Fréttablaðið - 26.10.2013, Page 26

Fréttablaðið - 26.10.2013, Page 26
26. október 2013 LAUGARDAGUR| HELGIN | 26 Vatnsaflsvirkjanir í Soginu mörk-uðu tímamót í orkumálum þjóð-arinnar. Þegar Ljósafossvirkjun var fyrst gangsett árið 1937 var framboð rafmagns á höfuðborg-arsvæðinu tvöfaldað. Ljósifoss er við útfall Úlfljótsvatns en Írafossvirkjun var gangsett neðar í ánni 1953. Fjórum árum síðar hófust framkvæmd- ir við þriðju Sogsvirkjunina, við Efra-Fall í suðurhluta Þingvallavatns, en áður en þeirri framkvæmd var lokið varð þar mikið tjón þegar Þingvallavatn braut sér leið í gegnum varnarþil og beljaði hömlulaust niður í Úlfljótsvatn. Í Morgunblaðinu var talað um að þetta væri mesta tjón sem orðið hefði við nokkra mannvirkjagerð hér á landi, enda var vatns- þunginn gríðarlegur. Nýlega fundust merkilegar ljósmyndir sem teknar voru rétt eftir að flóðið gekk yfir og sýna vel hvers lags hamfarir var um að ræða. Myndirnar tók Kristján Júlíus Finnbogason sem var vélstjóri við Írafoss- virkjun á þessum tíma. Varnarþil rofnaði í aftakaveðri Framkvæmdir við virkjunina hófust í ágúst 1957. Boruð voru aðrennslisgöng niður í gegnum Dráttarhlíð að Úlfljótsvatni. Þar var svo búið að grafa fyrir jöfnunarþró og stöðvarhúsið var í byggingu þegar þjóðhá- tíðardagurinn rann upp árið 1959. Aftakaveður hafði þá geisað úr norðri daginn og nóttina áður og Þingvallavatn hafði barið á varnargarði sem reistur hafði verið framan við göngin. Snemma að morgni 17. júní sáu þeir verkamenn sem enn voru uppi á vinnusvæðinu að ágangur vatnsins var með þeim ósköpum að jarð- vegsuppfylling handan járnþils var farin að skolast í burtu. Þrátt fyrir að allt kapp væri lagt í að lagfæra skemmdirnar var það til lítils og loks lét þilið undan skömmu fyrir hádegi og vatnið flæddi óhindrað í gegn, niður í jarðgöngin og út fyrir neðan. Vatnsflaumurinn skall með fullum þunga á stöðvarhúsinu sem þá var í byggingu og flæddi inn á neðstu þrjár hæðirnar. Ekk- ert manntjón varð, en það mátti litlu muna. Samkvæmt blaðafréttum þess tíma var einn verkamaður hætt kominn þar sem hann stóð neðan við þilið þegar það brast og þrír í viðbót voru staddir í stöðvarhúsinu að bjarga verðmætum tækjabúnaði. Allir sluppu þeir þó ómeiddir. Gangsett fyrir árslok 1959 Gríðarmiklar skemmdir urðu á mannvirkj- um þar sem straumurinn hrifsaði meðal annars með sér sjö lítil vinnuskýli, nýsteypt íbúðarhús gjöreyðilagðist og heljarmikill krani fór veg allrar veraldar. Brak og fleira skolaðist niður með Soginu og lýsti tíðinda- maður Vísis því þannig að heilu húsmæn- arnir hefðu staðið upp úr ánni. Viðgerðir hófust fljótlega þar sem tekið var að fylla í skarðið í varnarveggnum sem var á bilinu tíu til fimmtán metrar og tókst að koma í veg fyrir vatnsrennslið nokkrum dögum síðar. Virkjunin, sem var nefnd eftir Steingrími Jónssyni rafmagnsstjóra Reykjavíkur, hlaut nafnið Steingrímsstöð. Hún var svo tekin í gagnið í desember sama ár og hefur hún þjónað sínum tilgangi síðan og skilar nú 122 gígavatnsstundum á ári og þjóðhátíðar- dagurinn afdrifaríki er einungis minning, en myndir eins og þær sem Kristján tók og fylgja hér með, munu lifa. Þorgils Jónsson thorgils@frettabladid.is Hamfarirnar festar á filmu Nýlega fundust áður óbirtar myndir frá hamfaraflóðinu sem varð 17. júní 1959 þegar Þingvallavatn braust í gegnum varn- arþil og óð beljaði yfir framkvæmdasvæði virkjunar í Sogi. Gríðarmiklar skemmdir urðu og var þetta atvik talið mesta tjón sem orðið hafði við mannvirkjagerð hér á landi. „Pabbi var alltaf mikill myndasmiður,“ segir Jó- hannes Kr. Kristjánsson fréttamaður en hann fann myndirnar í slides- myndasafni föðurs síns heitins. „Hann tók mikið af myndum til dæmis með AGFA colour vél og líka kassamyndavélum. Hann tók einmitt mikið af slides-myndum á þessum árum og eftir hann liggur heilmikið safn af myndum, bæði úr vinnuumhverfi hans og líka fjölskyldumyndum. Þetta eru fleiri þúsundir mynda sem ég hef verið að dunda mér við að fara í gegnum. Svo rakst ég nýlega á þessar myndir, þessar hamfara- myndir, en ég vissi ekkert hvað var þar í gangi, nema að þetta tengdist Soginu. Svo fór ég að gúggla mig áfram og fann blogg- færslu eftir Einar Sveinbjörnsson veðurfræð- ing þar sem hann fjallar um veðurofsann sem orsakaði þetta allt saman. Ég hringdi þess vegna í Einar sem saup hreinlega hveljur þegar hann sá þessar myndir.“ ➜ „Var alltaf mikill myndasmiður“ EYÐINGARKRAFTUR Hér sést gjörla hinn gríðarmikli kraftur sem var í flóðinu þar sem það streymir út um munna aðrennslis- ganganna og niður í Úlfljótsvatn. Stöðvarhúsið er hér í forgrunni. HVÍTFYSSANDI Vatnsflaumurinn umvafði stöðvarhúsið sem var langt komið í byggingu. FLÆDDI UM ALLAR HÆÐIR Þrjár neðstu hæðirnar á stöðvar- húsinu fylltust af vatni þegar flaumurinn var sem harðastur. BROSTNAR VARNIR Þingvallavatn flæðir hér í gegnum rofið varnarþil og ofan í aðrennslisgöngin. MÓTIÐ SKAUST ÚT Hér er horft niður að Úlfljótsvatni, sennilega ofan við munna aðrennslisganganna. Sívalningurinn á miðri myndinni var notaður sem eins konar steypumót í göngunum og spýttist út með vatnsflaumnum. Hann var sennilega um sex til sjö metrar á lengd. STRAUMÞUNGI Vatnsmagnið í Soginu margfaldaðist þegar varnarstíflan við Þingvallavatn brast. Þessi mynd er frá Ljósafossvirkjun, neðar í ánni. Kristján Júlíus Finnbogason (1928-1983) tók meðfylgjandi myndir á AGFA-myndavél. Hann var vélstjóri hjá Rafmagnsveitu Reykjavíkur við Írafossvirkjun neðar í Soginu á árunum 1956 til 1962 og hefur því annaðhvort verið í nágrenninu þegar ósköpin riðu yfir eða komið þangað skömmu síðar. Þegar varnarstíflan ofan við Sog brast árið 1959, varð sem betur fer ekki mannskaði, en áhrifin á lífríki Þingvallavatns voru gífurleg, sérstaklega á urriðastofninn sem svo gott sem hvarf úr vatninu um áratugaskeið. Össur Skarphéðinsson, stjórnmálamaður og lífeðlis- fræðingur, er sérfróður um Þingvallaurriðann og segir að stofninn hafi í raun ekki náð sér fyrr en upp úr síðustu aldamótum. „Ég man sjálfur eftir þessu því að ég var þarna sex ára gamall og foreldrar mínir áttu sumarbústað í Miðfellslandinu. Vatnsyfirborðið lækkaði um einhverja tvo metra og það var eins og útfiri langt út frá bakkanum. Seiði lágu þarna dauð í hrönnum og þetta hafði auðvitað mikil áhrif á alla stofna og lífríki í vatninu mörg ár á eftir.“ Össur segir að þegar vatnsbylgjan reið yfir árfarveg Efra-Sogs hafi hún hrifsað með sér grófa möl af botninum, þar sem stærsti urriðinn hafi átt hrygningarstöðvar. Össur segir hrun urriðans hafa haft mikil áhrif á lífríkið í vatninu, enda var urriðinn þar efstur í fæðukeðjunni. Hann telur að áhrifa flóðsins hafi gætt allt fram yfir árið 2000, en þá hafi urriðinn komist aftur af stað með sleppingum. URRIÐINN VAR 40 ÁR AÐ NÁ SÉR AFTUR MEÐ 29 PUNDA URRIÐA Í ÖXARÁ Össur Skarphéðinsson segir að Þingvallaurriðinn hafi ekki náð sér fyrr en eftir aldamót.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.