Fréttablaðið - 19.10.2013, Page 29
LAUGARDAGUR 19. október 2013 | HELGIN | 29
jákvæðar hliðar þess að flytja raf-
orku um sæstreng og við þurfum
að skoða betur hvaða tekjur þetta
getur skapað fyrir Ísland. Það
verður engin ákvörðun tekin um
sæstreng næstu tvö til þrjú ár en á
þeim tíma viljum við afla upplýs-
inga svo hægt sé að taka upplýsta
ákvörðun um framhaldið,“ segir
Björgvin.
Fyrirtæki og heimili
Björgvin segir að ýmsar efasemd-
ir séu á lofti, t.d. að ótækt sé að
íslenskt rafmagn knýi álver í Bret-
landi. „Það kemur ekki til greina.
Ástæðan er sú að ef strengurinn
bilar, sem er raunverulegur mögu-
leiki, þá getur tekið nokkrar vikur
að gera við hann. Álver þolir orku-
fall í þrjár til fjórar klukkustundir.
Orkufrekur iðnaður sem þarf 100%
trausta grunnorku mun því áfram
koma til Íslands þar sem sæstreng-
ur getur ekki tryggt honum það
afhendingaröryggi sem þarf.“
Nú virðist minni ástæða til að
hafa áhyggjur af stórhækkuðu
orkuverði til heimila. Heitt vatn
kyndir rúmlega 90% heimila á
Íslandi sem er einstakt. Í Noregi
er til dæmis mun stærra hlutfall
með rafkyndingu en íslensk heim-
ili nýta aðeins fimm prósent raf-
orkunnar sem er unnin hérlendis.
Ásgeir Jónsson, lektor í hag-
fræði og efnahagsráðgjafi Gamma,
vann skýrslu um áhrif sæstrengs á
afkomu íslenskra heimila. Niður-
staða hans var að verð til heimila
yrði áfram lágt og jafnvel óbreytt.
Er þar vísað til þess að stjórn-
völdum er í lófa lagið að niður-
greiða rafmagn til þeirra um það
bil níu þúsund heimila sem kynda
með rafmagni. Eins segir Ásgeir
það auðvelt að endurdreifa hagn-
aði orkufyrirtækja til heimila; til
dæmis mætti tryggja óbreytt raf-
orkuverð, lækka skatta eða greiða
þeim út arð í einhverju öðru formi.
Hver borgar?
Ein af stóru spurningunum er
varða raforkustrenginn er hver
stendur undir þessari risafjárfest-
ingu. Stutta svarið hlýtur að vera
að erlendir aðilar verði að koma
með fjármagnið til framkvæmda.
Það er vandséð að Ísland geti stað-
ið undir því eitt og sér. Það hlýt-
ur hins vegar að vera aðalhags-
munamálið að ávinningurinn falli
að sem stærstu leyti Íslendingum
í skaut.
Hagfræðistofnun Háskóla
Íslands bendir á að þó svo sé þurfi
að ráðast í verulegar fjárfestingar
innanlands; í virkjunum, umbreyti-
stöðvum og ekki síst í flutnings-
kerfinu sem þarf mikla yfirhaln-
ingu eigi hugmyndirnar að verða
að veruleika. Pétur Stefánsson,
framkvæmdastjóri UK Trade &
Investment á Íslandi, segir Breta
tilbúna til samstarfs og reiðubúna
til að verja umtalsverðu fé til rann-
sókna.
„Ég veit að langstærsti hluti
þessarar fjárfestingar verð-
ur erlend. Menn vilja samt hafa
íslenska aðkomu að því til þess
að tryggja að hagsmunir Íslend-
inga séu að þetta sé í lagi. Þá má
ímynda sér tryggingu fyrir því
að það sé ekki pólitísk ákvörðun
að skrúfa fyrir rafmagnsflæðið.
Annars staðar er algengt að skipt-
ingin sé 50/50, t.d. þar sem Natio-
nal Grid [breska Landsnet] hefur
tengst Hollandi (TenneT). En
þessi netverk eru mjög sterk fjár-
hagslega og vitað mál að Landsnet
á enga möguleika á að fjárfesta
fyrir 200 milljarða eða þeim mun
meira í helmingaskiptafjármögnun
á sæstreng. Menn gera sér engar
grillur um slíkt. En áður en að
slíku kemur þarf pólitíska ákvörð-
un um framhaldið og þá fyrst fara
menn að tala um fjárfestingar.“
Pétur segir að margir fjárfest-
ar komi til greina. National Grid
kemur til greina, enda risafyrir-
tæki. Það gæti líka verið að Lands-
net og National Grid vildu aðeins
vera rekstraraðilinn en þriðji aðili
kæmi inn með fjármagnið til að
borga framkvæmdirnar.
„Það kemur í ljós ef og þegar
menn bjóða út verkefnið á grunni
þess að það sé hagkvæmt. En það
eru sannarlega til aðilar í heim-
inum sem eru boðnir og búnir til
að fjármagna svona framkvæmd,
enda væri um stöðuga ávöxtun til
langs tíma að ræða. Svona verkefni
eru til dæmis spennandi fyrir líf-
eyrissjóði sem eru að leita að slíkri
ávöxtun í takti við skyldur við sína
umbjóðendur. En þetta er verkefni
sem mun kosta um mörg hundruð
milljarða. Því er flækjustigið afar
mikið,“ segir Pétur.
Lykilspurning
Helsta spurning þeirra sem bera
náttúruna fyrir brjósti er hvort
sæstrengur þýði ekki stórfelldar
virkjunarframkvæmdir.
„Við skulum vera alveg heiðar-
leg með að það þyrfti að virkja
en hversu mikið er of snemmt að
segja,“ segir Björgvin. „Þetta er
hvergi nærri því magni sem fólk
gæti haft á tilfinningunni. Meiri-
hluti orkunnar sem færi á streng-
inn getur komið úr núverandi
virkjunum, með stækkunum og
bættri nýtingu vatnsorkunnar og
svo opnast tækifæri fyrir smáar
bændavirkjanir og vindmyllur sem
geta ekki staðið undir stóriðnaði
hérlendis. Ákvörðun um hvað á að
virkja er sjálfstæð ákvörðun óháð
sæstreng og þar verður að líta
til Rammaáætlunar og þá orku-
kosti sem eru í nýtingarflokki.
Og umræðan um umhverfismál
er mjög mikilvæg og þarf að fara
fram jafnhliða öðru. Landsvirkjun
þarf leyfi til þess að skoða þetta
nánar og í framhaldinu kynna
þjóðinni þetta í smáatriðum þegar
þau liggja fyrir,“ segir Björgvin og
nefnir eina af tillögum ráðgjafa-
hópsins um að Landsnet fái heim-
ild til að hefja viðræður, í sam-
starfi við Landsvirkjun og eftir
atvikum aðra raforkuframleiðend-
ur, við viðeigandi aðila í Bretlandi.
Meðal annars við bresku orku-
stofnunina Ofgem um tengingu
flutningskerfanna, viðskiptalíkan
og eignarhald sæstrengs. Einnig
að fyrirtækin kanni leiðir til fjár-
mögnunar á undirbúningsrann-
sóknum og hugi að hugsanlegu
samstarfsfyrirkomulagi vegna
sæstrengsins.
„Engar skuldbindingar munu
eiga sér stað fyrr en eftir slíkar
viðræður og ítarlega kynningu
fyrir Íslendingum á niðurstöð-
um þeirra. Þær gætu legið fyrir
í fyrsta lagi eftir tvö til þrjú ár,“
segir Björgvin.
En það
eru sannar-
lega til aðilar
í heiminum
sem eru boðn-
ir og búnir til
að fjármagna
svona framkvæmd, enda
væri um stöðuga ávöxtun
til langs tíma að ræða.
Pétur Stefánsson framkvæmdarstjóri
UK Trade & Investment á Íslandi
Unnið er að fjölda góðra hugmynda og verðugra verkefna í samfélaginu á
degi hverjum. EFLA verkfræðistofa hefur í tilefni af 40 ára afmæli fyrirtækisins
stofnað samfélagssjóð, sem leitar að málefnum til að styðja. Umsóknir þurfa
að berast sjóðnum fyrir 10. nóvember næstkomandi.
Allar nánari upplýsingar og leiðbeiningar vegna umsókna má finna á efla.is.
E F L A H F. 4 1 2 6 0 0 0
Samfélagssjóður EFLU