Fréttablaðið - 26.10.2013, Page 34

Fréttablaðið - 26.10.2013, Page 34
26. október 2013 LAUGARDAGUR| HELGIN | 34 Sakleysislegar snjóflygsur falla tignarlega til jarðar í logninu á Akureyri þegar flugvélin lendir. Það er mikil tilhlökkun fyrir manneskju sem ólst upp við söng Helenu Eyjólfsdóttur í óskalagaþáttum útvarpsins að hitta hana í eigin persónu. Hún býður mér brosandi í bæinn og á stofuborðinu ligg- ur bókin um hana, Gullin ský, sem sögu- ritarinn, Óskar Þór Halldórsson, var að koma með glóðvolga úr prentsmiðjunni. Við flettum bókinni með lotningu, skoð- um myndirnar og rifjum upp lög sem Helena gerði vinsæl því textarnir eru birtir aftast í bókinni. Þeir fjalla nán- ast allir um ást. Hún hlær þegar ég spyr hvort hún trúi á ástina. „Já, svo sann- arlega. Gerir þú það ekki líka?“ svarar hún að bragði. Æfði í kjallarakompu Rúm 60 ár eru frá því Helena kom fyrst fram syngjandi. Nú er hún að undir- búa tvenna stórtónleika í kvöld á Græna hattinum, í tilefni af útkomu bókar- innar. Þeir seinni byrja klukkan ellefu svo hún verður að fram á nótt en hún er ekki óvön því. Meðan ballmenning- in var í mestum blóma söng hún fyrir dansi öll kvöld vikunnar nema miðviku- dagskvöld. Hún ætlar að endurtaka tón- leikana í Súlnasalnum 9. nóvember og slá þar upp balli á eftir. Með henni á báðum stöðum er úrvalslið hljóðfæraleikara og söngvara. Helena var barnastjarna. Hún hóf söngnám níu ára hjá Guðrúnu Pálsdótt- ur, ekkju Héðins Valdimarssonar. „Guð- rún bjó í flottu húsi við Sjafnargötuna og ég labbaði til hennar tvisvar í viku úr Stórholtinu. Mér fannst ég komin í höll, þegar ég kom til hennar. Hún kenndi mér í þrjá vetur og tók ekki krónu fyrir.“ Meining Guðrúnar var að gera óperu- söngkonu úr Helenu enda kveðst Helena oft hafa æft óperuaríur í kjallarakompu, þar sem hún taldi að enginn heyrði til, en síðan hafi dægurlagasöngurinn heillað og haldið henni fanginni upp frá því. Eilíf sæla Helena ólst upp í Reykjavík hjá góðum en fremur fátækum foreldrum, ásamt tveimur systrum, en faðir hennar dó þegar hún var tíu ára og yngsta systirin þriggja. „Pabbi var plötu- og ketilsmið- ur. Okkur var sagt að hann hefði dáið úr lungnabólgu en ég hef grun um að það hafi verið einhver rafsuðueitrun, hann varð alveg heiðgulur og þetta tók hann mjög hratt. Lát hans var reiðarslag fyrir okkur mæðgurnar.“ Sumarið eftir að faðir Helenu dó fór hún til föðurbróður síns og hans konu sem bjuggu á Akureyri. „Það átti að heita að ég væri að passa yngsta strák- inn þeirra en auðvitað voru þau bara að létta undir með mömmu. Ég var ellefu ára og tók strax ástfóstri við Akureyri.“ Seinna náði Helena sér í akureyrsk- an pilt, Finn Eydal, sem bauð henni að koma norður að syngja með hljómsveit sem hann og bróðir hans Ingimar voru að stofna og hét Atlantic kvartett. Þá var hún sextán ára og sló til. „Þetta sumar, 1958, var eilíf sæla. Mér finnst alltaf hafa verið sól. Seinna fluttum við Finnur hingað þannig að ég er búin að búa hér mestan hluta ævi minnar,“ segir hún og augun tindra. Nú vil ég vita hvar fundum hennar og Finns bar saman. „Finnur var að spila með Hljómsveit Svavars Gests í Sjálf- stæðishúsinu í Reykjavík sem er Nasa núna. Ég var einu sinni að syngja þar á árshátíð. Þá kom hann til mín á eftir og spurði hvort hann mætti hringja í mig næsta dag. Ég hélt hann ætlaði að bjóða mér í bíó en þá var hann að biðja mig að koma norður að syngja með Atlantic kvartettinum. Þannig kynntumst við nú.“ Gott að horfa á gullnu skýin Helena Eyjólfsdóttir hefur sungið opinberlega í 60 ár. Hún heldur tónleika norðan og sunnan heiða í tilefni af útgáfu bókarinnar Gullin ský sem snýst um ævi hennar, ást og söng en líka erfiðleika vegna veikinda eiginmannsins. SÖNGKONAN „Það skemmtilegasta sem ég geri er að syngja með mínum gömlu félögum sem ég hitti oft. Í mínum huga eru þeir alltaf strákarnir,“ segir Helena. MYND/AUÐUNN NÍELSSON Gunnþóra Gunnarsdóttir gun@frettabladid.is Egill Ólafsson var að tala um þetta hljóðfæri og segir: Ja, við köllum þetta nú alltaf Helenu- stokk. Ég fann hvernig ég kafroðnaði. Hann hefur séð eitthvað meira í þér en söngkonu, segi ég. „Já, það er fræg setn- ing sem hann sagði við Ingimar bróður sinn þegar hann tjáði honum að hann væri búinn að finna söngkonu og Ingi- mar spurði hvernig hún væri: „Hún er með gleraugu.“ Ingimar var hins vegar ekki að spyrja um útlitið heldur söng- hæfileikana.“ Erfiðasta hlutverkið Skemmtanabransanum hefur oft fylgt sukk en Helena kveðst alltaf verið reglu- söm. „Það var aldrei notað áfengi þegar við vorum að spila, hvorki í hljómsveit Finns né Ingimars. En Finnur ánetjaðist lyfjum, var á tímabilum á því sem í dag er kallað læknadóp, svefnlyf og verkja- lyf. Það var mjög erfitt en við áttum okkar góðu stundir á milli. Finnur fékk tvívegis krabbamein, fyrst undir tungu. „Við reyktum bæði, undir það síðasta reyktum við pípu því sígarettur voru svo dýrar. Mér fannst ægilega gott að reykja pípu,“ segir Hel- ena. „Meinið var fjarlægt en þetta var erfitt fyrir Finn, því tungan er svo mik- ilvæg þegar leikið er á blásturshljóð- færi. En það tókst að laga þetta. Svo fékk Finnur krabbamein í ristil, það var tek- inn bútur og þá var það búið. En svo kom nýrnabilunin. Það endaði með því að nýrun hreinlega gáfu sig og hann þurfti að lifa við blóðskilunarvél.“ Helena gerði sér lítið fyrir og lærði á blóðskilunarvél til að geta sinnt Finni og einu herbergi á heimilinu var breytt í sjúkrastofu. Þannig var það í fjögur ár. „Þetta er erfiðasta hlutverk sem ég hef tekist á við en sé aldrei í lífinu eftir því. Það varð til þess að við þurftum ekki að flytja suður og Finnur gat haldið áfram HLJÓMSVEIT INGIMARS EYDALS Bjarki Tryggvason, Finnur Eydal, Helena Eyjólfsdóttir, Grímur Sig- urðsson, Árni Ketill Friðriksson og Ingimar Eydal. Búningurinn var stundum nefndur Skæruliðafötin.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.