Fréttablaðið


Fréttablaðið - 19.10.2013, Qupperneq 12

Fréttablaðið - 19.10.2013, Qupperneq 12
19. október 2013 LAUGARDAGURSKOÐUN FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRI: Andri Ólafsson andri@frettabladid.is HELGAREFNI: Kjartan Guðmundsson kjartan@frettabladid.is MENNING: Friðrika Benónýsdóttir fridrikab@frettabladid.is DÆGURMÁL: Sara McMahon sara@frettabladid.is VÍSIR: Kristján Hjálmarsson, kristjan@visir.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚTLITSHÖNNUN: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald RITSTJÓRAR: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is, Mikael Torfason mikael@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 SPOTTIÐ AF KÖGUNARHÓLI ÞORSTEINS PÁLSSONAR Þeir fréttatímar eru fáir um þessar mundir sem ekki greina frá óánægju einstakra starfsgreina í heilbrigðiskerfinu og alveg sér- staklega á Landspítalanum. Fyrir fáum dögum lýstu læknanem- ar því að þeir sæju framtíð sína utan veggja spítalans og væntan- lega utan landsteinanna. Umræður af þessu tagi hafa risið og fallið í gegnum tíðina eins og úthafsaldan. Það liggur í eðli slíkrar starfsemi að hiti tilfinn- inganna verður aldrei einangr- aður þegar um hana er fjallað. En hvað sem því líður dylst fæst- um að aldan brotnar nú af meiri þunga en áður. L andspít- alinn er ekki aðeins mikil- væg stofnun. Hann er einn af hornsteinum samfélagsins. Þó að syrt hafi í álinn fyrr er rétt að spítalinn stendur á tíma- mótum. Enginn þarf að efast um að almennur vilji er til þess að reka hér spítala sem stenst sam- anburð við það sem best gerist í grannlöndunum. Sú samstaða sem varð á Alþingi um málefni Landspít- alans við fjárlagaumræðuna á dögunum staðfestir að um þetta markmið er ekki pólitískur ágreiningur. Í einu hljóði lofuðu þingmenn ríkisstjórnarinnar jafnt sem stjórnarandstöðunnar þremur milljörðum króna til við- bótar því sem ráðgert er í frum- varpinu. En kálið er ekki sopið þótt í ausuna sé komið. Tímamótin sem spítalinn stendur á snúast nefnilega ekki einasta um vilj- ann. Þau lúta ekki síður að hinu sem er miklu snúnara efni. Það er spurningin um getuna til að breyta vilja í veruleika og tryggja samkeppnishæfni Landspítalans. Samkeppnishæfni Landspítalans og landsins Einfalda svarið sem flestir þingmenn gáfu í þessari umræðu var: Breytum for- gangsröðinni. Það er gott og bless- að en segir ekki mikla sögu. Það má gera með því að skera önnur viðfangsefni samfélagsins meira niður eða með því að leggja hærri skatta á alla eða einhvern tak- markaðan hóp skattgreiðenda. Hvor leiðin sem farin verður til að breyta forgangsröðinni á eftir að reynast þingmönnum þyngri þraut en ræðurnar þegar viljinn var látinn í ljós. Þar kemur tvennt til. Í fyrsta lagi rekast þeir á önnur loforð sem þá þarf að svíkja. Í öðru lagi má fastlega reikna með að tekjur ríkissjóðs verði minni en reiknað er með í frumvarpinu fyrir þá sök að tekjur þjóðarbúsins verða væntanlega rýrari á næsta ári en áður var áætlað. Breytt forgangsröðun til lengri tíma en eins árs er borin von nema með umfangsmikilli kerfisbreyt- ingu í ríkisrekstrinum. Helsta kerfisbreytingin sem munar um er uppstokkun á framleiðslu- styrkjum í landbúnaði. Hún yrði neytendum hins vegar býsna erfið nema opnað yrði fyrir innflutning samtímis. Flest bendir til að þær sakir standi nú með sama hætti og á síðasta kjörtímabili: Hagsmunir landbúnaðarkerfisins eru sterkari en tilfinningarnar til heilbrigðis- kerfisins. Haldbesta ráðið til að jafna samkeppnisstöðu Landspítal- ans er að jafna samkeppnisstöðu landsins við grannlöndin. Vand- inn er sá að það dregur í sundur með Íslandi og þeim. Í umræðun- um á Alþingi benti fjármálaráð- herra réttilega á að mestu skipti að stuðla að meiri hagvexti. Það er einfaldlega ekki hægt að horfa fram hjá þeirri staðreynd að rót lélegrar samkeppnishæfni Land- spítalans liggur í ónógum hag- vexti og vísirinn að varanlegri lausn liggur að sama skapi í auk- inni verðmætasköpun. Forgangsröðun eða vöxtur Áhyggjuefni er að ekki skyldu fleiri ræða þessa hlið máls-ins við þetta tækifæri. Það er áhyggjuefni vegna þess að póli- tísk yfirborðsgæska dugar Land- spítalanum skammt þegar horft er lengra fram á veginn og markið er sett hærra en að tjalda til einnar nætur. Spítalinn er ekki eyland og verður ekki slitinn úr samhengi við gangverkið í þjóðarbúskapnum. Atgervisflótti ógnar fleiri svið- um samfélagsins. Því má ekki gleyma. Kjarni málsins er sá að ein af forsendum þess að bæta megi samkeppnishæfni landsins er að tryggja atvinnulífinu mynt sem er gjaldgeng í viðskiptum utan land- steinanna. Krónur sem hafa ekki meira gildi á erlendum markaði en inneignarnóta í Bónus duga ekki. Dugi þær ekki atvinnulífinu duga þær ekki Landspítalanum heldur. Þeir sem eru hlutlausir í deilun- um um markmið og leiðir í þeim efnum eru einnig hlutlausir í bar- áttunni fyrir varanlegum undir- stöðum Landspítalans. Þar með er ekki sagt að allir starfsmenn heilbrigðiskerfisins þurfi að hella sér í pólitík ofan á annað. En það eiga allir að vera meðvitaðir um að tímamótin sem Landspítalinn stendur á kalla á stærri ákvarðan- ir en þær sem árlega ráðast eftir þrýstihópalögmálinu í fjárlaga- nefnd Alþingis. Haldi Ísland áfram að dragast aftur úr grannþjóðunum í Evrópu fylgir Landspítalinn með eins og nótt fylgir degi. Því hjóli þarf að snúa við. Yfi rborðsgæska dugar skammt S íðustu áratugi höfum við lagt talsvert fjármagn og orku í forsendur þess að þjónusta í grunnskólum landsins megi verða sem best. Að því er virðist með sáralitlum árangri. Kennaranámið er nú fimm ára háskólanám og lýkur með meistaragráðu. Fyrir fimmtán árum þurfti þriggja ára nám til að öðlast kennararéttindi og allstór hluti starfandi kenn- ara var án réttinda. Í dag heyrir þetta til undantekninga og þótt nemendum í grunnskóla hafi fækkað lítillega (um 45 sé miðað við árið í fyrra) hefur kennurum fjölgað um tuttugu prósent. Fyrir fimmtán árum voru grunnskólakennarar á Íslandi 3.726 samkvæmt tölum Hagstofu Íslands. Samkvæmt nýjustu taln- ingu Hagstofunnar eru kenn- arar orðnir 4.492. Sem merkir að fyrir fimmtán árum voru 11,4 nemendur á hvern kennara en þeir eru í dag 9,5. Þetta kemur ekki á óvart þegar rýnt er í kostnað við grunnskólana en okkar grunnskóli er einn sá dýrasti í heimi, samkvæmt mælingum OECD. Samt hljótum við öll að vera sammála um að kennarar eru ekki ofaldir á launum sínum og í raun kæmi engu okkar á óvart þótt hér myndi fljótlega allt loga í kjaradeilum og verkföllum kennara – það vofir yfir. Hvar stendur hnífurinn í kúnni? Krakkarnir okkar standast illa samanburð við jafnaldra þeirra í löndum sem við viljum helst bera okkur saman við. Brottfall framhaldsskólanema hér á landi er með því hæsta sem þekkist í hinum vestræna heimi. Það tekur íslenska krakka fjórtán ár að komast í háskóla en í öllum þeim löndum sem við viljum miða okkur við tekur það tólf og þrettán ár. Jón Gnarr borgarstjóri sagði á dögunum í sjónvarpsþættinum Stóru málunum að honum þætti þessi málaflokkur margslunginn og erfiður. Hann er æðsti yfirmaður skólamála í stærsta sveitar- félagi landsins. Hann sagðist hafa einbeitt sér að eineltismálum fremur en því að skólakerfið í heild væri að þróast til góðs. Auðvitað er mikilvægt að einbeita sér að eineltismálum en spurning hvort það sé forgangsatriði þegar litið er til þess að góðu heilli hefur náðst ágætur árangur í þeirri baráttu á undan- förnum árum. Þökk sé aukinni umræðu, framtaki manna á borði við Stefán Karl Stefánsson leikara og þátttöku skólanna sjálfra í að móta aðgerðir gegn einelti. Jón Gnarr er ekki brautryðjandi í þeim efnum. Það blasir við að huga þarf að grundvallaratriðum. Ótækt er að við séum með of marga kennara á alltof lágum launum í einum dýrasta grunnskóla í heimi. Hér hlýtur að þurfa kjark. Jón Gnarr upplýsti í áðurnefndum þætti að hann væri brennd- ur af sársaukafullum og erfiðum sameiningum í skólakerfinu sem skiluðu litlu. Jón hefur líklega í þessu hitt naglann á höfuðið. Meinið á rót sína í því að fólk – kennarar og foreldrar – á erfitt með breytingar. Sem dæmi má nefna að alltaf þegar sá möguleiki hefur verið nefndur að skólaárið sé lengt, enda miðast það við horfna hætti; þá að sveitir landsins þurfi á ungviðinu að halda í réttir og sauðburð – þá hafa slíkar hugmyndir strandað á því að kennarar hafa tekið þeim afar illa og bent á að langt sumarfrí sé liður í kjarasamningum þeirra. Vel má vera að svo sé en fyrir liggur að erfiðir og krefjandi tímar eru fram undan hjá þeim stjórnmálamönnum sem hafa dug og þor til að laga einn dýrasta og óskilvirkasta grunnskóla í heimi. Kennurum hefur fjölgað um 20% á 15 árum: Vonlaus skóli Mikael Torfason mikael@frettabladid.is REYKJAVÍK AKUREYRI EGILSSTAÐIR KEFLAVÍK SELFOSS HAFNARFJÖRÐUR HEIMILISTÖLVA CM H4.3 SILENCIO Intel Core i3 örgjörvi, 8GB vinnsluminni og risastór 2TB harður diskur. Intel HD 4400 skjástýring. Sérstaklega hljóðeinangraður CoolerMaster kassi og Realtek High De nition 7.1 Surround hljóðkort. Frábær kaup fyrir heimilið. 109.990 TILBOÐSVER Ð FULLT VERÐ 11 9.990
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.