, Page 56
17. október 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 40 „Ísafoldarbrass er svar við eftir- spurn eftir virkri brassgrúppu á klassísku tónlistarsenunni,“ segir Ari Hróðmarsson básúnuleikari, sem er stjórnandi hljómsveitar- innar Ísafoldarbrass. „Við erum nokkrir strákar sem erum tiltölu- lega nýbúnir að ljúka námi á brass- hljóðfæri sem langaði að spila saman og flytja brasstónlist sem er ekki mikið flutt á Íslandi.“ Meðlimir Ísafoldarbrass eru auk Ara trompetleikarinn Vilhjálmur Ingi Sigurðsson, Óðinn Melsteð á trompet, Guðmundur Andri Ólafs- son á horn, Carlos Caro Aguilera á básúnu og Nimrod Ron á túbu. Á fyrstu tónleikum hljómsveit- arinnar er litið til íslenskra tón- verka fyrir brass eftir tónskáldin Pál Pampichler Pálsson, Úlfar Inga Haraldsson og Guðnýju Valborgu Guðmundsdóttur í bland við útsetn- ingar Össurar Geirssonar á völdum íslenskum dægurlögum. Tónleikarnir eru eins og áður segir næstkomandi föstudag klukk- an 12 í Háteigskirkju. Hljómsveitin hefur þegar bókað aðra tónleika í kirkjunni í nóvember og að sögn Ara er hér ekki um stundarfyrirbæri að ræða heldur hljómsveit sem er komin til að vera. - fsb Svar við eft irspurn eft ir brassgrúppu sem spilar klassík Ísafoldarbrass er ný íslensk brasshljómsveit sem kemur fram í fyrsta sinn í Háteigskirkju á föstudaginn. Meðlimir hennar eru nýútskrifaðir úr tónlistarnámi. ÍSAFOLDARBRASS Hljómsveitin er skipuð sex ungum tónlistarmönnum sem nýlega útskrifuðust úr námi á brasshljóðfæri. Ást Hjörleifs á Helgu Arnar- dóttur, systur Ingólfs landnáms- manns, varð til þess að þeir fóst- bræður fóru frá Noregi í leit að nýjum tækifærum. Því má segja að Ísland hafi byggst af ást, ef frásögn Landnámabókar er trúað. Þetta bendir Gunnar Karlsson á í nýrri bók sinni Ástarsögu Íslend- inga – að fornu – sem nýkomin er út á vegum Forlagsins. Þar fjallar hann um ástir Íslendinga á tíma- bilinu 870-1300. Hvað skyldi hafa komið honum til að einbeita huga sínum að því efni? „Það fór að renna upp fyrir mér þegar ég var við kennslu í Háskól- anum að tilfinningar væru van- metnar í sagnfræði yfirleitt. Að of lítið væri fjallað um gildi þess að njóta tilfinninga sinna í saman- burði við það sem er skrifað um völd og auð,“ svarar hann og held- ur áfram: „Smátt og smátt fór ég að lesa mig inn í fræði um eðli og sögu tilfinninga. Þar talaði ég um tilfinningarétt og var þar að reyna að búa til nýtt, fræðilegt hugtak. Eftir að ég hætti að kenna sneri ég mér svo að því að búa til bók um sögu ástarinnar á fyrsta skeiði Íslandssögunnar.“ Gunnar telur mikinn misbrest á því að fólk til forna hafi búið við tilfinningarétt, einkum rétt til að njóta ástar. Þar hafi kaþólska mið- aldakirkjan, sem taldi kynlíf synd- samlegt, umfram það sem nauð- syn krefði til viðhalds stofninum, haft sín áhrif. Margt bendi til að ásatrúin hafi verið heldur frjáls- legri hvað þetta varðar, þó hömlur hafi verið miklar. „Ég segi stundum að mesta framför sögunnar sé sú að við höfum fengið aukinn rétt til að njóta ástar en minni rétt til að fá útrás fyrir reiði okkar. Ef maður varð ósáttur við annan mann að fornu þá drap hann hann, en nú erum við langflest hætt því og langar ekki einu sinni til þess. Þannig hefur orðið til ástarréttur og hefndaróréttur.“ Um samkynhneigð kveðst Gunnar hafa grafið upp vís- bendingar í sögunum og nefn- ir tvo karla. Annar þeirra er Guðmundur ríki á Möðruvöllum í Eyjafirði. „Guðmundur var gift- ur og eitt sinn var nefnt við konu hans í veislu að hann væri ekki alls kostar snjall, þar var átt við kynhneigð,“ segir Gunnar. „Þetta var afskaplega mikið áfall fyrir konuna. Hún varð bara veik og hvarf úr veislunni án þess að njóta veitinganna.“ En hvað með hjónaskilnaði? Þekktust þeir til forna? „Já. Þeir voru þó eitt af því sem kirkjan bannaði en sífelldar undanþágur voru veittar frá því banni. „Auð- vitað voru skilnaðir mjög sjald- gæfir miðað við nútímann, en þeir eru líka sérkenni á okkar auðugu vestrænu samfélögum. Alveg fram á 20. öld voru þeir fátíðir alls staðar.“ Þótt hjón skildu sjaldan á fyrstu öldum byggðar segir Gunnar frillulíf hafa verið mikið. „Karlmenn gátu verið mjög taumlausir og leyfðu sér mikið en til kvenna voru gerðar mun strangari kröfur.“ gun@frettabladid.is Telur tilfi nningar vanmetnar í sagnfræði Hver var réttur Íslendinga til að elska, á fyrstu öldum byggðar í landinu? Það kryfur Gunnar Karlsson sagnfræðingur í bókinni Ástarsaga Íslendinga að fornu. SAGNFRÆÐINGURINN „Ég segi stundum að mesta framför sögunnar sé sú að við höfum fengið aukinn rétt til að njóta ástar en minni rétt til að fá útrás fyrir reiði okkar,“ segir Gunnar. FRÉTTABLAÐIÐ/GVASYKURLAUST STREPSILS með jarðaberjabragði Við eymslum og ertingu í hálsi! - nú sykurlaust og með jarðaberjabragði Strepsils Jordbær Sukkerfri munnsogstöflur. Inniheldur: 2,4-tvíklóróbensýlalkóhól 1,2 mg, amýlmetakresól 0,6 mg. Ábendingar: Eymsli og erting í hálsi. Skammtar og lyfjagjöf: Fullorðnir og börn 6 ára og eldri: 1 munnsogstafla er látin leysast hægt upp í munni á 2-3 klst. fresti. Frábendingar: Ofnæmi fyrir virku efnunum eða einhverju hjálparefnanna. Varnaðarorð og varúðarreglur: Ekki nota stærri skammt en ráðlagður er. Sjúklingurinn skal leita læknis ef hann er í vafa eða ef einkenni lagast ekki eða versna innan nokkurra daga. Lyfið inniheldur ísómalt og maltitól sem geta haft væg hægðalosandi áhrif. Sjúklingar með arfgengt frúktósaóþol, sem er mjög sjaldgæft, skulu ekki taka lyfið. Lesið leiðbeiningar á umbúðum og í fylgiseðli fyrir notkun. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá. Markaðsleyfishafi: Reckitt Benckiser Healthcare A/S. Umboð á Íslandi: Artasan ehf., Suðurhrauni 12a, 210 Garðabæ. 20 13 R B 00 2 St re ps ils

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.