Fréttablaðið - 19.10.2013, Side 22

Fréttablaðið - 19.10.2013, Side 22
19. október 2013 LAUGARDAGUR| HELGIN | 22 EINS OG ÉG ER Vigdís segist ekki óttast það að þykja klikkuð þrátt fyrir að hafa upplýst um tvískipta persónuleikann. „Eru ekki allir öðruvísi?“ spyr hún. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR eins og ég er, hvernig á ég að vera eitthvað annað?“ söng Páll Óskar um árið og það á ekkert bara við um samkynhneigða. Við erum öll eins og við erum og getum ekki annað.“ Hver er Elskhuginn? Bókin er sett upp sem bréf Dísu og Gríms til Elskhugans – með stórum staf. Ég hef mínar hug- myndir um hvað hann táknar en vilt þú upplýsa lesendur um það? „Nei. Það er búið að liggja í mér að segja hver þetta sé en það verð- ur fólk nú að finna út fyrir sjálft sig. Hann persónugerir í rauninni bara þessa endalausu höfnun sem maður upplifir, hvort sem hún er raunveruleg eða ekki. Hann er ekki alltaf neitt sérstaklega gæfu- legur, þessi blessaði elskhugi, hann lætur Gríms alveg heyra það óþvegið. Og það er svo erfitt að heyra sannleikann, sérstaklega þegar hann kemur frá einhverjum sem maður elskar þegar maður þráir ekkert heitar en öðlast við- urkenningu hans og ást.“ Einn stimpillinn sem á þig hefur verið settur er að þú sért samkyn- hneigð. Ertu það? „Mér finnst samkynhneigð nú dálítið fallegt orð, öfugt við misnotkun, en ég held að allt fólk sé tvíkynhneigt í eðli sínu. Það elski bara mann- eskjur, ekki kyn. Ég er allavega þannig, þótt ég verði svo sem ekk- ert sérlega ástfangin af einum né neinum og vilji mest vera ein. En kynið skiptir allavega ekki nokkru máli. Ást er alltaf af hinu góða og hver fyrir henni verður er algjört aukaatriði.“ Þessi elskhugi stendur sem sagt ekki fyrr neinn ákveðinn karl – eða konu? „Sýnist þér það? Ég er í smá sjokki yfir að einu sinni enn virðist það sem ég skrifa vera svo óljóst að fólk misskilur það. Ég hélt að hver og einn gæti auðveldlega reiknað það út hvert hlutverk Elsk- hugans er í sögunni, svona getur maður nú verið vitlaus. Ef lesend- ur vilja endilega hanga í þeirri hugmynd að ég sé að skrifa um einhvern einn karl sem hafi farið illa með mig, þá er voðalega lítið sem ég get gert í því. Nema auð- vitað bölvað sjálfri mér, eða Dísu öllu heldur, fyrir að koma þessu svona illa frá sér.“ Ástarsagan í bókinni fjallar sem sé ekki um stóru ástina í lífi þínu? „Jú, á vissan hátt gerir hún það nefnilega, en ég get ekki sagt á hvern hátt hún gerir það nema ljóstra of miklu upp um söguna.“ Viltu þá ekki segja mér hver stóra ástin er? „Það er kannski ljótt að segja það en auðvitað þykir manni vænna um bækurnar sínar en nokkuð annað í heiminum. Það er bara þannig og það þýðir ekki að maður sjái ekki gallana á þeim. Það er enn einn plúsinn við að vera tvær manneskjur. Dísa hefur svo sannarlega oft rakkað niður það sem Gríms hefur skrifað og ekk- ert verið að skafa utan af því, eins og reyndar kemur fram í bókinni. Það er hollt og gott, þótt það svíði kannski á meðan. Ég held að það sé öllum höfundum hollt að temja sér óvægna sjálfsgagnrýni og margir þeirra mættu svo sannarlega gera meira af því.“ Ekki handhafi sannleikans Elskhuginn yfirgefur Gríms og Dísu fyrir þrettán árum, hvað gerð- ist þá? „Ég veit það ekki, kannski týndi ég bara sjálfri mér þá. Sér- staklega eftir að ég fékk heila- himnubólguna 2006 og týndi orða- forðanum, kunni ekki að lesa og þurfti nánast að læra stafina upp á nýtt. Ég þurfti að hafa ansi mikið fyrir því að læra allt aftur og upp- lifunin var að ég væri komin inn í einhvers konar einangrun, pass- aði ekki lengur inn í umhverfið. En þegar ég hugsa til baka átta ég mig á því að ég var nú búin að vera týnd í þó nokkur ár áður en ég fékk heilahimnubólguna.“ Breytti sú upplifun að vera við dauðans dyr sýn þinni á lífið? „Já, hún gerði það. Sérstaklega varð mér ljóst hvað það er mikið húm- búkk að reyna að lifa lífi sínu eins og maður „á“ að gera. Það skipt- ir svo miklu máli að þora að vera maður sjálfur og hætta að þóknast. Og sem rithöfundur þarf maður líka að gera sér grein fyrir því að maður er ekki handhafi sannleik- ans. Það hefur ekkert nýtt verið sagt í heiminum síðan guð má vita hvenær. En hvernig maður splæsir orðunum saman getur þegar best tekst til kannski orðið til þess að maður skapar eitthvað nýtt. Maður á ekki að biðja um meira.“ Hvað skiptir þá mestu máli? „Það eina sem skiptir í rauninni virkilegu máli er að vera góður við börn. Þar liggur allt. Lykill- inn að lífshamingjunni er í barns- hjartanu, það er bara þannig. Ég veit að þetta hljómar bæði væmið og vemmilegt, en svona einfaldur er nú sannleikurinn. Ég vildi að við gætum öll haft það að leiðar- ljósi.“ Ég nötraði líka og ég skalf vegna þeirrar áreynslu sem það var mér að rifja upp misnotkun bernsku minnar í ljótum kofa af vondum kalli og syni hans þetta vonda sumar sem pabbi minn og mamma sigldu burt til útlanda með Rangánni. Það var þá, þegar sársaukinn og dauðinn læstu klónum í mig og Guð hvarf úr lífi mínu í eitt skipti fyrir öll, sem hún svarta, freka og grimma Gríms varð til. Hún stóð þarna allt í einu fyrir framan mig í svörtum fötum, með glóandi augun og hörkulegu andlitsdrættina, og hún var með sverð í hendinni og klút um hárið einsog samúræi og hún sveiflaði sverðinu í kringum sig og sagðist skyldu bjarga mér úr helvítis andskotans málunum og hún skyldi sigra og ég skyldi halda kjafti og bíta á jaxlinn. – Ég er komin til að bjarga þér, Dísa litla Gríms, vegna þess að þá þolir þú sársaukann betur og verður ekki eins hrædd. Horfðu bara á mig á meðan þetta gengur yfir. Kreistu höndina mína fast. Lokaðu svo augunum og hugsaðu um hana mömmu þína sem kemur bráðum heim. Hugsaðu um hana mömmu þína og hvað hún er alltaf góð. Hugsaðu um að þú sjáir hana í bláum heimi þar sem engin ský eru á himninum. Hugsaðu að þú sért blá og kunnir að svífa í himninum við hliðina á mömmu þinni. Ég verð hérna og passa að þú finnir ekki til. Ég bít og klóra fyrir þig af því að þú getur það ekki. Ég berst fyrir þig af því að þú kannt það ekki. Hugsaðu um hvað hún mamma þín er mjúk og hlý og hvað það verður gott að taka utan um hana þegar hún kemur aftur heim. Hugsaðu um þegar hún stendur á bryggjunni við hliðina á honum pabba þínum og þau fara að hlæja þegar þau sjá þig. Hugsaðu um systkini þín og hvað þau eru lítil og góð og hvað það er gott að eiga stað með þeim. Hugsaðu um pabba þinn sem treystir þér og veit hvað þú ert dugleg og sterk stelpa. Hugsaðu um hvað það verður gaman þegar þið verðið aftur öll saman á Kleppsveginum. Hugsaðu, Dísa Gríms, hugsaðu. Það bítur ekkert á þig ef þú hugsar og svífur og leyfir mér að ráða, því þá þolirðu allt á milli him- insins og jarðarinnar af því að þú ert í vondum draumi og bráðum lýkur honum og þá verður allt aftur gott og fallegt og ég fer aldrei frá þér. Ég verð alltaf hjá þér og hugsa fyrir þig. Ég verð alltaf hjá þér og hugsa um þig. Ég verð alltaf hjá þér og geymi þig, sagði Gríms, og ég gerði einsog hún sagði. Bls. 128-129 Brot úr Dísusögu Í fjórða kafla bókarinnar lýsir Dísa nauðguninni og því hvernig Gríms kom henni til bjargar. HEILSÁRSDEKK OG UMFELGUN Vnr. 49980470 HEILSÁRSDEKK 175/65R14 DH 11.990 kr. Vnr. 49980485 HEILSÁRSDEKK 185/65R14 DH 12.990 kr. Vnr. 49980473 HEILSÁRSDEKK 185/65R15 DH 13.990 kr. Vnr. 49980488 HEILSÁRSDEKK 195/65R15 DH 13.990 kr. Vnr. 49980491 HEILSÁRSDEKK 205/55R16 DH 16.990 kr. Vnr. 49980496 HEILSÁRSDEKK 215/65R16 DH 19.990 kr. UMFELGUN Í DEKKJA HÚSINU DALBREKKU KÓPAVOGI Á KR. 4.990 EF ÞÚ KAUPIR DEKK HJÁ BYKO á frábæru verði í BYKO Breidd VERTU KLÁR FYRIR VETURINN facebook.com/BYKO.is w w w .e xp o. is / E XP O au gl ýs in ga st of a Ve rð ve rn d BY KO tr yg gi r þ ér læ gr a ve rð . S já n án ar i u pp lý si ng ar o g sk ilm ál a á w w w .b yk o. is . HIFLY WIN-TURI 212 HEILSÁRSDEKK Save the Children á Íslandi FYRIR AÐSTOÐ INNANLANDS gjofsemgefur.is 9O7 2OO2
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.