Fréttablaðið - 19.10.2013, Síða 48
FÓLK|
Þór og þvertekur fyrir að vera stjórn-
leysingi.
„Ég er ekki anarkisti. Ég er minnarkisti.
Ég er varkár þegar kemur að ríkisvaldi því
löggjöf er í eðli sínu ofbeldi og þvingar
fram vilja ríkisvaldsins, hvort sem það
er til góðs eða ills. Flestir eru sammála
um löggjöf gegn ofbeldi á líkama fólks en
eigum við að lögleiða siðferði sem býr til
glæp þar sem ekkert er fórnarlambið?“
veltir Jón Þór fyrir sér og kann vel við sig
á þingi.
„Þar er skemmtilegra en ég hélt og á
Alþingi fer fram heimspeki „in action“. Á
nefndarfundum er gaman að verða vitni
að rökum og réttlætingu sem þingmenn
kalla eftir fyrir málstað sínum og sjá þá
nota það sem púður í þingsal.“
Vinnufélagana segir hann skemmtilega.
„Ég er ekki á þingi til að eignast vini.
Maður hefur oft heyrt fleygt að meðvirkni
sé landlæg á Alþingi og hvorki gott fyrir
kjósendur né málstaðinn að þingmenn
séu meðvirkir hver með öðrum,“ segir
Jón Þór sem ætlaði sér aldrei á þing.
„Ég fór fram fyrir Pírata vegna þess
að ég las grunnstefnu um grunnréttindi
einstaklinga og þar hefur hjarta mitt
alltaf slegið. Ég vil standa vörð um rétt
einstaklinga til að koma að ákvörðunum
sem þá varðar og í forgangi núna er sá
réttur fólks að fá réttláta málsmeðferð
þegar kemur að þeirra stærstu eign,
sem er húsnæði þeirra. Þar er réttur
lántakenda fótum troðinn og á meðan
vafi leikur á lögmæti lána vil ég tryggja að
húseigendum sé ekki vísað út af heimili
sínu og að fólk geti fengið endurupptöku
og skaðabætur reynist lánin á endanum
ólögleg.“
HYGGST HÆTTA Á MIÐJU KJÖRTÍMABILI
Jón Þór hyggst ekki fara fram í næstu
kosningum.
„Ef Ásta Helgadóttir, varaþingmaður
minn, ákveður að halda áfram þing-
störfum ætla ég að stíga til hliðar, jafn-
vel eftir tvö ár. Við verðum að fara inn í
næstu kosningar með þingmenn sem hafa
reynslu og halda áfram vegferð okkar um
gegnsæi, beint lýðræði og friðhelgi einka-
lífsins. Birgitta fer ekki heldur fram því
hún er þeirrar skoðunar að þingmenn
eigi ekki að sitja lengur en átta ár. Ég er
henni sammála því menn verða óskap-
lega fastsetnir eftir átta ár á þingi; það sér
maður skýrt á Alþingi hjá þingmönnum
með langan starfsaldur,“ segir Jón Þór,
sem kveðst aðeins á þingi til að ná fram
markmiðum Pírata.
„Ég er góður í að koma að verkefnum
í upphafi, ná utan um heildarsýn, safna
saman þekkingu og verkefnum og gera
það aðgengilegt fyrir aðra og þar með
sjálfan mig óþarfan. Alþingi er rétti
vettvangurinn til þess.“ ■ thordis@365.is
ALÞINGISMAÐUR
Jón Þór kann vel við sig
á þingi. Þar fari fram
heimspeki „in action”
og að vinnfélagarnir
séu skemmtilegir. Hann
sé þó ekki á þingi til að
eignast vini.
MYND/VALLI
HELGIN
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður aug lýsendum að kynna vörur og
þjónustu í formi viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýsingum. Blaðið
fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir
Sölumenn: Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434 Sverrir Birgir Sverrisson,
sverrirbs@365.is, s. 512 5432 Kolbeinn Kolbeinsson, kolli@365.is, s. 512-5447
Allar nánari upplýsingar í síma 892 3318 eða senda
fyrirspurnir á netfangið steinsmyrarvotn@simnet.is
Tilboð sendist á netfangið steinsmyrarvotn@simnet.is
Frestur til að senda inn tilboð er til 9 nóvember 2013
og áskiljum við okkur rétt til að taka hvaða tilboði
sem er eða hafna öllum
Útboð -
Steinsmýrarvötn
www.steinsmyrarvotn.is/
Tilboð óskast í veiðisvæði Steinsmýrarvatna sem tilheyra
jörðinni Syðri – Steinsmýri. Útboðið er til 3 ára frá og með
veiðiárinu 2014 . Svæðið er 4 stanga svæði og er veiðitíminn
frá 1 apríl – 10 október. Leyfilegt agn er fluga og spúnn,
eingöngu fluga á vorin. Veiðihús fylgir svæðinu .
Fimm stjörnu ferðafrelsi
Dethleffs og Sunlight húsbílarnir komnir í hús
sýning helgina 18-19 október
Opið frá: 12-16 laugardag og 13-16 sunnudag
Frí vetrargeymsla fylgir seldum bílum
Tökum flestar gerðir bíla uppí, ekki bara húsbíla
Ögurhvarf 2, 203 Kópavogur
sími 517-5200 pkarlsson.is
Save the Children á Íslandi