Fréttablaðið - 26.10.2013, Page 8
26. október 2013 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 8
Saga Meniga fyrstu fimm árin: Frá stofnun til leiðandi stöðu
Fyrirlestur í Hátíðasal Háskóla Íslands, þriðjudaginn 29. október nk. kl. 12
Hugbúnaðarfyrirtækið Meniga og hraður vöxtur þess frá stofnun árið 2009 verður
umfjöllunarefni næsta viðburðar í fyrirlestraröðinni „Fyrirtæki verður til“.
Georg Lúðvíksson, framkvæmdastjóri og einn stofnenda, fer yfir sögu Meniga
frá hugmyndastigi til dagsins í dag.
Saga Meniga er stutt en viðburðarík. Fyrirtækið var stofnað vorið 2009 í kjölfar
efnahagshrunsins og hefur vöxtur þess verið ævintýri líkastur. Meniga er nú
markaðsleiðandi á sviði heimilisfjármála- og netbankalausna í Evrópu. Yfir 15
bankar í 11 löndum nýta sér hugbúnað og ráðgjöf frá Meniga og hafa um
10 milljónir manna aðgang að lausnum fyrirtækisins. Starfsmenn eru rúmlega
60 og gert er ráð fyrir áframhaldandi örum vexti.
Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.
Óskilgetið afkvæmi
efnahagshrunsins
www.hi.is
– FYRIRTÆKI VERÐUR TIL –
PI
PA
R\
TB
W
A
•
SÍ
A
•
13
31
17
Nánari upplýsingar má finna á:
hi.is/fyrirtaeki_verdur_til
UMHVERFISÞING
2013
8. nóvember í Hörpu
Á þinginu verður fjallað um skipulag lands og hafs,
sjálfbæra þróun og samþættingu verndar og nýtingar.
Dagskrá þingsins og nánari upplýsingar
er að finna á vef umhverfis- og auðlindaráðuneytisins.
Nauðsynlegt er að skrá þátttöku í þinginu.
Skráning fer fram á www.umhverfisraduneyti.is
Skráningu á Umhverfisþing 2013
lýkur mánudaginn 28. október.
KÓPAVOGUR Bæjarstjóri sem sagt var upp fékk sviðsstjórastarf hjá Kópavogsbæ í
kjölfarið en nú er ekki talin þörf fyrir það starf. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Guðrún Pálsdóttir var ráðin sem ópólitískur bæjarstjóri Kópavogsbæjar
hinn 16. júní 2010 á grundvelli meirihlutasamstarfs Samfylkingar, Lista
Kópavogsbúa, Næst besta flokksins og Vinstri grænna.
Hún var áður sviðsstjóri tómstunda- og menningarsviðs
bæjarins. Guðrún gegndi stöðu bæjarstjóra í um tutt-
ugu mánuði, eða til febrúar 2012. Meirihlutinn hafði
mánuði áður ákveðið að segja Guðrúnu upp störfum
en áður en af því varð sprakk meirihlutasamstarfið.
Ármann Kr. Ólafsson varð bæjarstjóri nýs meirihluta
og þá var gert samkomulag við Guðrúnu um að hún
yrði áfram á bæjarstjóralaunum til 1. september 2012.
Þá átti hún að taka við starfi sviðsstjóra á nýju sviði
menningarmála hjá Kópavogsbæ. Stjórnsýsluúttekt
Capacent, sem greint er frá í fréttinni, mælti hins vegar gegn því að sviðið
yrði stofnað og því kom Guðrún ekki til starfa í byrjun september. Hálfu
ári síðar tók hún síðan við starfi sviðsstjóra sérstakra verkefna.
Var bæjarstjóri í tuttugu mánuði
GUÐRÚN
PÁLSDÓTTIR
KÓPAVOGSBÆR Meirihluti bæjar-
stjórnar Kópavogsbæjar ákvað á
þriðjudag að leggja niður stöðu
sviðsstjóra sérstakra verkefna sem
Guðrún Pálsdóttir, fyrrverandi
bæjarstjóri, hefur gegnt.
Guðrún hafði sinnt starfinu síðan
í mars á þessu ári þegar sviðið var
stofnað. Þá hafði hún verið á bæjar-
stjóralaunum í heilt ár án þess að
sinna formlegum verkefnum fyrir
bæinn.
Ármann Kr. Ólafsson, bæjar-
stjóri í Kópavogi, segir að ákvörð-
unin um að leggja sviðið niður
byggist á stjórnsýsluúttekt sem
bærinn fékk Capacent til að vinna
og var kynnt í bæjarstjórn í nóvem-
ber 2012.
„Ákvörðunin tengist stjórnsýslu-
breytingu sem tók á ýmsum þátt-
um til að einfalda og skilgreina
betur skipurit bæjarins og draga
úr kostnaði. Einn þáttur í þessum
skipulagsbreytingum var að staða
sviðsstjóra sérstakra verkefna var
lögð niður. En það er bara einn þátt-
ur í miklu stærri heildarmynd,“
segir Ármann.
„Þetta er túlkun Ármanns á
stjórnsýsluúttektinni en í vor túlk-
aði hann þessa sömu úttekt á þann
veg að það ætti að stofna þessa
sviðsstjórastöðu og því ákvað
meirihluti Sjálfstæðisflokks, Fram-
sóknarflokks og Lista Kópavogsbúa
að stofna þetta svið,“ segir Guðríð-
ur Arnardóttir, oddviti Samfylking-
arinnar í bænum.
Guðríður segir að hún hafi lengi
gagnrýnt að ekki hafi legið fyrir
hvaða verkefnum Guðrún sinnti í
starfi sínu sem sviðsstjóri.
„Ég hef ekki fengið nein svör um
það, hvorki munnleg né skrifleg. Þó
það sé búið að leggja stöðuna niður
vil ég vita í hvað peningar skatt-
greiðenda í Kópavogi hafa farið
undanfarna mánuði í tengslum við
þessa stöðu,“ segir Guðríður.
Spurður um hvaða verkefni
Guðrún hafi sinnt segir Ármann
að hann hafi áður skýrt frá því í
bæjar ráði Kópavogs.
„Verkefnin tengdust stjórnsýslu-
úttektinni sjálfri auk þess sem Guð-
rún kom að ársreikningsgerð og
fleiri verkefnum,“ segir Ármann.
haraldur@frettabladid.is
Skipulögðu
fyrrverandi
bæjarstjóra út
Sviðsstjórastaða, sem fyrrverandi bæjarstjóri Kópavogs
hefur gegnt, er lögð niður með skipulagsbreytingu.
GUÐRÍÐUR
ARNARDÓTTIR
ÁRMANN KR.
ÓLAFSSON
BAREIN, AP Þúsundir manna héldu
út á götur í smáríkinu Barein í gær
til að krefjast lýðræðisumbóta og
heimta að stjórnin segi af sér.
Meðal mótmælendanna var Kalíl
al-Marsúk, einn helstu leiðtoga
stjórnarandstöðunnar í Barein, en
hann var nýsloppinn úr fangelsi.
Hann á yfir höfði sér ákærur
fyrir að hvetja til ofbeldis, en neit-
ar allri aðild að sprengjuárásum
og öðru ofbeldi.
Sjía-múslimar eru í meirihluta
í Barein og hafa allt frá byrjun ársins 2011 efnt reglulega til mót-
mæla gegn minnihlutastjórn súnní-múslima, sem nýtur stuðnings
Sádi-Arabíu. - gb
Ekkert lát á ólgunni í smáríkinu Barein:
Þúsundir vilja stjórnina burt
FLÝR UNDAN TÁRAGASI Lögreglan
í Barein beitti táragasi gegn
mótmælendum. FRÉTTABLAÐIÐ/AP