Fréttablaðið - 19.10.2013, Síða 63
| ATVINNA |
SÉRKENNSLUSTJÓRI
Leikskólinn Hulduheimar auglýsir eftir sérkennslustjóra
Starfssvið:
• Er faglegur umsjónarmaður sérkennslu í leikskólanum,
annast frumgreiningu og ráðgjöf til annarra starfsmanna
leikskólans.
• Hefur yfirumsjón með gerð verkefna og ber ábyrgð á gerð
einstaklingsnámskráa fyrir börn sem njóta sérkennslu.
• Veitir foreldrum/forráðamönnum barna sem njóta sér-
kennslu stuðning, fræðslu og ráðgjöf.
• Sinnir þeim verkefnum er varða sérkennslu sem yfirmaður
felur honum
• Starfar samkvæmt lögum og reglugerð um leikskóla,
lögum um málefni fatlaðra, öðrum lögum er við eiga,
aðalnámskrá leikskóla og skólastefnu Árborgar.
• Vinnur að framkvæmd og þróun skólaþjónustunnar
í samstarfi við leikskólastjóra og ráðgjafa.
Menntun, reynsla og hæfni:
• Leikskólakennaramenntun
• Framhaldsmenntun í sérkennslufræðum
• Reynsla af starfi með börnum
• Færni í samskiptum
• Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
• Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
• Góð íslenskukunnátta
Starfið hentar jafnt konum sem körlum
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. janúar 2014
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag.
Frekari upplýsingar veitir Eygló Aðalsteinsdóttir, leikskólastjóri, í síma 4803282 eða með netfangi: eyglo@arborg.is.
Umsóknir með upplýsingum um menntun, starfsreynslu og umsagnaraðila berist til Eyglóar Aðalsteinsdóttur leikskólastjóra fyrir
15. nóvember. nk. Umsóknareyðublöð liggja frammi í Ráðhúsi Árborgar að Austurvegi 2, Selfossi og á heimasíðu Sveitarfélagsins
Skólamatur ehf. auglýsir starf rekstrarstjóra laust til umsóknar. Rekstrarstjóri annast
innkaup og birgðastjórnun ásamt daglegum rekstri og þróun fyrirtækisins.
Umsóknarfrestur er til og með 1. nóvember nk. Umsóknir skulu berast
til mannauðsstjóra með tölvupósti á fanny@skolamatur.is ásamt ítarlegri
ferilskrá og kynningarbréfi.
Nánari upplýsingar veitir Fanný Axelsdóttir
Helstu verkefni rekstrarstjóra:
Vörupantanir
Framleiðsluáætlanir
Vörudreifing
Þróun á birgðakerfi
Umsjón eignaskráningar
Umsjón og viðhald á tækjum og búnaði
Þátttaka í stjórnun og þróun fyrirtækisins
Menntun
Háskólamenntun sem nýtist í starfi
Góð þekking og reynsla af birgðahaldi, rekstri og stjórnun
Þekking á áætlanagerð og innkaupakerfum
Færni í mannlegum samskiptum nauðsynleg
Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
Hollt, gott og heimilislegtSkólamatur ehf. | Iðavellir 1 | 230 Reykjanesbær
Sími 420 2500 www.skolamatur.is
Rekstrarstjóri
LAUGARDAGUR 19. október 2013 13