Fréttablaðið - 19.10.2013, Síða 22
19. október 2013 LAUGARDAGUR| HELGIN | 22
EINS OG ÉG ER Vigdís segist ekki óttast það að þykja klikkuð þrátt fyrir að hafa upplýst um tvískipta persónuleikann. „Eru ekki
allir öðruvísi?“ spyr hún. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
eins og ég er, hvernig á ég að vera
eitthvað annað?“ söng Páll Óskar
um árið og það á ekkert bara við um
samkynhneigða. Við erum öll eins
og við erum og getum ekki annað.“
Hver er Elskhuginn?
Bókin er sett upp sem bréf Dísu
og Gríms til Elskhugans – með
stórum staf. Ég hef mínar hug-
myndir um hvað hann táknar en
vilt þú upplýsa lesendur um það?
„Nei. Það er búið að liggja í mér
að segja hver þetta sé en það verð-
ur fólk nú að finna út fyrir sjálft
sig. Hann persónugerir í rauninni
bara þessa endalausu höfnun sem
maður upplifir, hvort sem hún er
raunveruleg eða ekki. Hann er
ekki alltaf neitt sérstaklega gæfu-
legur, þessi blessaði elskhugi,
hann lætur Gríms alveg heyra
það óþvegið. Og það er svo erfitt
að heyra sannleikann, sérstaklega
þegar hann kemur frá einhverjum
sem maður elskar þegar maður
þráir ekkert heitar en öðlast við-
urkenningu hans og ást.“
Einn stimpillinn sem á þig hefur
verið settur er að þú sért samkyn-
hneigð. Ertu það? „Mér finnst
samkynhneigð nú dálítið fallegt
orð, öfugt við misnotkun, en ég
held að allt fólk sé tvíkynhneigt
í eðli sínu. Það elski bara mann-
eskjur, ekki kyn. Ég er allavega
þannig, þótt ég verði svo sem ekk-
ert sérlega ástfangin af einum né
neinum og vilji mest vera ein. En
kynið skiptir allavega ekki nokkru
máli. Ást er alltaf af hinu góða og
hver fyrir henni verður er algjört
aukaatriði.“
Þessi elskhugi stendur sem sagt
ekki fyrr neinn ákveðinn karl –
eða konu? „Sýnist þér það? Ég er
í smá sjokki yfir að einu sinni enn
virðist það sem ég skrifa vera svo
óljóst að fólk misskilur það. Ég hélt
að hver og einn gæti auðveldlega
reiknað það út hvert hlutverk Elsk-
hugans er í sögunni, svona getur
maður nú verið vitlaus. Ef lesend-
ur vilja endilega hanga í þeirri
hugmynd að ég sé að skrifa um
einhvern einn karl sem hafi farið
illa með mig, þá er voðalega lítið
sem ég get gert í því. Nema auð-
vitað bölvað sjálfri mér, eða Dísu
öllu heldur, fyrir að koma þessu
svona illa frá sér.“
Ástarsagan í bókinni fjallar
sem sé ekki um stóru ástina í lífi
þínu? „Jú, á vissan hátt gerir hún
það nefnilega, en ég get ekki sagt
á hvern hátt hún gerir það nema
ljóstra of miklu upp um söguna.“
Viltu þá ekki segja mér hver
stóra ástin er? „Það er kannski
ljótt að segja það en auðvitað þykir
manni vænna um bækurnar sínar
en nokkuð annað í heiminum. Það
er bara þannig og það þýðir ekki
að maður sjái ekki gallana á þeim.
Það er enn einn plúsinn við að vera
tvær manneskjur. Dísa hefur svo
sannarlega oft rakkað niður það
sem Gríms hefur skrifað og ekk-
ert verið að skafa utan af því, eins
og reyndar kemur fram í bókinni.
Það er hollt og gott, þótt það svíði
kannski á meðan. Ég held að það sé
öllum höfundum hollt að temja sér
óvægna sjálfsgagnrýni og margir
þeirra mættu svo sannarlega gera
meira af því.“
Ekki handhafi sannleikans
Elskhuginn yfirgefur Gríms og
Dísu fyrir þrettán árum, hvað gerð-
ist þá? „Ég veit það ekki, kannski
týndi ég bara sjálfri mér þá. Sér-
staklega eftir að ég fékk heila-
himnubólguna 2006 og týndi orða-
forðanum, kunni ekki að lesa og
þurfti nánast að læra stafina upp
á nýtt. Ég þurfti að hafa ansi mikið
fyrir því að læra allt aftur og upp-
lifunin var að ég væri komin inn
í einhvers konar einangrun, pass-
aði ekki lengur inn í umhverfið.
En þegar ég hugsa til baka átta
ég mig á því að ég var nú búin að
vera týnd í þó nokkur ár áður en
ég fékk heilahimnubólguna.“
Breytti sú upplifun að vera við
dauðans dyr sýn þinni á lífið? „Já,
hún gerði það. Sérstaklega varð
mér ljóst hvað það er mikið húm-
búkk að reyna að lifa lífi sínu eins
og maður „á“ að gera. Það skipt-
ir svo miklu máli að þora að vera
maður sjálfur og hætta að þóknast.
Og sem rithöfundur þarf maður
líka að gera sér grein fyrir því að
maður er ekki handhafi sannleik-
ans. Það hefur ekkert nýtt verið
sagt í heiminum síðan guð má vita
hvenær. En hvernig maður splæsir
orðunum saman getur þegar best
tekst til kannski orðið til þess að
maður skapar eitthvað nýtt. Maður
á ekki að biðja um meira.“
Hvað skiptir þá mestu máli?
„Það eina sem skiptir í rauninni
virkilegu máli er að vera góður
við börn. Þar liggur allt. Lykill-
inn að lífshamingjunni er í barns-
hjartanu, það er bara þannig. Ég
veit að þetta hljómar bæði væmið
og vemmilegt, en svona einfaldur
er nú sannleikurinn. Ég vildi að
við gætum öll haft það að leiðar-
ljósi.“
Ég nötraði líka og ég skalf vegna þeirrar áreynslu sem
það var mér að rifja upp misnotkun bernsku minnar í
ljótum kofa af vondum kalli og syni hans þetta vonda
sumar sem pabbi minn og mamma sigldu burt til útlanda
með Rangánni.
Það var þá, þegar sársaukinn og dauðinn læstu klónum
í mig og Guð hvarf úr lífi mínu í eitt skipti fyrir öll, sem
hún svarta, freka og grimma Gríms varð til. Hún stóð
þarna allt í einu fyrir framan mig í svörtum fötum, með
glóandi augun og hörkulegu andlitsdrættina, og hún var
með sverð í hendinni og klút um hárið einsog samúræi
og hún sveiflaði sverðinu í kringum sig og sagðist skyldu
bjarga mér úr helvítis andskotans málunum og hún
skyldi sigra og ég skyldi halda kjafti og bíta á jaxlinn.
– Ég er komin til að bjarga þér, Dísa litla Gríms, vegna
þess að þá þolir þú sársaukann betur og verður ekki
eins hrædd. Horfðu bara á mig á meðan þetta gengur
yfir. Kreistu höndina mína fast. Lokaðu svo augunum
og hugsaðu um hana mömmu þína sem kemur bráðum
heim. Hugsaðu um hana mömmu þína og hvað hún er
alltaf góð. Hugsaðu um að þú sjáir hana í bláum heimi
þar sem engin ský eru á himninum. Hugsaðu að þú sért
blá og kunnir að svífa í himninum við hliðina á mömmu
þinni. Ég verð hérna og passa að þú finnir ekki til. Ég bít
og klóra fyrir þig af því að þú getur það ekki.
Ég berst fyrir þig af því að þú kannt það ekki.
Hugsaðu um hvað hún mamma þín er mjúk og hlý og
hvað það verður gott að taka utan um hana þegar hún
kemur aftur heim. Hugsaðu um þegar hún stendur á
bryggjunni við hliðina á honum pabba þínum og þau
fara að hlæja þegar þau sjá þig. Hugsaðu um systkini
þín og hvað þau eru lítil og góð og hvað það er gott
að eiga stað með þeim. Hugsaðu um pabba þinn sem
treystir þér og veit hvað þú ert dugleg og sterk stelpa.
Hugsaðu um hvað það verður gaman þegar þið verðið
aftur öll saman á Kleppsveginum. Hugsaðu, Dísa Gríms,
hugsaðu. Það bítur ekkert á þig ef þú hugsar og svífur
og leyfir mér að ráða, því þá þolirðu allt á milli him-
insins og jarðarinnar af því að þú ert í vondum draumi
og bráðum lýkur honum og þá verður allt aftur gott og
fallegt og ég fer aldrei frá þér. Ég verð alltaf hjá þér og
hugsa fyrir þig. Ég verð alltaf hjá þér og hugsa um þig.
Ég verð alltaf hjá þér og geymi þig, sagði Gríms, og ég
gerði einsog hún sagði. Bls. 128-129
Brot úr Dísusögu
Í fjórða kafla bókarinnar lýsir Dísa nauðguninni og því hvernig Gríms kom henni til bjargar.
HEILSÁRSDEKK
OG UMFELGUN
Vnr. 49980470 HEILSÁRSDEKK 175/65R14 DH 11.990 kr.
Vnr. 49980485 HEILSÁRSDEKK 185/65R14 DH 12.990 kr.
Vnr. 49980473 HEILSÁRSDEKK 185/65R15 DH 13.990 kr.
Vnr. 49980488 HEILSÁRSDEKK 195/65R15 DH 13.990 kr.
Vnr. 49980491 HEILSÁRSDEKK 205/55R16 DH 16.990 kr.
Vnr. 49980496 HEILSÁRSDEKK 215/65R16 DH 19.990 kr.
UMFELGUN Í DEKKJA HÚSINU DALBREKKU KÓPAVOGI
Á KR. 4.990 EF ÞÚ KAUPIR DEKK HJÁ BYKO
á frábæru verði í BYKO Breidd
VERTU KLÁR FYRIR VETURINN
facebook.com/BYKO.is
w
w
w
.e
xp
o.
is
/
E
XP
O
au
gl
ýs
in
ga
st
of
a
Ve
rð
ve
rn
d
BY
KO
tr
yg
gi
r þ
ér
læ
gr
a
ve
rð
. S
já
n
án
ar
i u
pp
lý
si
ng
ar
o
g
sk
ilm
ál
a
á
w
w
w
.b
yk
o.
is
.
HIFLY WIN-TURI 212 HEILSÁRSDEKK
Save the Children á Íslandi
FYRIR
AÐSTOÐ
INNANLANDS
gjofsemgefur.is
9O7 2OO2