Fréttablaðið - 19.10.2013, Qupperneq 118
19. október 2013 LAUGARDAGUR| MENNING | 82
„Fólk spyr mig
hvernig ég komst
í gegnum það og
ég svara alltaf:
Með aðstoð vina,
hreyfingu og
vítamínum.“
SÖNGKONAN KATY
PERRY ÞEGAR HÚN
VAR SPURÐ AÐ ÞVÍ
HVERNIG HÚN KOMST
YFIR SKILNAÐINN VIÐ
FYRRVERANDI EIGIN-
MANN SINN, RUSSELL
BRAND.
Leitin að Jólastjörnunni 2013 er hafin á
Vísi. Þetta er í þriðja sinn sem leitin fer
fram.
„Ég dáist að kjarkinum í krökkunum,
þú ert svo mikið að afhjúpa þig þegar
þú syngur svona inn á myndband,“ segir
Gunnar Helgason, einn dómaranna í leit-
inni, um aðdáun sína á þátttakendum.
„Ég ráðlegg krökkunum að syngja
ekki á ensku því þá er svo mikil hætta á
að þeir hermi bara eftir. Ef krakkarnir
syngja á íslensku kemur röddin betur
í ljós og krakkarnir syngja frekar með
sínu nefi.“
Þeir sem eru sextán ára og yngri geta
tekið þátt í leitinni að Jólastjörnunni. Tíu
bestu söngvararnir að mati dómnefndar
verða boðaðir í prufur og eftir þær mun
sigurvegarinn vera valinn.
Ísland í dag mun fylgjast grannt með
leitinni. Sigurvegarinn kemur síðan fram
með nokkrum af þekktustu listamönnum
þjóðarinnar hinn 14. desember á stórtón-
leikunum Jólagestir Björgvins í Laugar-
dalshöllinni. - glp
Dáist að kjarkinum í krökkunum
Leitin að Jólastjörnunni er hafi n en hún mun koma fram á Jólagestum Björgvins.
DÁIST AÐ KRÖKKUNUM Gunnar Helga-
son er einn af dómurunum í leitinni að
Jólastjörnunni 2013. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
➜ Til að taka þátt
þarf að hlaða mynd-
bandi inn á vefsíðu
á borð við Youtube
eða Vimeo og senda
svo hlekkinn ásamt
umsókninni. Einnig er
hægt að senda hlekki
á skrár á skráarhýs-
ingarsíðum á borð við
Dropbox, Box.com
eða Google Drive.
Skráningu lýkur á
miðnætti miðviku-
daginn 23. október.
DANIR HRIFNIR AF
EINARI MÁ
Skáldsaga Einars Más Guðmundsson-
ar, Íslenskir kóngar, hefur fengið mjög
góða dóma í Danmörku. Gagnrýnandi
Politiken lýsir bókinni sem „alvöru
skáldsögu, fullri af ævintýralegum við-
skiptum og kostulegum uppákomum“.
Gagnrýnandi Berlingske Tidende lýsir
Íslenskum kóngum sem „sígildum
Guðmundssyni“. Hann auglýsir eftir
dönskum rithöfundum
sem þori að leggja til
viðlíka atlögu við fjár-
málafurstana. Þá
segir Weekendavisen
bókina vera „frábær-
lega skemmtilega
og alvörugefna
ræningjasögu“. - fb
„Ég er búinn að vera hér í Belfast
frá því í ágúst og verð áfram til 9.
nóvember. Ég bý við gott atlæti á
hóteli,“ segir leikarinn Þorvaldur
Davíð Kristjánsson, sem er staddur
í Belfast við tökur á kvikmyndinni
Dracula Untold. Myndin er í leik-
stjórn Gary Shore og framleidd af
Universal Pictures og Legendary
Films.
Tökur hafa gengið vel og kveðst
Þorvaldur Davíð kunna ágætlega
við sig í Belfast. „Norður-Írar eru
kátir og um margt líkir Íslending-
um. Þeir tala mikið um veðrið, enda
er það síbreytilegt eins og heima.“
Aðspurður viðurkennir hann að
hann sé kominn með vott af írska
hreimnum eftir dvölina í Norður-
Írlandi. „Maður á það til,“ segir
hann og hlær. „Það eru nokkur
hljóð í hljóðfræðinni sem eru lík
því sem maður heyrði í New York,
þar sem ég bjó áður, þannig að
maður á ekki langt að sækja þetta.“
Þorvaldur Davíð og Hrafntinna
Viktoría Karlsdóttir, unnusta
hans, eignuðust sitt fyrsta barn
í ágúst. Leikarinn hefur þurft að
dvelja langdvölum frá mæðgunum
því tökur á Dracula Untold hófust
daginn eftir fæðingu dótturinnar.
„Þetta hefur verið erfitt, en ég hef
farið heim nokkrum sinnum til að
hitta þær. Þær eru staddar hjá mér
núna, ég er einmitt að ýta barna-
vagninum um Victoria Square í
þessum töluðu.“
Þorvaldur Davíð er fastráðinn
við Borgarleikhúsið og við heim-
komuna taka við æfingar fyrir
verkið Furðulegt háttalag hunds
um nótt, sem frumsýnt verður í
febrúar. Langt er um liðið frá því
að Þorvaldur Davíð steig síðast á
íslenskt leiksvið og hlakkar hann
mikið til þess að takast á við hlut-
verkið. „Ég hef aðallega unnið við
kvikmyndir frá útskrift. Draumur-
inn var alltaf að vinna við leikhús
heima en geta svo hoppað í kvik-
myndaverkefni þess á milli. Mér
sýnist sá draumur ætla að verða
að veruleika og það er topp næs,“
segir leikarinn að lokum og hlær.
sara@frettabladid.is
Draumur Þorvaldar
orðinn að veruleika
Þorvaldur Davíð Kristjánsson dvelur nú í Belfast við tökur á kvikmyndinni
Dracula Untold. Tökur á myndinni hófust daginn eft ir fæðingu dóttur hans.
FEÐGIN Á GÖNGU Þorvaldur Davíð Kristjánsson dvelur í Belfast við tökur á Dracula
Untold. Unnusta hans og dóttir dvelja nú hjá honum. MYND/ÚR EINKASAFNI
JÓLAPLATA VÆNTANLEG
Kristjana Stefánsdóttir tónlistarkona
er nú á fullu að vinna að jólaplötu
ásamt Svavari Knúti og Ragnheiði
Gröndal. Helmingur laga plötunnar
er frumsaminn, en áðurgreindir
listamenn sömdu tvö lög hver fyrir
plötuna. Grunnarnir voru teknir upp
í Hljóðrita í Hafnarfirði, en nú fer
upptökuvinnan fram í
stofunni hjá Svavari
Knúti, þar sem sett
hefur verið upp
upptökuaðstaða.
Gert er ráð
fyrir að platan
komi út í lok
nóvember. - glp
➜ Á vefsíðunni Wikipedia
kemur fram að hlutverk Bright
Eyes, illræmds leigumorðingja í
her Ottómana, sé leikið af Thor
Kristjansson, en það er enskt
listamannsnafn leikarans.
Fiskikóngurinn
Stærð 30/40
Sogavegi 3
fiskikongurinn.is
s. 587 7755
Má bjóða
þér grannmeti?
Fjölskylduskemmtun í
aðalsafni Borgarbókasafnsins
við Tryggvagötu á morgun,
sunnudaginn 20. október,
kl. 14.30.
Sigrún og Þórarinn Eldjárn
stýra listasmiðjum fyrir krakka.
Ljótikór flytur lög Hauks Tómassonar
við ljóð Þórarins Eldjárns.
AÐGANGUR
ÓKEYPIS
ALLIR
VELKOMNIR
SAFNAR FYRIR
FÓRNARLÖMB FELLIBYLS
Fyrirsætan og fegurðardrottningin
Ásdís Lísa Karlsdóttir hefur gengið
til liðs við FIA, filippseysk samtök á
Íslandi, í fjáröflun til styrktar björg-
unarmönnum og eftirlifendum jarð-
skjálftans á Filippseyjum. Í borginni
Cebu, sem er heimabær móður Ás-
dísar, hrundu spítalar,
sögufrægar kirkjur
og margar aðrar
byggingar og hefur
mikill fjöldi manns
misst heimili sín og
býr nú á götum úti á
rigningartímabili.
Nánari upplýsingar
er hægt að sjá á
Face book-síðu FIA.