Fréttablaðið - 26.10.2013, Síða 18
26. október 2013 LAUGARDAGUR| SKOÐUN | 18
Að undanförnu hefur
talsvert verið rætt um
mikilvægi lista og skap-
andi greina í íslensku
efnahagslífi, aðallega í
tengslum við niðurskurð
fyrirhugaðra fjárveit-
inga til Kvikmyndasjóðs.
Aukin vitund er um efna-
hagslega þýðingu þessara
greina fyrir samfélagið,
ekki síst eftir að ítarleg
kortlagning benti til að
velta skapandi greina hefði verið
um 190 milljarðar króna árið
2009, og hærri en margra annarra
mikilvægra greina, svo sem bygg-
ingariðnaðar og landbúnaðar. Árs-
störf eru talin um tíu þúsund.
Með þessari kortlagningu er
þó aðeins reynt að meta efna-
hagslegt vægi þess sem við
getum kallað innlenda fram-
leiðslu og nálgast matið meðal
annars út frá skattskyldri veltu.
Hér á landi er umfangsmikil
verslun og þjónusta með erlend
hugverk sem veitir mörgum
atvinnu, t.d. stór hluti af starf-
semi sjónvarpsstöðva og kvik-
myndahúsa.
Þá blasir við að hér á landi
fer fram umfangsmikil ólögleg
starfsemi, sem grefur undan
löglegri starfsemi, sem veitir
atvinnu, greiðir skatta og skyld-
ur og rís undir margvíslegum
kröfum samfélagsins um þýð-
ingar, hljóðsetningu, vernd ung-
menna o.s.frv.
Samfélagslegir hagsmunir
Hér eru gríðarlegir samfélags-
legir hagsmunir í húfi. Mikilvæg
atvinnugrein fær ekki þrifist ef
hún nýtur ekki réttarverndar
á borð við aðrar. Íslensk tunga
og menning eru í húfi ef
kynslóðir vaxa upp fyrst
og fremst við ótextað
erlent efni. Og ríkissjóður
verður af miklum tekjum,
hvort sem efni er stolið
án nokkurrar greiðslu,
eða útlendum efnisveit-
um er greitt fyrir þjón-
ustu sem er ólögleg hér á
landi og stendur ekki skil
á neinu gagnvart íslensku
samfélagi.
Netflix er dæmi um þjónustu
sem ekki er boðin löglega hér á
landi, eins og þeir komast strax
að sem reyna að skrá sig beint
frá Íslandi. Þrátt fyrir það eru
dæmi um að hérlendir lögaðil-
ar hvetji almenning til að finna
hjáleiðir til að svindla á skatti og
rétthöfum.
Íslensk stjórnvöld hafa fram til
þessa sýnt ótrúlegan sofandahátt
gagnvart þeim vandamálum sem
hér eru á ferðinni, þótt margt
bendi til að þjófnaður á höfundar-
réttarvörðum hugverkum og ólög-
leg dreifing á þeim sé um þessar
mundir umfangsmesti vettvang-
ur efnahagsbrota í íslensku sam-
félagi. Fyrir utan allan annan
skaða. Nýlega sóttu t.d. fulltrúar
saksóknara og lögregluembætta
frá öllum Norðurlöndum öðrum
en Íslandi ráðstefnu um vernd
hugverka í Hörpunni. Áhuga- og
framtaksleysi íslenskra refsi-
vörsluaðila er skandall.
Hugarfarsvandi
Þegar undirritaður hóf störf í
stjórnarráðinu fyrir um aldar-
fjórðungi síðan, þótti ekki til-
tökumál þótt ólöglegan hugbúnað
væri að finna á tölvum ríkisins.
Það hefur sem betur fer breyst.
Hugarfarsvandinn varðandi
þjófnað á hugverkum almennt
virðist þó jafnvel enn djúpstæð-
ari í dag en áður var með tölvu-
hugbúnaðinn. Lögreglustjóri
eða skólastjóri sem staðnir yrðu
að umfangsmiklu búðarhnupli
myndu örugglega þurfa að segja
af sér embætti. En hvað myndi
gerast ef þeir yrðu uppvísir að
enn umfangsmeira hnupli á tal-
settum bíómyndum í netheimum?
Eins og ýmsir listamenn hafa
bent á að undanförnu, er enginn
eðlismunur á því að stela sköp-
unarverkum þeirra í netheimum
og því t.d. að stela málverkum af
veggjum heimila. Hvort tveggja
er afbrot.
Stjórnmálamenn geta rifist
um það hvort ríkisstyrkur til
kvikmyndagerðar eða annarra
skapandi greina verði meiri eða
minni á þessu kjörtímabili en því
síðasta. En það er alveg öruggt
að það skiptir engu máli ef fram-
leiðsluvörurnar eru réttlausar.
Ef hver sem er getur stolið sköp-
unarverkunum án þess að nokkr-
um vörnum verði við komið. Þá
líður framleiðslan undir lok og
allt heilbrigt atvinnulíf á þessu
sviði.
Eru skapandi greinar réttlausar?
Dagana 26. – 28. október
nk. mun hið fagra Ísland
bjóða velkominn í opinbera
heimsókn varaforsætis-
ráðherra ríkisráðs Kína,
Ma Kai. Hann kemur hing-
að til lands í boði Sigmund-
ar Davíðs Gunnlaugssonar,
forsætisráðherra Íslands.
Þessi heimsókn er fyrsta
heimsókn eins af nýju leið-
togum Kína til Íslands
eftir að leiðtogaskipti áttu
sér stað innan miðstjórnar-
innar í Peking og sömuleiðis fyrsta
heimsókn eins af leiðtogum Kína
til Íslands eftir stjórnarskipti á
Íslandi.
Jafnframt hefur jafn valdamikill
leiðtogi Kína ekki heimsótt Ísland
það sem af er þessu ári. Því er um
mjög merkilegan viðburð að ræða.
Ma Kai varaforsætisráðherra er
vel menntaður á sviði stjórnmála
og efnahagsmála. Hann hefur
mikla reynslu af grasrótarstarfi
og er jafnframt mjög reynslumik-
ill þegar kemur að stjórn efnahags-
mála á vegum miðstjórnarinnar. Í
langan tíma gegndi hann starfi
skrifstofustjóra ríkisráðsins og
sýndi í störfum sínum þar einstaka
leiðtogahæfileika í að miðla málum
og leiða saman ólík sjónarmið. Í
dag hefur hann að mestu málefni
iðnaðar, samgangna og fjármála í
Kína á sinni könnu og gegnir því
gríðarlega mikilvægu hlutverki í
framtíðarþróun efnahagsmála og
samfélags í Kína.
Aukið samstarf
Íslensk stjórnvöld telja heimsókn
Ma Kai varaforsætisráðherra mjög
mikilvæga og hafa undirbúið hana
af mikilli kostgæfni. Bæði
forseti Íslands, Ólafur
Ragnar Grímsson, og for-
sætisráðherra, Sigmund-
ur Davíð Gunnlaugsson,
munu hitta Ma Kai meðan
á heimsókn hans stendur og
eiga viðræður við hann. Samræður
leiðtoga landanna munu snúast um
hvaða leiðir ný stjórnvöld í báðum
löndum hafi til að efla áfram mjög
svo vinsamleg samskipti ríkjanna
og koma þeim í ennþá hærri hæðir.
Með sanni má segja að heim-
sókn Ma Kai varaforsætisráðherra
að þessu sinni sé til að auka sam-
ræður á milli landanna með það að
markmiði að auka skilning og vin-
áttu alþýðu beggja ríkja sem leiða
mun af sér aukið samstarf. Í Kína
segir gamalt orðatiltæki: Eftir því
sem vinir færast nær eykst vinátt-
an. Heimsókn Ma Kai varaforsætis-
ráðherra mun auka tengsl á æðstu
stöðum beggja ríkja og efla sam-
skipti á meðal almennings til auk-
ins skilnings. Þannig styrkist þráð-
urinn er tengir þjóðirnar saman og
gefur af sér aukið samstarf tveggja
góðra vina til hagsbóta báðum aðil-
um og friði í heiminum.
Það er einlæg ósk mín að heim-
sókn Ma Kai varaforsætisráðherra
til Íslands megi takast vel í alla
staði og ég er sannfærður um að
gestrisni Íslendinga og fögur nátt-
úra landsins muni skilja eftir ljúfar
minningar í huga hans.
Færum vináttu Kína og
Íslands í hærri hæðir
UTANRÍKISMÁL
Ma Jisheng
sendiherra
Kínverska alþýðu-
veldisins á Íslandi
➜ Í Kína segir gamalt
orðatiltæki: Eftir því
sem vinir færast nær
eykst vináttan.
HÖFUNDAR-
RÉTTUR
Ari Edwald
forstjóri 365 miðla
➜ Netfl ix-þjónustan er ekki
boðin löglega hér á landi,
en dæmi um að hérlendir
lögaðilar hvetji almenning
til að fi nna hjáleiðir til að
svindla á skatti og rétt-
höfum.
Framlagi samfélagsins til
grunnrannsókna er oft líkt
við kaup á happadrætt-
ismiða sem mögulega
geti skilað fjárhagslegum
ávinningi í framtíðinni.
Oft heyrist talað um „fjár-
festingu til framtíðar“ og
á slík samlíking vissulega
rétt á sér í mörgum tilfell-
um. Hitt vill þó stundum
gleymast að vísindarann-
sóknir eru einnig atvinnu-
grein sem skilar þjóðarbúinu
umtalsverðum gjaldeyristekjum
ár hvert í formi rannsóknastyrkja
úr erlendum vísindasjóðum.
Rannsókna umsvif og erlent sam-
starf styðja einnig fjárhagslega við
aðrar innlendar atvinnugreinar svo
sem þjónustu- og ferðamannaiðnað.
Erlendar fjárfestingar í þekkingu
Undanfarið hefur mikið verið rætt
um mikilvægi þess að laða til lands-
ins erlent fjármagn í formi fjárfest-
inga. Slíkar fjárfestingar eru óneit-
anlega mikilvægar fyrir íslenskt
atvinnulíf. Fjárfestingar eru þó
almennt þess eðlis að sá sem fjár-
festir ætlast til þess, til lengri eða
skemmri tíma, að ávaxta sína fjár-
festingu og fá þannig meira fé út
en lagt er inn. Fjárhagsleg ávöxtun
vel heppnaðra erlendra fjárfestinga
rennur þess vegna, a.m.k. að hluta,
út úr landinu aftur, eins og forsætis-
ráðherra hefur nýverið bent á.
Vísindarannsóknir sem stund-
aðar eru á Íslandi laða í auknum
mæli að sér erlent fjármagn þar
sem vinnuafl vísindamanna er nýtt
til að skapa nýja þekkingu. Ólíkt
hefðbundnum fjárfestingum þá er
ný þekking eina afurðin sem ætlast
er til að slíkar fjárfestingar skili.
Fjárfestingar erlendra aðila í vís-
indarannsóknum á Íslandi eru því
ónæmar fyrir gjaldeyrishöftum og
án fjárhagslegrar ávöxtunar- eða
endurgreiðslukröfu. Þar að auki eru
niðurstöður rannsókna í flestum til-
fellum gerðar opinberar og gagnast
því öllum sem geta nýtt sér þær.
Á árinu 2012 öfluðu vís-
indamenn Háskóla Íslands
1.400 milljóna króna úr
erlendum rannsókna-
sjóðum, um 350 milljónir
runnu til Hjartaverndar,
300 milljónir til Matís og
svo mætti lengi telja. Hér
eru svo ótaldar gjaldeyr-
istekjur og umsvif vegna
ferðamanna sem hingað
koma í tengslum við alþjóð-
legar vísindaráðstefnur og
fundi.
Hvers vegna Ísland?
Það er alls ekki sjálfgefið að erlend-
ir aðilar kjósi að kosta rannsókna-
starf á Íslandi. Nóg er af hæfum
rannsakendum um allan heim. Í
sumum tilfellum eru rannsókn-
ir framkvæmdar á Íslandi vegna
ákveðinnar sérstöðu lands eða
þjóðar, t.d. landfræðilegrar legu,
jarðfræðilegrar gerðar, stærð-
ar (smæðar) samfélagsins, bók-
menntasögu eða annarra þátta.
Rannsóknir íslenskra vísinda-
manna eru styrktar af erlendum
sjóðum þegar þær þykja leiðandi
á heimsvísu enda er samkeppni
um alþjóðlega styrki mjög hörð.
Árangur í slíkri samkeppni er held-
ur ekki sjálfgefinn, hann byggist
á því að hér á landi hafi vísinda-
menn traustan grunn að byggja á.
Gott dæmi er rannsóknaverkefni
um „Innviði eldfjalla“ sem nýlega
hlaut öndvegisstyrk úr Rannsókna-
sjóði Vísinda- og tækniráðs sem
nam um 25 milljónum króna á ári
í 3 ár. Í framhaldi af þeirri styrk-
veitingu fengu forsvarsmenn verk-
efnisins, í samvinnu við innlenda
og erlenda vísindamenn, 950 millj-
óna króna styrk frá Evrópusam-
bandinu til að byggja upp Future-
Volc-rannsóknasetrið. Þar af munu
yfir 300 milljónir renna beint inn í
íslenskt hagkerfi, m.a. í formi launa
og rekstrarkostnaðar. Innlent rann-
sóknafé var lykilþáttur í að tryggja
verkefninu margfalt meira fjár-
magn úr erlendum sjóðum.
Skilaboðin
Í ræðu á Alþingi 15. október 2009
sagði núverandi fjármálaráðherra:
„Tekjur ríkisins má auka með
tvennum hætti fyrst og fremst.
Annars vegar með því að tryggja
aðgerðir sem munu efla skattstofn-
ana, koma atvinnulífinu aftur af
stað og tryggja að ný störf verði til.
Nokkur þúsund ný störf stórbæta
afkomu ríkissjóðs [...] Ekki bara í
nýjum sköttum frá einstaklingum
heldur vegna þess að við mundum
spara okkur alls konar félagslegar
bætur [...] Áherslan hlýtur því að
vera á að skapa ný störf sem auka
verðmætaframleiðslu í landinu.“
Fyrrnefndar tölur um erlenda
rannsóknastyrki samsvara nokkur
hundruð störfum í hreinni þekk-
ingarsköpun sem kostuð eru af
erlendu fjármagni. Slíkum rann-
sóknastörfum hefur fjölgað veru-
lega hér á landi á undanförnum
áratugum og tengja má þá fjölgun
beint við aukin rannsóknaumsvif
innanlands. Fyrirhugaður niður-
skurður fjárveitinga ríkisins til
samkeppnissjóða hefur því bein
áhrif, til lengri og skemmri tíma, á
möguleika okkar til að afla þeirra
erlendu fjárfestinga sem skila hvað
mestu á hverja krónu til þjóðarbús-
ins.
Skilaboðin til þeirra sem umboð
hafa til að ráðstafa skattfé almenn-
ings eru því skýr: Stuðningur við
innlendar rannsóknir og efling
þeirra gæti skilað þjóðarbúinu
milljörðum í beinar gjaldeyris-
tekjur á komandi árum – til við-
bótar við önnur jákvæð hagræn og
menningarleg áhrif – auk mögu-
leikans á því að tryggja okkur
nokkra vinningsmiða í happa-
drættinu.
Um vísindarannsóknir
og fjárfestingar
VÍSINDI
Kristján Leósson
vísindamaður
➜ Það er alls ekki sjálfgefi ð
að erlendir aðilar kjósi að
kosta rannsóknastarf á Ís-
landi. Nóg er af hæfum rann-
sakendum um allan heim.
www.laktósafrítt.is
Pökkunardagur Framl. Best fyrir Pökkunardagur Framl. Best fyrir
laktósafrítt
ab-jógúrt
jarðarber
– fyrir þá sem hafa mjólkursykursóþol
eða kjósa mataræði án laktósa
– fyrir þá sem hafa mjólkursykursóþol
eða kjósa mataræði án laktósa
laktósafrítt
ab-jógúrt
perur
– fyrir þá sem hafa mjólkursykursóþol
eða kjósa mataræði án laktósa
laktósafrítt
ab-jógúrt
karamella
Smakkaðu
nýju laktósafríu
mjólkurvörurnar
frá Örnu
Fást nú víða um land
Arna ehf. Mjólkurvinnslan í Bolungarvík